Tvö alvarleg atvik hjá dagforeldri skráð Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. september 2026 22:46 Bæði atvikin vörðuðu fjölda barnanna. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty Gerðar voru athugasemdir um að aðbúnaði barna væri ábótavant á starfsstöð dagforeldris 35 sinnum árið 2025. Í tveimur tilfellum var barn talið í hættu statt. Farið var í óboðaðar eftirlitsheimsóknir á árinu.
Þetta kemur fram í minnisblaði til skóla- og frístundaráðs Reykjavíkurborgar sem birt var í fundargerð ráðsins. Þar kemur fram að einn af þremur þáttum lögbundins eftirlits með daggæslu í heimahúsum er að fara í óboðaðar heimsóknir. Úttektinni í óboðuðu heimsóknunum er skipt í þrennt, eftirlit án athugasemda, aðbúnaði barna ábótavant og svo barn telst í hættu statt. Tvisvar sinnum voru gerðar athugasemdir undir þriðja liðnum og snéru bæði tilfellin að fjölda barna í vistun. Brugðist var hratt við athugasemdum eftirlitsaðila samkvæmt minnisblaðinu. Gera má ráð fyrir því að börnin hafi því verið umfram það sem leyfi kveður á um. Þá sneru flestar athugasemdirnar, alls fjórtán, að öryggishnappi dagforeldra sem dagforeldrinu ber að hafa á sér á opnunartímum daggæslunnar. „Tíu athugasemdir sneru að því að yfirfara þyrfti slökkvitæki, sex athugasemdir voru gerðar vegna innihalds sjúkrakassa og fimm athugasemdir voru gerðar vegna reykskynjara,“ segir í minnisblaðinu. Dagforeldri hefur fimm virka daga til að gera athugasemdir við skýrsluna og ráðist það strax í úrbætur telst málinu lokið. Bregðist það ekki við er málinu fylgt eftir með heimsókn til dagforeldra innan þriggja vikna. Í janúar 2025 voru 73 dagforeldrar með starfsleyfi til daggæslu á 51 starfsstöð. Þeim hefur fækkað á milli ára en í byrjun þessa árs voru dagforeldrarnir 69 starfandi á 47 starfsstöðum. Þar af voru átján starfsstöðvar þar sem tveir dagforeldrar voru saman og tvær þar sem þrír dagforeldrar störfuðu saman.
Börn og uppeldi Reykjavík Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira