Anna Valdimarsdóttir er látin Magnús Jochum Pálsson skrifar 15. október 2026 09:31 Sálfræðingurinn Anna Valdimarsdóttir er látin eftir erfið veikindi. Anna Valdimarsdóttir, sálfræðingur og rithöfundur, lést á Landspítalanum við Hringbraut 9. október, 78 ára að aldri, eftir erfið veikindi. Anna rak eigin sálfræðistofu um margra ára bil, hélt vinsæl nám í sjálfstyrkingu og gaf út bækur um sjálfs- og hugrækt.
Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu. Anna fæddist 25. júní 1948 í Reykjavík. Foreldrar hennar voru Valdimar Jóhannsson bókaútgefandi og Ingunn Ásgeirsdóttir, húsfreyja og starfsmaður við bókaútgáfu. Anna var miðjubarn og átti eldri bróðurinn Ásgeir Má Valdimarsson og yngri bróðurinn Jóhann Pál Valdimarsson. Anna gekk í Austurbæjarskóla, Kvennaskólann og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík. Hún var með BA-próf í sálfræði og bókasafnsfræði frá Háskóla Íslands, cand. psych.-próf frá Háskólanum í Ósló og stundaði framhaldsnám í sálfræði við Washington-háskóla í Seattle. Anna starfaði víða, meðal annars á Háskólabókasafninu hérlendis, aðalbókasafni Gautaborgar og við bókaútgáfu föður síns. Hún var framkvæmdastjóri Iðunnar, vann á bókaútgáfunni með námi, þýddi bækur og fékk þýðingarverðlaun Reykjavíkurborgar fyrir Jósefínu, árið 1974, og ritstýrði bókinni Uppgjör konu, eftir Höllu Linker, sem kom út 1987. Anna gaf út þó nokkrar bækur. Nýkomin heim úr framhaldsnámi í Bandaríkjunum opnaði Anna sálfræðistofu árið 1982 og hélt jafnframt vinsæl námskeið í sjálfstyrkingu. Hún var stundakennari við HÍ, kenndi við Endurmenntun HÍ og var kennslustjóri í sérfræðingsnámi í hugrænni atferlismeðferð. Hún hélt fjölda fyrirlestra, hér og erlendis, um sjálfstyrkingu, núvitund, samskipti, ástina og listina að elska og njóta. Meðal rita Önnu eru ljóðabókin Úlfabros (1997), Leggðu rækt við sjálfan þig (1999), Leggðu rækt við ástina (2001), Hugrækt og hamingja (2014) auk fjölda greina og bæklinga og var höfundur fræðsluþáttanna Fjölskyldunnar sem komu út 1994 á ári fjölskyldunnar. Anna sat í stjórn Sálfræðingafélags Íslands, Samtaka heilbrigðisstétta, Kynfræðifélags Íslands, var einn stofnenda og fyrsti formaður Alúðar, félags um núvitund og vakandi athygli, og sat í stjórn Lífspekifélags Íslands. Þá var hún formaður Dáleiðslufélags Íslands, félags fagfólks um dáleiðslu. Synir Önnu eru Valdimar Sverrisson, f. 1967, Jón Helgi Jónsson, f. 1973, og Jóhann Páll Jónsson, f. 1988. Barnabörnin eru fjögur og langömmubörnin tvö. Útför Önnu fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 22. október kl. 13.
Andlát Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira