Atvinnulíf

Fjár­hagsáhyggjur starfs­fólks tvö­faldar: Vinnan og heima

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Þegar herpir að beggja megin borðsins upplifir starfsfólk oft tvöfaldar fjárhagsáhyggjur: Annars vegar þær sem snúa að þeim sjálfum og þeirra heimili en hins vegar vinnustaðnum sem flestu fólki finnst einmitt svo vænt um.
Þegar herpir að beggja megin borðsins upplifir starfsfólk oft tvöfaldar fjárhagsáhyggjur: Annars vegar þær sem snúa að þeim sjálfum og þeirra heimili en hins vegar vinnustaðnum sem flestu fólki finnst einmitt svo vænt um. Fréttamyndir/Vísir

Það létti mörgum þegar samkomulag náðist í höfn á elleftu stundu í gær. Og þegar andrúmsloftið er þungt eða skýjað virðist fram undan er það góð tilfinning að finna létti, upplifa eitthvað jákvætt.

Því eðlilega hefur staðan í samfélaginu áhrif á okkur öll. Fyrirtæki eru að upplifa samdrátt, uppsagnir eru tíðar, áframhaldandi 8% stýrivextir og flestir gætu eflaust sagt að það sé eitthvað farið að herpa í skóinn.

Fjárhagsáhyggjur þurfa nefnilega ekki alltaf að snúast um að við séum að fara á hausinn eða að allt sé að fara á versta veg. En þær geta svo sannarlega látið til sín taka í tíðaranda eins og nú er.

Það er hins vegar önnur og fínlegri tilfinning sem sjaldan er rædd. En hún er togstreitan á milli samkenndar og eigin afkomu.

Jú, sjáðu til…

Flest fyrirtæki á Íslandi eru lítil og meðalstór. Þetta eru ekki bara einhverjir staðir sem við mætum á, heldur staðir sem okkur þykir oftast vænt um og bindumst tilfinningalegum böndum. 

Í vinnusálfræði er oft talað um sálfræðilega eignaraðild (psychological ownership) – sem nær einmitt að lýsa því svo vel hversu þýðingarmikill vinnustaðurinn og samstarfsfólkið okkar er: Við viljum svo innilega að allt gangi vel.

Með öðrum orðum:

Okkur þykir vænt um vinnustaðinn okkar og getum því haft áhyggjur af því þegar blikur eru á lofti.

En þegar samdráttur verður, áætlanir ganga ekki eftir og stjórnendur sitja á tíðari fundum á bak við luktar dyr, finnum við spennu í loftinu sem samkvæmt rannsóknum dregur úr orku okkar. Á ensku er oft talað um þetta sem emotional contagion, eða tilfinningalegt smit.

Í þessari stöðu - og í raun stöðunni sem nú er uppi - getur launafólk lent í ákveðinni klemmu. Svíður undan hækkandi reikningum og kostnaði heima fyrir á sama tíma og vinnustaðurinn okkar er augljóslega líka að glíma við sitt.

Fjárhagsáhyggjur geta því haft margvíslegar birtingarmyndir en rannsóknir fræðimanna við Harvard og Princeton sýna að þegar hugurinn okkar festist í, má segja, marglaga pælingum (við höfum áhyggjur af okkur sjálfum en líka vinnustaðnum) skerðist vinnsluminnið, við verðum fljótari að þreytast, pirrast og missa einbeitingu.

Góðu ráðin þessi vikulok snúast um hvernig við getum varið orkuna okkar nú þegar þrengir að beggja megin borðsins og nokkuð fyrirséð er að kaldur vetur er fram undan:

1. Einfaldaðu vinnudaginn

Hafðu í huga að áhyggjur fylla í ákveðið rými í huganum þannig að vinnsluminnið okkar getur verið fljótt að fyllast. Reyndu að einfalda vinnuna, til dæmis með því að hugsa ekki um nokkur önnur verkefni á meðan þú ert á fundi eða að vinna í einu verkefni. Að skrifa hlutina niður léttir líka á taugakerfinu.

2. Fyrir hádegi

Það er eðlilegt að dómgreind og sjálfsstjórn þverri undan álagi. Að nýta okkar ferskustu dagtíma til að leysa flókin mál, skrifa mikilvægan texta eða eiga krefjandi samtal við samstarfsmann eða viðskiptavin er því upplagt að setja á dagskrána frekar snemma dags. Eftir miðjan dag er líklegra að þreyta og vanstillt taugakerfi leiði til fljótfærni eða styttri þráðar.

3. Mundu hvar þín ábyrgð endar

Það er mannlegt og eðlilegt að bera umhyggju fyrir vinnustaðnum sínum og samstarfsfólki. En ef þú situr ekki í brúnni berð þú ekki ábyrgð á heildarrekstrinum. 

Leyfðu þér að setja skýr mörk: Gerðu þitt besta á vinnutíma, en lokaðu tölvunni þegar vinnudegi lýkur og verndaðu hvíldina heima. Rekstrarvandi fyrirtækisins leysist hvorki á kvöldin né á koddanum þínum í nótt.


Tengdar fréttir

Þegar allt er að fara fjandans til…

Fólk var orðið langþreytt á stöðugu gargi um viðræður af eða á við ESB: Já eða Nei. Þegar gengið var að kjörborðinu 29. ágúst önduðu margir léttar, einfaldlega dauðfegnir að þeirri hringiðu væri lokið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×