Mótmæli í Texas vegna skotárásar ICE-liða Smári Jökull Jónsson skrifar 21. september 2026 06:33 Fulltrúi ICE á vettvangi skotárásarinnar í nótt. Vísir/Getty Mótmælendur söfnuðust saman í Austin í Texas í gær eftir að fulltrúi innflytjenda- og tollagæslunnar ICE skaut mann á götu úti. Maðurinn var fluttur á sjúkrahús og borgaryfirvöld krefjast nú svara frá alríkisyfirvöldum.
Maðurinn sem skotinn var, Wilber Rafael Garces Perez, kemur frá Venesúela en skotárásin átti sér stað rétt eftir hádegi að staðartíma. Borgaryfirvöld hafa ekki staðfest hvort maðurinn hafi verið skotmark aðgerða ICE en Kate Lincoln-Goldfinch sagði í samtali við fjölmiðla að Garces Perez væri í haldi ICE. Í frétt BBC kemur fram að tugir mótmælenda söfnuðust saman á vettvangi, veifandi fánum Mexíkó og Gvatemala og með skilti þar sem þess var krafist að ICE hyrfi úr borginni. Mótmælendur voru fljótir á vettvang skotárásarinnar.Vísir/Getty Lögreglan í Austin staðfesti við CBS að maðurinn hefði slasast og verið fluttur á sjúkrahús. Enginn lögreglumaður borgarinnar átti þátt í aðgerðunum. Krefst óháðrar rannsóknar Borgarstjórinn og demókratinn Kim Watson sagði á blaðamannafundi að borgarbúar ættu rétt á að vita hvað hefði gerst og að „finna til öryggis í borginni sinni.“ Þá sagði hann jafnframt að aðgerðum ICE hefði fjölgað verulega í borginni undanfarnar vikur og kvaðst ánægður að borgin fengi að hafa aðkomu að rannsókn málsins. Greg Casar, þingmaður demókrata í Texas, hefur krafist tafarlausar og óháðrar rannsóknar sem og að myndefni úr búkmyndavélum lögreglumanna verði birt. Skotárásin í nótt átti sér stað nokkrum mánuðuum eftir að Lorenzo Salgado Araujo, íbúi í Houston, lést eftir að fulltrúi ICE skaut hann. Samkvæmt heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna var hann ekki skotmark rannsóknar ICE heldur skotinn eftir að bíll hans hafði verið stöðvaður af fulltrúum ICE. „Hann skilur þetta betur en nokkur annar“ Þá ákærði bandaríska dómsmálaráðuneytið fulltrúa ICE fyrr í mánuðinum fyrir að ljúga um skotárás á venesúelskan innflytjanda í Minnesota en stjórn Donald Trump hefur hert mjög á aðgerðum gegn ólöglegum innflytjendum og hefur það leitt til ólgu í fjölmögum borgum. Stórnvöld hafa varið aðgerðirnar og sagt þær nauðsynlegar vegna almannaöryggis og til að framfylgja loforðum um fjöldabrottvísanir. Mannréttindasamtök segja aðgerðir ICE hins vegar að brjóta gegn tjáningarfrelsi og lögum, og demókratar krefjast umbóta, meðal annars að fulltrúar beri búkmyndavélar og að þeim verði bannað að hylja andlit sín í aðgerðum. Alríkisfulltrúi gengur framhjá bíl þar sem sjá má göt eftir byssukúlur á rúðunni.Vísir/Getty Maria Elvira Salazar, þingkona repúblikana í Flórída sem hefur gagnrýnt aðgerðirnar, birti í vikunni auglýsingu þar sem hún gagnrýnir að fólk án sakaferils sé handtekið. Í viðtali við Face the Nation á CBS sagðist hún hafa rætt við forsetann og taldi hann myndu halda landinu á réttri braut. „Hann skilur þetta betur en nokkur annar,“ sagði hún.
Bandaríkin Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Mest lesið Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Veður Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Innlent „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Innlent Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni Innlent Kallar fylkiskosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Erlent Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Innlent „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Innlent Fleiri fréttir Mótmæli í Texas vegna skotárásar ICE-liða Kallar fylkiskosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Glæpahópurinn 764: Átján ára í tíu ára fangelsi fyrir tilraunir til manndráps og nauðgun á netinu Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Trump rekur CNN og fleiri fjölmiðla úr Hvíta húsinu Andersson fær stjórnarmyndunarumboðið Hákarl banaði sundmanni Segir „íslamista“ skýra velgengni vinstrimanna Danskar F-35 lentu á Grænlandi í fyrsta sinn Kínverjar leituðu til Írana fyrir hönd Sáda Norðmenn kynna „stærstu breytingarnar frá upphafi“ á EES samstarfinu Segir Karl hafa hljómað himinlifandi eftir dauða Díönu Slapp við fangelsisvist eftir að hafa notað maura í matargerð Rússar kjósa sér 450 skoðanabræður Rússar hafi skipulagt fjölþáttaárás gegn Póllandi Vill fara með Svíþjóð í nýja átt Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kristersson sagði af sér eftir að öll atkvæði voru talin „Þetta snýst um fullveldi“ Þvertaka fyrir að Karl hafi sagt að Díana myndi gleymast fljótt Sænskur stórglæpon handsamaður í Marokkó Sjá meira