Er í alvöru engin þörf á að laga Ísland? Þórður Snær Júlíusson skrifar 10. september 2026 12:44 „Það er engin þörf á að laga Ísland,“ sagði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, í umræðu um stefnuræðu forsætisráðherra í liðinni viku. Ræðu Þórarins Inga Péturssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, verður helst minnst fyrir eftirfarandi ummæli: „Stöðugleiki, það er ekki sókn.“ Þetta sögðu þau í tilraun til að gagnrýna ríkisstjórn sem er að ná fyrstu hallalausu fjárlögum sem lögð hafa verið fram í næstum áratug, hefur fjárfest meira í velferðarkerfum og lykilinnviðum en gerst hefur lengi, hefur stórbætt skuldastöðu ríkissjóðs og er nú að lækka vaxtakostnað hans verulega. Það var engin þörf á þessu. Stöðugleiki er bara eitthvað ofan á brauð. Þarna eru samankomnar tvær stuttar setningar frá fulltrúum flokka sem hafa meira og minna setið saman í ríkisstjórn á lýðveldistímanum og búið til kerfin sem íslenska rússíbanahagkerfið keyrir á sem kjarnar þeirra pólitík á tærari hátt og af meiri heiðarleika og hreinskilni en við erum vön. Því ber að fagna enda sýna þær kjósendum þessa lands skýra valkosti. Froða lagar ekki húsið Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn fóru með völd árum saman og stýrðu lykilráðuneytum efnahagsmála og innviða. Þeir mótuðu skattkerfið, ákváðu fjárveitingar og báru ábyrgð á forgangsröðuninni. Stjórnartíðar þeirra verður helst minnst fyrir einhverja óábyrgustu hagstjórn sem sögur fara af og ótrúlegt verkleysi á ögurstundu þangað til stjórnarháttum þeirra var hafnað afgerandi af þjóðinni með afgerandi hætti fyrir tæpum tveimur árum. Þeirra var ríkisstjórn sem náði fyrst og síðast saman um að veita tekjuhæstu hópum samfélagsins milljarða króna á ári í alls kyns skattaafslætti á meðan skattbyrði allra annarra jókst. Sem veikti velferðarkerfi og grunnþjónustu skipulega, sem rák landið í núll hagvexti á mann árum saman, sem skildi okkur eftir með mörg hundruð milljarða króna innviðaskuld og yfirdráttarreikning fyrir þetta súra partý sem telur um 866 milljarða króna á tæpum áratug. Sem stundaði froðustjórnmál þar sem öllu fögru var lofað án þess að nokkur peningur væri fyrir því. Þeim finnst ekki að það þurfi að laga neitt. Þau hafna stöðugleika og vilja frekar hafa hlutina eins og þeir voru þá. Í anda óábyrgs óreiðumanns sem lifir í draumi um að stóra breikið sé alltaf rétt handan við hornið og heldur uppi lífskjörunum og veisluhöldunum með því að strauja kreditkortin, en á svo aldrei fyrir reikningunum. Á meðan fór þakið á húsi fjölskyldunnar að leka, veggirnir blotnuðu, mygla myndaðist og burðarvirkið skemmdist. Í stað þess að sýna ábyrgð og seiglu, bretta upp ermarnar og fara að vinna, sinna viðhaldi og byggja upp fyrir framtíðina svo fjölskyldan geti átt öruggt skjól og stöðugan grunn til að standa á þá slógu þau bara yfirdrátt til að halda partíinu áfram. Á endanum fengu konan og börnin nóg og hentu manninum út. Og byrjuðu að laga húsið sjálf. Það er svo einfalt að gefa út gúmmítékka Það er einfalt að stunda gúmmítékkapólitík, að lofa lægri sköttum, meiri þjónustu og hraðari uppbyggingu allt á sama tíma. Erfiðara er hins vegar að láta dæmið ganga upp. Það sést til að mynda á því að verðbólga fór í tveggja stafa tölu á vakt síðustu ríkisstjórnar og stýrivextir voru meira en níu prósent í næstum fimmtán mánuði samfleytt. Það leiddi meðal annars til þess að vaxtagjöld heimila rúmlega tvöfölduðust milli 2021 og 2024. En þetta var bara fínt samkvæmt formanni Sjálfstæðisflokksins. Þetta þurfti ekkert að laga. Það að reka ríkissjóð réttu megin við, stórlækka skuldir ríkissjóðs og leggja fram langtímastefnu um alvöru vöxt á grunni velferðar í stað þess að reka hagvöxt á innflutningi á fólki með tilheyrandi álagi á alla innviði er þvæla að mati Framsóknarflokksins. Það er ekki sókn. Hvað er þá sókn og hvernig á að fjármagna hana? Með meiri skuldum? Með minni sameiginlegri þjónustu? Eða með sölu eigna sem skila almenningi tekjum og yfirráðum til framtíðar? Þessu þurfa Sjálfstæðisflokkur og Framsókn að svara. Á meðan mun ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur halda áfram að laga Ísland, að taka til eftir óráðsíuflokkana sem svo augljóslega vinna bara fyrir suma. Á meðan mun stefna hennar verða að laga grunninn svo þjóðin öll geti haldið áfram að vaxa og sækja og gert Ísland að enn betra landi fyrir alla sem hér búa. Höfundur er framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórður Snær Júlíusson Alþingi Mest lesið Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Skoðun Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Tiplað inn í framtíð ferðaþjónustunnar Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Ró á vinnumarkaði krefst skýrra leikreglna Halldóra Sigr. Sveinsdóttir skrifar Skoðun Atvinna, ábyrg nýting og hagsmunir nærsamfélagsins Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Hættum að endurræsa menntakerfið, byrjum að halda áfram Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Það þarf heilt þorp Björg Magnúsdóttir,Sandra Hlín Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson skrifar Skoðun Huldufólkið Rannveig Haraldsdóttir skrifar Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Sjáðu þig, því lífið liggur við Hlíf Steingrímsdóttir skrifar Skoðun Taktík Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heilarotnun og hugræktarstöðvar á tímum gervigreindar Þórhallur Magnússon skrifar Skoðun Pitsuostur, alþjóðaviðskipti og almannahagur Ólafur Stephensen skrifar Skoðun „Það er enn verið að drepa börn“ Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Miklum afla landað utan kvóta Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: sjálfræði, mannréttindi og mörk samfélagsins Steinar Harðarson skrifar Skoðun Erum við tilbúin fyrir hálfs metra hækkun sjávar? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Við erum öll orðin verkkaupar Anna Kristín Hálfdánardóttir skrifar Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Beislið sem hnýtir sig sjálft Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Nýtt tímabil í skipulagsmálum Reykjavíkur Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Sjá meira
„
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun
Skoðun September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason skrifar
Skoðun Hvar værum við stödd ef rafbílavæðingin hefði ekki átt sér stað? Kristín Björk Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Er hún ekki bara á túr?” Karen Ösp Friðriks,Eydís Sara Óskarsdóttir,Ísabella Ögn Þorsteinsdóttir,Valgerður Þ. Snæbjarnardóttir,Emma Rivard Henriot skrifar
Skoðun Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir skrifar
Skoðun Einmanaleikinn tekur sér ekki helgarfrí Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Valdimar Víðisson skrifar
September án niðurstöðu Halla Gunnarsdóttir,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson,Gunnar Sigurðsson,Eiður Stefánsson,Andri Reyr Haraldsson,Jakob Tryggvason Skoðun