Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Kjartan Kjartansson skrifar 11. september 2026 13:18 Sviðin píla úr rafbyssu lögreglu í kirkjugarðinum í Keflavík eftir að lögreglumenn skutu á mann sem hafði hellt yfir sig bensíni í maí. Vísir/Bjarni Nefnd um eftirlit með lögreglu telur ekki tilefni til þess að aðhafast frekar vegna þess að lögregla hafi skipað manni að eyða upptöku af því þegar kviknað í manni eftir að lögreglumenn skutu hann með rafbyssu. Lögreglan telur að myndbandið hefði verið sönnunargagn í rannsókn á málinu.
Lögreglumaður skipaði vitni að því þegar eldur kviknaði í manni í kirkjugarði í Reykjanesbæ í maí að eyða myndbandsupptöku sem hann gerði á síma sínum. Vitnið sagði fjölmiðlum að hann hefði byrjað að taka upp þar sem því þótt lögreglumenn ganga hart fram gegn manninum sem var óvopnaður en með íkveikjuvökva á nærfötunum einum fata. Kviknað hefði í manninum eftir að lögreglumenn skutu hann með rafbyssu. „Þá sé ég manninn, það er bara byrjað að kvikna í honum og hann er allur í ljósum loga og það er bara, þetta var alveg rosalegt að sjá þetta og svo bara byrjar meiri og meiri eldur og hann byrjar að öskra og ég veit ekki hvað,“ sagði Ísak Berglindarson við fréttastofu 19. maí. Lögreglan á Suðurnesjum bar fyrir sig hagsmuni mannsins sem kviknaði í um ástæðu þess að lögreglumenn skipuðu Ísaki að eyða upptökunni úr síma sínum. Myndbandið sönnunargagn í málinu Nefnd um eftirlit með lögreglu hóf frumkvæðisathugun á skipunum lögreglumannanna um að Ísak eyddi myndbandinu í lok maí. Hún segir í úrskurði sem birtist í síðustu viku að lögreglan hafi ekki heimild til þess að krefjast þess að almenningur eyði upptökum af aðgerðum hennar. Hins vegar taldi nefndin ekki tilefni til að aðhafast frekar í ljósi þess að lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefði þegar brugðist við. Samkvæmt embættinu hafi það verið mistök hjá lögreglumönnum að krefjast þess að upptökunni yrði eytt. Rétt hefði verið að haldleggja símann og afrita myndefnið sem sönnunargagn í málinu. Í framhaldinu hafi embættið áréttað við lögreglumenn þess að þeir hefðu ekki heimild til þess að láta fólk eyða upptökum. Miðað við túlkun embættisins sjálfs létu lögreglumennirnir því eyða sönnunargagni um hugsanlega refsivert brot eða starfshætti sem hefðu getað leitt til viðurlaga fyrir þá sjálfa. „Eftir samtal yfirmanna LSS við umrædda lögreglumenn er ljóst, að mati LSS, að fyrir þeim vakti ekkert annað en að vernda viðkvæma persónulega hagsmuni, mannlega reisn og friðhelgi einkalífs þess einstaklings sem slasaðist alvarlega í málinu,“ sagði lögreglustjórinn í svari til eftirlitsnefndarinnar. Héraðssaksóknari rannsakar aðra anga atviksins Rannsókn stendur enn yfir á atvikinu hjá héraðssaksóknara. Nefnd um eftirlit með lögreglu segist hafa aðgang að upptökum úr búkmyndavélum lögreglumanna vegna þeirrar rannsóknar. Maðurinn sjálfur, sem hlaut alvarleg brunasár á helmingi líkamans, neitaði því síðar í viðtali að hann hefði sjálfur borið eld að sér. Hann hefði hellt yfir sig eldsneyti og verið með kveikjara en eldurinn hefði kviknað þegar lögreglumenn skutu hann með rafbyssu. Lögreglan sagði manninn hafa hafa verið ógnandi, ekki farið eftir fyrirmælum og hótað að kveikja í sér. Hann hefði borið eld að sér sjálfur eftir að hann var skotinn með rafbyssunni. Ólíklegt væri að kviknað hefði í út frá rafbyssuskotinu.
Lögreglan Rafbyssur Reykjanesbær Stjórnsýsla Mannréttindi Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira