Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Sunna Sæmundsdóttir skrifar 1. október 2026 13:31 Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Anton Brink Einungis vika er til stefnu til að bregðast við forsendubresti kjarasamninga og framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að væntingar séu um útspil frá stjórnvöldum er varðar gjaldskrárhækkanir. Ekkert svigrúm sé í raun til staðar og tvísýnt með framhaldið. Formaður VR segist ekki bjartsýn. „
Viðsemjendur okkar eru að kalla eftir viðbragði við forsendubrestinum en við erum á hinn bóginn líka að upplifa forsendubrest þar sem verðmætaaukningin sem átti að standa undir kjarasamningunum, hún hefur ekki skilað sér og vextir eru orðnir hærri, verðbólguhorfur ekkert allt of góðar,“ segir Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, um stöðuna í samtali um viðbrögð við forsendubresti kjarasamninga. Bjarni segir þetta gera það að verkum að atvinnurekendur telji sig ekki geta brugðist við kröfu um viðbót inn í samningana. „Við teljum að það sé búið að ráðstafa öllu svigrúmi sem er til staðar og rúmlega það og svo fáum við skattahækkanir inn í þessa stöðu frá ríkisstjórninni.“ Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sagði í Bítinu á Bylgjunni í morgun að verkalýðshreyfingin hefði sett fram þá hugmynd að fá inn nýja skoðunarpunkta í samninginn. „Þannig að ef að þetta verkefni gengur ekki eftir á vordögum og svo á haustdögum að þá höfum við einhverja útleið til þess að tryggja það að við séum ekki að setja stóra hópa okkar fólks í kjararýrnun áfram,“ sagði Halla. Bjarni segir erfitt að samþykkja ný forsenduákvæði út frá mögulegri verðbólguþróun á næsta ári, það þyrfti í það minnsta að vera raunhæft. „Annað myndi bara jafngilda því að við værum að taka ákvörðun um að stytta samningana,“ segir Bjarni. „Öll svona óvissa er óheppileg að okkar mati.“ Verkalýðsfélögin hafa frest til 8. október til að segja samningum upp og Halla segist meta stöðuna þannig í dag að líklegra sé að kjarasamningum verði sagt upp. Ekki sé þó öll von úti. „Það er þungt í mér hljóðið, ég bara skal gangast við því. Ég er ekki mjög bjartsýn eins og staðan er núna. En vonandi fáum við einhverja viðleitni frá viðsemjendum okkar,“ sagði Halla. Aðgerðir vegna verðbólgu á borðinu Bjarni bendir á að þríhlíða samtal þeirra og stjórnvalda standi einnig yfir. „Stjórnvöld hafa verið að láta skína í vilja til þess að styðja við framhald samninganna.“ Það glittir í eitthvað frá stjórnvöldum? „Já, við höfum setið fundi með þeim og þau hafa verið svona að láta í það skína að ef að niðurstaða verður að segja ekki upp samningnum að þá gætu einhverjar stuðningsaðgerðir komið til skoðunar og sérstaklega eitthvað sem að myndi styðja við baráttuna gegn verðbólgunni. Við erum kannski með væntingar um að það gæti komið útspil sem að snerti gjaldskrár og annað þess háttar,“ segir Bjarni. Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra var í viðtali við fréttastofu í gær spurður út í ummæli formanns efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis sem hélt því fram að 5,2% gjaldahækkun í fjárlagafrumvarpinu væri taktík til að fá aðila að borðinu í kjaraviðræðum, svo hafi staðið til að draga síðar úr hækkuninni. Daði Már sagði þetta ekki rétt en þó sjálfsagt að ríkið kæmi með eitthvað á borðið. „Til dæmis vegna þess að við værum að liðka fyrir kjarasamningum,“ sagði Daði og svaraði því játandi að til greina kæmi að lækka boðaða gjaldahækkun.
Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Rekstur hins opinbera Vinnumarkaður Fjármál heimilisins Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Sjá meira