Viðskipti innlent

Flug­virkjar fara í verk­fall

Bjarki Sigurðsson skrifar
Aðgerðirnar ná til félagsmanna Flugvirkjafélagsins sem starfa hjá Icelandair. 
Aðgerðirnar ná til félagsmanna Flugvirkjafélagsins sem starfa hjá Icelandair.  Vísir/Vilhelm

Flugvirkjafélag Íslands (FVFÍ) hefur tilkynnt Icelandair að flugvirkjar félagsins sem starfa hjá fyrirtækinu muni hefja ótímabundnar verkfallsaðgerðir miðvikudaginn 23. september næstkomandi. 

Þetta kemur fram í tilkynningu Icelandair til Kauphallar.

Atkvæðagreiðsla félagsmanna hófst á föstudag og lauk á hádegi í dag. Skömmu eftir að tilkynning Icelandair barst til Kauphallar birti FVFÍ stutta færslu um atkvæðagreiðsluna á vef sínum. Þar segir að kjörsókn hafi verið 92 prósent og að 88,3 prósent þeirra sem greiddu atkvæði hafi samþykkt vinnustöðvunina. 

„Flugvirkjar starfandi hjá Icelandair hafa staðið í kjaradeilu við fyrirtækið undanfarna mánuði. Kjarasamningar urðu lausir um síðustu áramót en viðræður aðila hófust í nóvember 2025. Þann 13. febrúar vísaðu Samtök atvinnulífsins, sem fara með samningsumboð fyrir hönd Icelandair, deilunni til ríkissáttasemjara. Þrátt fyrir milligöngu ríkissáttasemjara hefur lítið miðað í deilunni. Eftir fund hjá ríkissáttasemjara þann 22. júní slitnaði upp úr viðræðum milli aðila,“ segir í tilkynningunni frá FVFÍ.

Í tilkynningu Icelandair segir að náist ekki að semja við flugvirkjana áður en verkfallsaðgerðir hefjast muni flugáætlun þeirra verða fyrir miklum áhrifum. Á þessu stigi sé ekki hægt að segja til um hve mikil áhrif boðað verkfall muni hafa á fjárhag félagsins. 

Fréttin var uppfærð kl. 14:44 með tilkynningu FVFÍ.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×