Viðskipti innlent

Guð­mundur Daði ráðinn for­stjóri Gangna og brúa

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Guðmundur Daði Rúnarsson, var áður framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli.
Guðmundur Daði Rúnarsson, var áður framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli. Vísir/Bjarni

Guðmundur Daði Rúnarsson hefur verið ráðinn forstjóri nýstofnaða innviðafélagsins Göng og brú ohf. Tilgangur félagsins er að flýta fyrir samgönguframkvæmdum. 

Stjórn félagsins tók ákvörðun um ráðninguna að undangengnu opnu ráðningarferli.

Göng og brú ohf. er sjálfstætt rekstrar-, fjármögnunar- og eignarhaldsfélag í eigu íslenska ríkisins. Það var stofnað til þess að sjá um samgönguframkvæmdir stjórnvalda, skapa farveg fyrir stöðuga fjármögnun slíkra verkefna og tryggja hagkvæma, faglega og skilvirka verkefnastjórn við undirbúning og framkvæmd þeirra.

Guðmundur Daði býr yfir víðtækri reynslu af stjórnun, stefnumótun og framkvæmd umfangsmikilla innviðaverkefna. Hann starfaði áður sem framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli. Þá leiddi Guðmundur Daði uppbyggingu og framkvæmdir Keflavíkurflugvallar samfleytt frá árinu 2016. Guðmundur Daði er verkfræðingur að mennt frá Danska Tækniháskólanum í Kaupmannahöfn.

„Ég er þakklátur fyrir traustið og hlakka til að leiða innviðafélagið Göng og brú. Mér líst vel á upplegg ríkisstjórnarinnar um að flýta uppbyggingu á stærri samgönguinnviðum með þessum hætti. Þá tel ég að reynsla mín frá Isavia af því að leiða uppbyggingu innviða og ljúka framkvæmdum á réttum tíma, og á kostnaðaráætlun, muni nýtast vel á þessum nýja vettvangi,“ er haft eftir Guðmundi Daða í fréttatilkynningu. 

Meðal fyrstu verkefna verður kynningar- og markaðsdagur Ganga og brúar í næstu viku þar sem fjöldi ráðherra verður viðstaddur. Markmiðið er að kynna starfsemina fyrir erlendum og innlendum aðilum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×