Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar 29. september 2026 07:31 Skipulagsmál hafa lengi verið eitt heitasta umræðuefnið á kaffistofum borgarbúa. Það er ekkert skrítið. Fáar ákvarðanir borgarinnar hafa jafn bein áhrif á daglegt líf okkar. Skipulagið ræður miklu um það hvort við komumst greiðlega til vinnu, finnum bílastæði við heimilið, njótum birtu í íbúðinni og hvort uppbygging íbúða haldi í við þarfir borgarbúa. Undanfarin ár hefur gagnrýnin meðal annars beinst að of mikilli þéttingu á ákveðnum svæðum, fækkun bílastæða og því að mikilvægar samgönguframkvæmdir hafi setið of lengi á hakanum. Nýr meirihluti tók við stjórn Reykjavíkurborgar í vor með aðra nálgun á skipulags- og samgöngumál. Segja má að nýtt tímabil sé hafið í skipulagsmálum borgarinnar. Ekki aðeins vegna fyrirheita á blaði heldur vegna þess að breytingarnar eru þegar hafnar. Nýjar áherslur í skipulagsmálum Við höfum ekki setið auðum höndum fyrstu 100 dagana. Hætt hefur við þéttingu í Grafarvogi sem mikil óánægja hafði skapast um á meðal íbúa og hafin er endurskoðun á skipulagi Suðurlandsbrautar. Fyrri áætlanir gerðu ráð fyrir verulegum þrengingum á umferð og bílastæðum á svæðinu og sættu mikillar gagnrýni, meðal annars frá fasteignaeigendum og rekstraraðilum við götuna. Bílastæðamál borgarinnar eru jafnframt komin í heildarendurskoðun og fyrsti áfanginn þegar orðinn að veruleika. Aðskotahlutir hafa verið fjarlægðir úr bílastæðum, gjaldskyldutími styttur og sólarhringsopnun bílahúsa samþykkt. Þá hafa reglur um fjölda bílastæða við nýbyggingar verið afnumdar. Í sama anda er unnið að endurskoðun skipulags Keldnalands og nýs hverfis í Úlfarsárdal. Þar þarf uppbyggingin að taka mið af daglegu lífi fólks, meðal annars með því að tryggja næg bílastæði við íbúðir, en fyrri skipulagsdrög gerðu ráð fyrir takmörkuðum fjölda stæða og að stórum hluta í bílahúsum. Greiðari leið fyrir borgarbúa Skipulag snýst þó ekki aðeins um hús og bílastæði. Það snýst líka um að komast á milli staða. Ryðja þarf úr vegi þeim flöskuhálsum sem borgarbúar sitja fastir í á hverjum degi og færa stór samgönguverkefni hraðar af teikniborðinu og í framkvæmd. Þar má nefna Miklubrautargöng, Sundabraut og nauðsynlegar úrbætur á mikilvægum gatnamótum við Sprengisand. Almenningssamgöngur verða líka að vera í forgrunni. Ferðavenjukannanir hafa ítrekað sýnt að margir væru tilbúnir að ferðast meira með almenningssamgöngum ef þjónustan væri betri, tíðnin meiri og ferðatíminn styttri. Fólk á að hafa raunverulegt val um ferðamáta. Það skýtur því skökku við ef á sama tíma á að draga úr fjármögnun ríkisins til samgönguuppbyggingar á höfuðborgarsvæðinu. Stór verkefni verða ekki að veruleika með góðum fyrirheitum einum saman. Þau þarf líka að fjármagna. Auðvitað verða aldrei allir sammála um hvert hús, hverja götu eða hvert bílastæði. Skipulagsmál kalla eðlilega fram ólíkar skoðanir enda snerta þau daglegt líf okkar allra. En við eigum að læra af reynslu síðustu ára. Skipulag borgarinnar þarf að móta í meiri sátt við íbúa, uppbyggingaraðila og fyrirtæki, með meira samtali, meiri samvinnu og betri skilningi á því hvernig fólk raunverulega lifir, starfar og ferðast um borgina. Höfundur er fyrsti varaborgarfulltrúi Framsóknar og situr í Umhverfis- og skipulagsráði Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnea Gná Jóhannsdóttir Skipulagsmál Reykjavík Samgöngumál Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar