Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Birgir Olgeirsson skrifar 13. október 2026 13:55 Greta Salóme Stefánsdóttir tónlistarkona, María Björk Einarsdóttir forstjóri Ása og Alexandra Helga Ívarsdóttir, fyrrverandi ungfrú Ísland, eru meðal 87 foreldra sem vilja greiða fyrir eftirlit með au pair. Þau mótmæla tillögu Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um að afnema sérstök vistráðningarleyfi fólks utan EES. Alexandra Helga er hér með Gylfa Sigurðssyni. Vísir Áttatíu og sjö foreldrar segjast reiðubúnir að greiða gjald til að fjármagna eftirlit með au pair á Íslandi. Þau mótmæla fyrirhuguðu afnámi dvalarleyfa vegna vistráðningar og segja stjórnvöld eiga að styrkja vernd vistráðinna og framfylgja eftirliti sem hefur verið lögbundið frá árinu 2023.
Meðal undirritaðra eru Greta Salóme Stefánsdóttir tónlistarkona, Alexandra Helga Ívarsdóttir, Ungfrú Ísland 2008, Rakel Hlín Bergsdóttir, stofnandi og fyrrverandi eigandi Snúrunnar, og María Björk Einarsdóttir, forstjóri Ása hf., sem áður hét Síminn hf. Foreldrarnir eru eða hafa verið vistfjölskyldur au pair hér á landi. Í sameiginlegri umsögn þeirra um frumvarpsdrög dómsmálaráðuneytisins hafna þau því að afnám leyfanna sé rétta svarið við misnotkun. Tillagan tekur til sérstakra dvalarleyfa fyrir au pair frá ríkjum utan EES. Vistráðning fólks frá EES- og EFTA-ríkjum verður áfram möguleg. Á árunum 2017 til 2024 voru veitt 766 ný vistráðningarleyfi, þar af 78 prósent til ríkisborgara Filippseyja. Kostnaður eftirlitsins ekki tilgreindur „Kostnaðinn má fjármagna með gjaldi á vistfjölskyldur. Undirrituð eru reiðubúin að greiða það,“ segir í umsögninni. Í frumvarpsdrögunum kemur ekki fram hvað eftirlitið myndi kosta. Foreldrarnir leggja heldur ekki til ákveðna fjárhæð. Þau óska eftir að ráðuneytið upplýsi hvað eftirlitið hafi verið metið kosta og hvers vegna gjaldtaka á vistfjölskyldur hafi ekki verið talin fær leið. Umsóknargjald vegna dvalarleyfis fyrir au pair er þegar 120 þúsund krónur og sama gjald er tekið fyrir endurnýjun. Sú fjárhæð er umsóknargjald og segir ekki til um kostnað við eftirlitið sem foreldrarnir vilja fjármagna. Segja stjórnvöld hafa vanrækt eftirlitið Frá árinu 2023 hefur Útlendingastofnun verið skylt að fela sérstökum eftirlitsaðila eftirlit með vistráðningum. Lögin gera meðal annars ráð fyrir viðtölum við vistráðna og vistfjölskyldur, óboðuðu eftirliti á heimilum og athugun á því hvort samningar séu virtir. Í frumvarpsdrögunum segir hins vegar að sjálfstæðu eftirliti sé ekki fyrir að fara. Ekki hafi verið talið raunhæft að koma því á eða fjármagna það vegna umfangs leyfaflokksins og kostnaðarins. Foreldrarnir saka stjórnvöld um að hafa látið eftirlitsskylduna óframkvæmda í rúm þrjú ár. Þau telja ekki forsvaranlegt að nota síðan skort á eftirliti sem rök fyrir því að afnema leyfin. Vilja vernda fólk innan kerfisins Au pair er ungt fólk sem dvelur tímabundið hjá fjölskyldu til að kynnast tungumáli og menningu. Það hjálpar við barnagæslu og heimilisstörf gegn fæði, húsnæði og vasapeningum. Vinnuframlagið má að hámarki vera þrjátíu klukkustundir á viku. Ráðuneytið telur vistráðna sérstaklega berskjaldaða fyrir misnotkun. Þeir séu háðir sömu fjölskyldu um verkefni, greiðslur, fæði, húsnæði og dvalarheimild án þess að njóta hefðbundinna atvinnuréttinda. Eftirlit á einkaheimilum sé jafnframt vandasamt og mannaflsfrekt. Aukið eftirlit leysi ekki þennan aðstöðumun. Foreldrarnir viðurkenna að dæmi séu um illa meðferð og segja þau mál eiga að taka alvarlega. Þau vilja skýrari réttindi, virka kvörtunarleið og raunhæfan möguleika á að yfirgefa fjölskyldu þar sem aðstæður eru óviðunandi. Þau leggja meðal annars til einkaviðtöl utan heimilis, óháðan tengilið, rekjanlegar greiðslur og athugun á vistfjölskyldum áður en vist hefst. Fjölskyldur sem brjóti reglurnar verði útilokaðar frá kerfinu. Þau gagnrýna einnig að drögin sýni ekki umfang misnotkunar með tölum um tilkynningar, rannsóknir og staðfest brot. Þá benda þau á að Danmörk, Svíþjóð og Finnland hafi áfram au pair kerfi og spyrja hvers vegna íslensk stjórnvöld velji afnámið í Noregi sem fyrirmynd. Brúi bilið þar til leikskólapláss fæst Foreldrarnir lýsa góðri reynslu af vistráðningum. Au pair verði hluti af fjölskyldunni, börnin myndi tengsl og kynnist öðru tungumáli og menningu. Aðstoðin geri báðum foreldrum kleift að vinna fulla vinnu og hjálpi fjölskyldum að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Þau telja áhrif afnámsins á atvinnuþátttöku mæðra, einstæðra foreldra og fólks í vaktavinnu ekki nægilega metin. Í drögunum er gert ráð fyrir að þörf heimila verði fremur mætt með fólki frá EES, formlegum ráðningum eða kaupum á þjónustu. Foreldrarnir segja upplýsingar skorta um framboð, verð og hvaða fjölskyldur hafi efni á þeim leiðum. Þau telja jafnframt að afnámið loki löglegri leið ungra kvenna, einkum frá Filippseyjum, án þess að þörfin fyrir aðstoð hverfi. Þau vara við hættu á að aðstoðin færist í óskráð fyrirkomulag. Hópurinn vill að fallið verði frá afnáminu og að áhrif á fjölskyldur og aðrir valkostir verði metnir betur áður en frumvarpið verður lagt fram á Alþingi.
Innflytjendamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjölskyldumál Börn og uppeldi Vinnumarkaður Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Sjá meira