Innlent

Upp­sagnir hjá dóms­mála­ráðu­neytinu

Tómas Arnar Þorláksson skrifar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra.
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra.

Sex stöðugildi hafa verið lögð niður og var starfsfólki hjá dómsmálaráðuneytinu sagt upp í dag. Freyr Gígja Gunnarsson, upplýsingafulltrúi ráðuneytisins, staðfestir þetta í samtali við fréttastofu.

Freyr segir að í raun hafi tvö stöðugildi verið felld niður, ekki sé verið að ráða í tvö önnur stöðugildi þar sem starfsmenn sögðu starfi sínu lausu fyrir skömmu og þá eru samningar við tvo starfsmenn að renna út sem verða ekki framlengdir.

Samkvæmt heimildum var starf launafulltrúa ráðuneytisins lagt niður. Verkefni hans færast til annarra starfsmanna ráðuneytisins og til annarra stofnanna. Til að mynda færist hluti starfsins til Fjársýslu ríkisins.

Starf ritara ráðuneytisstjóra er einnig lagt niður og verkefni hans fært niður til annarra starfsmanna ráðuneytisins. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×