Rektor Cornell-háskóla rífur þögnina Freyja Þórisdóttir skrifar 4. október 2026 10:30 Rektor Cornell-háskóla hefur heitið auknu gagnsæi en áður hafði háskólinn gefið út, eftir að málið komst í heimsfréttirnar, að málið yrði tekið til skoðunar að nýju. AP Michael Kotlikoff, rektor Cornell-háskóla, hefur tjáð sig um hópnauðgun á konu í skólanum árið 2024. Hann segir málið vekja verulegan óhug og hefur heitið því að aðstoða við aukið gagnsæi í ljósi vaxandi reiði vegna meðferðar skólans á málinu.
Kemur þetta fram í átta mínútna löngu myndbandi sem birt var á vef skólans en þar segist Kotlikoff fá „verki í hjartað þegar ég hugsa um það sem hún upplifði“. Vekji upp spurningar Hann lýsti síðustu viku sem einni þeirri erfiðustu í sögu háskólans og sagði að hún myndi hafa áhrif á háskólann um ókomin ár. „Hún vekur upp átakanlegar og erfiðar spurningar um kynferðisofbeldi, mannfyrirlitningu og þætti í partímenningu, áfengis- og vímuefnaneyslu,“ sagði hann. Hér fyrir neðan má sjá hluta af myndbandinu sem birt var á síðu háskólans. Hópnauðgunin á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralagsins Chi Phi við skólann þann 19. október 2024. Sjö menn eru sakaðir um að nauðga konunni klukkustundum saman. Ekki kært í málinu Fram hefur komið að konan, sem í dómsskjölum er nefnd Jane Doe, hafi tilkynnt nauðgunina til lögreglu og skólans nokkrum vikum eftir árásina en saksóknari í Tompkins-sýslu ákvað að ákæra ekki í málinu. Mennirnir sættu agaviðurlögum í skólanum eins og að taka aukakúrs eða skrifa ritgerð auk þess sem einn var rekinn úr skólanum og einhverjir þeirra tímabundið. Þá var greint frá því að mennirnir hefðu auglýst það í hópspjalli að konan væri uppi í húsinu og öðrum mönnum var boðið að vera með. Samkvæmt því sem hefur komið fram voru 57 karlmenn í spjallinu og sjö tóku þátt. Enginn þeirra 57 sem sáu boðið tilkynnti það. Athygli á meðferð Cornell-háskóla á málinu jókst eftir að Kathy Hochul, ríkisstjóri New York, sagði að nýbirtar upplýsingar hefðu grafið undan trausti hennar á saksóknara á svæðinu, sem upphaflega neitaði að gefa út ákæru. Hochul skipaði í kjölfarið Letitiu James ríkissaksóknara sem sérstakan saksóknara til að taka yfir sakamálarannsóknina og sagði að hún myndi „ekki leyfa neinum að sópa þessu máli undir teppið“. „Unga konan sem er miðpunktur þessa máls á skilið að vita að öllum staðreyndum verður snúið við og réttlætinu fylgt eftir,“ sagði Hochul í yfirlýsingu.
Háskólar Bandaríkin Tengdar fréttir Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Saksóknarar í New York-ríki hafa ákveðið að taka aftur upp rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum árið 2024. Þolandi höfðaði fyrr í þessum mánuði einkamál. Málið hefur vakið mikla athygli og reiði en sjö ungir menn eru sakaðir um að hafa nauðgað konunni í sameiningu klukkustundum saman og að hafa deilt upplýsingum um það á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að hvetja aðra til að taka þátt. 28. september 2026 10:58 Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Cornell-háskóli hefur samþykkt að gera óháða rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralags við skólann fyrir um tveimur árum. Háskólinn hefur samþykkt að ráða utanaðkomandi lögfræðinga. Kathy Hochul, ríkisstjóri New York-ríkis, sagði í gær að hún hefði kallað eftir því og að forseti skólans hefði samþykkt það. 1. október 2026 08:07 Mest lesið Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Innlent Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Erlent Katla skelfur Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Erlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Fleiri fréttir Rektor Cornell-háskóla rífur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Sjá meira
Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Saksóknarar í New York-ríki hafa ákveðið að taka aftur upp rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað við Cornell-háskóla í Bandaríkjunum árið 2024. Þolandi höfðaði fyrr í þessum mánuði einkamál. Málið hefur vakið mikla athygli og reiði en sjö ungir menn eru sakaðir um að hafa nauðgað konunni í sameiningu klukkustundum saman og að hafa deilt upplýsingum um það á samfélagsmiðlum í þeim tilgangi að hvetja aðra til að taka þátt. 28. september 2026 10:58
Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Cornell-háskóli hefur samþykkt að gera óháða rannsókn á hópnauðgun sem á að hafa átt sér stað í húsnæði bræðralags við skólann fyrir um tveimur árum. Háskólinn hefur samþykkt að ráða utanaðkomandi lögfræðinga. Kathy Hochul, ríkisstjóri New York-ríkis, sagði í gær að hún hefði kallað eftir því og að forseti skólans hefði samþykkt það. 1. október 2026 08:07