„Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Valur Páll Eiríksson skrifar 19. september 2026 17:39 Óskar Hrafn var ekki glaður eftir leik dagsins. Vísir/Anton Brink Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var svekktur eftir tap liðsins fyrir Víkingi í Bestu deild karla í fótbolta í dag. Víkingar unnu leikinn 2-1 og tryggðu sér þannig Íslandsmeistaratitilinn á Meistaravöllum.
Víkingar unnu leik dagsins 2-1 og voru töluvert sterkari aðilinn í hörkuleik. KR-ingar komust yfir en eftir það voru gestirnir töluvert sterkari aðilinn. Aðspurður um hvort það væri þungt að kyngja tapi dagsins sagði Óskar: „Nei, hvað meinarðu, þungt að kyngja. Ég ætla að óska Víkingi til hamingju, ég ætla að byrja á því. Óska þeim innilega til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn.“ „Þeir eru vel að því komnir en þetta er ömurleg, ömurleg tilfinning að horfa upp á þetta lið, þessa stuðningsmenn. Lið sem að ég er búinn að elda grátt silfur saman við í mörg ár. Ég hef alveg einstaklega lítinn smekk fyrir þeim, þó ég beri virðingu fyrir þeim árangri sem þeir hafa náð. Þá hef ég engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér innan vallar eða utan. Þá er það bara ömurleg tilfinning, eins vond og hún verður,“ segir Óskar. Ræðandi um Víkingana vísar hann líklega til þess að mikil læti voru bæði á meðan leik stóð og eftir leik. Heitt var í hamsi undir lok leiks þar sem heil fimm rauð spjöld fóru á loft. Þá voru stimpingar milli manna í KR-heimilinu eftir leik. Aðspurður um hvað hafi gengið á segir Óskar: „Það veit ég ekki. Ég hef ekki hugmynd um það. En vonandi er þetta bara það sem koma skal. Það verður bara fárviðri þegar þessi lið mætast og ég ætla að vona að það verði spólað upp á næsta ári ennþá meira, það verði meiri söngvar sungnir um mig og fleiri og það verði allt geðveikt,“ segir Óskar. Þú hefur ekki mikinn smekk fyrir Víkingunum? „Þú heyrðir hvað ég sagði áðan.“
KR Besta deild karla Íslenski boltinn Víkingur Reykjavík Mest lesið Leik lokið: Tindastóll-Álftanes 105-108 | Spennutryllir í Síkinu Körfubolti Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn Víkingar láta Einar Guðna fara Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn KR - Sindri 107-102 | Hetjuleg barátta dugði skammt Körfubolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn Fleiri fréttir Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Sjá meira