Íslenski boltinn

Lögðu til átta milljóna króna stofn­fram­lag

Aron Guðmundsson skrifar
Ingvi tekur hér við styrknum frá þeim Kristjáni og Ásdísi. Bjarnólfur Lárusson, formaður Þróttar, var einnig á svæðinu ásamt ungum iðkendum frá Þrótti.
Ingvi tekur hér við styrknum frá þeim Kristjáni og Ásdísi. Bjarnólfur Lárusson, formaður Þróttar, var einnig á svæðinu ásamt ungum iðkendum frá Þrótti. Mynd: Þróttur/Baldur Kristjánsson

Styrktarstjóður Hringfarans lagði til átta milljóna króna stofnframlag í Knattspyrnusjóð Ingva Sveinssonar sem á að styðja við barna- og unglingastarf Þróttar Reykjavíkur. 

Frá þessu er greint í tilkynningu á vef Þróttar en sjóðurinn er stofnaður til heiðurs Ingva Sveinssonar fyrir „ómetanlegt og óeigingjarnt starf hans í þágu félagsins.“

Það eru hjónin Kristján Gíslason og Ásdís Rósa Baldursdóttir sem að standa að baki styrktarsjóðs Hringfarans en með framlagi sínu vilja þau bæði styðja við unga iðkendur Þróttar og heiðra Ingva fyrir hans framlag í gegnum tíðina.  

„Ingvi hefur verið Þróttari alla sína ævi og lagt félaginu lið sem leikmaður og þjálfari. Síðustu 20 ár hefur hann verið stoð og stytta við uppbyggingu starf Þróttar og lagt ómetanlegt starf af mörkum í þágu ungs knattspyrnufólks. Hann hefur jafnframt starfað sem kennari við Langholtsskóla um árabil,“ segir meðal annars í tilkynningu Þróttar. Hlýja Ingva og góðvild í garð yngri iðkenda hafi skilið eftir sig fjölmargar góðar minningar hjá þeim sem ólust upp hjá félaginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×