Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir og Sædís Ósk Harðardóttir skrifa 11. september 2026 08:00 Ráðherra og ríkisstjórn þurfa að móta menntastefnu í raunverulegu samstarfi við kennara, fagfólk og stéttarfélög þeirra. Þrátt fyrir skýran alþjóðlegan vilja og formlegar skuldbindingar sýna evrópskar rannsóknir að skortur á fjármagni, kennurum og starfsþróun hamlar inngildingu í skólakerfum nútímans. Menntakerfi um alla Evrópu glíma við það flókna verkefni að mæta fjölbreyttum þörfum nemenda á sama tíma og opinber útgjöld til menntamála hafa víða dregist saman. Afleiðingin er sú að skólar á öllum skólastigum standa frammi fyrir sífellt umfangsmeiri áskorunum án þess að hafa aðgang að nægu fagfólki, viðeigandi úrræðum eða nauðsynlegum búnaði. Jafnframt ríkir víða alvarlegur mönnunarvandi í kennarastéttinni. Skortur á fagmenntuðum kennurum og sérhæfðu starfsfólki torveldar skólum að veita nemendum þann stuðning sem þeir þurfa. Þetta eykur álagið á kennara sem fyrir eru, en margir þeirra hafa hvorki fengið næga starfsþróun né þau verkfæri sem þarf til að mæta fjölbreyttum og flóknum stuðningsþörfum í skólastofunni. Rannsóknir sýna að slíkt álag getur haft veruleg neikvæð áhrif á sjálfstraust kennara í starfi, starfsánægju þeirra og andlega heilsu. Inngildandi menntun er ekki aðeins lagaleg skylda. Hún er sameiginleg ábyrgð sem krefst öflugs samfélagslegs samtals, nægs fjármagns og virðingar fyrir fagþekkingu kennara. Lagalegi ramminn er skýr, meðal annars í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Inngilding verður þó aldrei tryggð með lagasetningu einni saman. Hún krefst þess að stjórnvöld, aðilar vinnumarkaðarins, stéttarfélög kennara og vinnuveitendur vinni markvisst saman. Samfélagslegt samtal og kjarasamningar eru meðal mikilvægustu tækjanna til að tryggja fullnægjandi fjármögnun, bæta starfsskilyrði og stuðla að sjálfbærri mönnun skólanna. Rannsóknir sýna jafnframt að árangursrík inngilding er ómöguleg án þess að faglegt sjálfstæði og sérþekking kennara séu virt. Kennarar þekkja nemendur sína, aðstæður þeirra og námsþarfir. Þeir þurfa því að njóta trausts og hafa svigrúm, tíma og umboð til að velja og útfæra þær faglegu aðferðir sem nýtast nemendum best. Því er brýnt að stjórnvöld setji kennarastéttina í miðju allrar menntastefnu. Án fagmenntaðra kennara, viðunandi starfsskilyrða, markvissrar starfsþróunar og nægs stuðnings verður inngildandi menntun aðeins markmið á pappír en ekki raunveruleiki í daglegu skólastarfi. Höfundar eru formaður og varaformaður Félags íslenskra sérkennara og sitja í stjórn Norrænu sérkennarasamtakanna (NFSP) og eiga sæti í Fastanefnd Evrópsku kennarasamtakanna (ETUCE) um jafnréttismál. Þær tóku þátt í evrópska samstarfsverkefninu InclEdu4AllNeeds fyrir hönd Kennarasambands Íslands og hvetja alla hagaðila menntakerfisins til að kynna sér niðurstöður og tillögur verkefnisins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar