Fótbolti

Mörkin úr Meistara­deildinni: Há­kon gegn Arsenal, dramatík og ó­vænt úr­slit

Aron Guðmundsson skrifar
Hákon Arnar Haraldsson í kröppum dansi gegn Ezri Konsa í London í kvöld.
Hákon Arnar Haraldsson í kröppum dansi gegn Ezri Konsa í London í kvöld. Getty/Jacques Feeney

Fjölmargir leikir fóru fram í Meistara­deild Evrópu í gær. Há­kon Arnar Haralds­son og liðs­félagar hans í Lil­le fengu erfitt verk­efni gegn Eng­lands­meisturum Arsenal og ein óvæntustu úr­slit tíma­bilsins áttu sér stað í Noregi.

Arsenal vann 3-0 sigur á Lille á Emirates leikvanginum í gær. Eftir frekar jafnan fyrri hálfleikk tóku Skytturnar öll völd á vellinum í þeim seinni og röðuðu inn mörkum á stuttum kafla leiksins. Hákon Arnar Haraldsson var í byrjunarliði Lille og spilaði allan leikinn. Arsenal með fullt hús stiga eftir tvær umferðir. Lille án stiga.

Klippa: Arsenal - Lille 3-0

Í Madríd sigldu heimamenn í Atletico Madrid heim 2-0 sigri gegn lánlausu liði Manchester United. Fyrsta markið kom á fyrstu mínútu leiksins. Pablo Barrios sem skoraði það og í seinni hálfleik tryggði Ademola Lookmann 2-0 sigur Atletico skömmu eftir að Leny Yoro hafði verið rekinn af velli í liði Manchester United. Bæði lið með þrjú stig af sex mögulegum eftir fyrstu tvö leiki sína. 

Klippa: Atletico Madrid - Manchester United 2-0

Börsungar lentu undir í Tyrklandi gegn Galatasaray en röðuðu svo inn mörkum og unnu að lokum 4-1 sigur og eru með fullt hús stiga sem stendur. 

Klippa: Galatasaray - Barcelona 1-4

Það voru síðan óvænt úrslit á dagskrá deildarinnar líka.

Club Brugge vann 4-3 útisigur gegn ítalska stórliðinu Inter Milan sem byrjar Meistaradeildina mjög illa og er án stiga eftir fyrstu tvo leiki sína. 

Klippa: Inter - Club Brugge

Í Noregi áttu sér svo stað ein óvæntustu úrslit þessa tímabils þegar að Noregsmeistarar Viking gerðu 3-3 jafntefli gegn þýska stórveldinu Bayern Munchen. Viking hafði komist 2-0 yfir í leiknum en Bæjarar sneru honum sér í vil. Jöfnunarmarkið var dramatísk í meira lagi hjá Norðmönnunum, kom undir lok leiks. Amin Cosic var allan tímann á varamannabekk Viking.

Klippa: Viking - Bayern Munchen 3-3

Mörkin úr öðrum leikjum má sjá hér fyrir neðan: 

Klippa: Villarreal - Napoli 3-1
Klippa: RB Leipzig - PSV 1-0
Klippa: Lens - Sporting 0-2
Klippa: Sabah - Slavia Prague 2-0



Fleiri fréttir

Sjá meira


×