Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Árni Sæberg skrifar 10. september 2026 13:43 Heiða Björg Hilmisdóttir, til vinstri, var borgarstjóri fimm fyrstu mánuði ársins áður en Hildur Björnsdóttir, til hægri, tók við af henni þann 2. júní. Vísir/Vilhelm/Einar Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta Reykjavíkurborgar var neikvæð um 5,5 millljarða króna á fyrri helmingi ársins. Það er 10,6 milljörðum króna lakari niðurstaða en á sama tímabili árið 2025. Í áætlun var gert ráð fyrir 6,7 milljarða króna rekstrarafgangi. Þannig er afkoman 12,2 milljörðum króna verri en búist var við.
Í tilkynningu á vef Reykjavíkurborgar segir að árshlutareikningur Reykjavíkurborgar fyrir tímabilið janúar til júní 2026 hafi verið afgreiddur í borgarráði í dag, fimmtudaginn 10. september. „Miklar áskoranir blasa við í rekstri borgarinnar, halli er af rekstri bæði samstæðu og borgarsjóðs en hagræðingaraðgerðum er ætlað að mæta hallarekstrinum,“ segir í tilkynningunni. Neikvæðar matsbreytingar upp á milljarða Rekstrarniðurstaða A- og B-hluta hafi verið neikvæð um 5,5 millljarða króna, sem sé 10,6 milljörðum króna lakari niðurstaða en á sama tímabili árið 2025. Í áætlun hafi verið gert ráð fyrir 6,7 milljarða króna rekstrarafgangi. Matsbreyting fjárfestingaeigna Félagsbústaða hafi verið neikvæð á tímabilinu um sem nemur 2,3 milljörðum króna, sem hafi haft neikvæð áhrif á niðurstöður rekstrar. Fjármagnsgjöld (nettó) hafi numið 19,7 milljörðum króna eða 5,6 milljörðum króna hærri á fyrstu sex mánuðum þessa árs en þess síðasta. Vísitala neysluverðs hafi hækkað meira frá áramótum en áætlað hafi verið eða um 3,74 prósent í stað 1,75 prósenta. Borgarsjóður rekinn með halla Rekstrarniðurstaða A-hluta hafi verið neikvæð um 3,2 milljarða króna fyrstu sex mánuði ársins, sem sé 3,2 milljörðum króna lakari niðurstaða en á sama tímabili 2025. Launaútgjöld hafi hækkað um 2,7 milljarða króna á milli ára, sem einkum megi rekja til launahækkana samkvæmt kjarasamningum. Afskriftir hafi verið 2,0 milljörðum króna yfir áætlun, sem skýrist af viðbótarafskriftum vegna fasteigna til niðurrifs, verkefna sem hætt hafi verið við, svo sem selalaugar í Húsdýragarði, og hjúkrunarheimila sem áður voru í sameiginlegri eign ríkis og borgar en fluttust 1. janúar síðastliðinn yfir til ríkisins og bókfært verð var afskrifað í samræmi við nýlega lagabreytingu. Fjármagnsgjöld (nettó) hafi numið 3,9 milljörðum króna eða 1,9 milljarði króna hærri en áætlun, sem skýrist einkum af hærri verðbólgu en áætlað var. Arður af eignarhlutum hafi numið 3,3 milljörðum króna en vaxtagjöld og verðbætur 7,6 milljörðum króna og hafi verið 2,0 milljörðum króna hærri en það sem gert var ráð fyrir. Veltufé frá rekstri hafi numið 8,6 milljörðum króna og verið 7,9 prósent í hlutfalli af tekjum tímabilsins. Mikil óvissa Loks segir að óvissa um efnahagshorfur sé enn mikil og erfið staða uppi á innlendum vinnumarkaði. Verðbólguvæntingar séu enn yfir markmiði og talin sé hætta á að verðbólga reynist meiri en spár segja til um. „Niðurstöðurnar sýna glöggt hve mikilvægt verður að ná stjórn á rekstri borgarinnar, enda er ekkert sem ógnar grunnþjónustunni meira en óábyrgur rekstur. Við höldum áfram vinnunni í hagræðingahóp og leggjum áherslu á að auka skilvirkni, draga úr sóun og bæta þjónustuna,“ er haft eftir Hildi Björnsdóttur, borgarstjóra.
Borgarstjórn Reykjavík Rekstur hins opinbera Uppgjör og ársreikningar Sveitarstjórnarmál Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Fleiri fréttir Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Sjá meira