Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar 8. september 2026 08:01 Þegar barn beitir ofbeldi eða sýnir hegðun sem getur stefnt því sjálfu eða öðrum í hættu þarf að bregðast skýrt við og tryggja öryggi. En góð viðbrögð við alvarlegu atviki eru aðeins einn hluti ofbeldisforvarna og raunveruleg forvarnarvinna hefst löngu áður en nokkuð atvik á sér stað. Ofbeldisforvarnir felast í umhverfinu sem við sköpum, tengslunum sem við byggjum og stuðningnum sem barnið fær. Þess vegna þurfum við að staldra við og spyrja hvað var það sem gerðist, en ekki síður hvað gerðist á undan? Voru merki um vaxandi álag? Var barnið farið að eiga erfiðara með samskipti eða fyrirmæli? Var hægt að breyta aðstæðum, draga tímabundið úr kröfum eða grípa fyrr inn í? Og hvað vitum við nú þegar að hjálpar þessu barni? Sjálfstilling barna þróast í samskiptum Sjálfstilling er meðal annars hæfni til að stjórna athygli, tilfinningum, hvötum og hegðun. Hún þróast smám saman í gegnum bernsku og unglingsár og mótast í samskiptum við aðra. Börn læra því ekki sjálfstillingu með því einu að vera sagt að róa sig, stjórna sér eða haga sér á ákveðinn hátt. Þau þurfa endurtekna reynslu af því að fá stuðning við að takast á við álag og endurheimta jafnvægi. Samstilling er hluti af því ferli. Hún felst í því að fullorðinn hjálpar barni að halda eða ná aftur jafnvægi þegar eigin bjargráð þess duga ekki. Í einföldu máli má segja að hinn fullorðni láni barninu róna sína. Sú ró birtist í framkomunni allri, í raddblæ, orðavali, hraða samskipta, skýrleika og fyrirsjáanleika. Hún getur falist í því að nota færri orð, gefa barninu tíma, skýra hvað gerist næst eða draga tímabundið úr álagi. Það að við leggjum okkur fram við að skilja líðan barns þýðir ekki að við séum að samþykkja þá skaðlegu hegðun sem það mögulega sýndi. Það er hægt að viðurkenna tilfinningar og viðhalda mörkum á sama tíma. Við sjáum að barninu líður illa og við ætlum að hjálpa því, en barnið má ekki meiða aðra. Við þurfum líka að átta okkur á því að skaðleg hegðun barna er ekki öll af sama toga. Barn sem missir stjórn á hegðun sinni í miklu uppnámi getur skapað raunverulega hættu, en sú hegðun kallar ekki sjálfkrafa á sama mat og markvissar hótanir eða valdbeiting gagnvart öðru barni eða fullorðnum. Samkvæmt skilgreiningu Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar felur ofbeldi í sér ásetning um að beita afli eða valdi og þegar við metum hvort hegðun barns teljist ofbeldi þurfum við að greina hvort ásetningur hafi legið að baki. Faglegt mat á því hvort að um ofbeldi sé að ræða þarf því að taka mið af ásetningi þess sem beitir því, aðdraganda, valdatengslum, aðstæðum og getu barnsins á þeirri stundu. Ef öll krefjandi eða skaðleg hegðun er sett undir sama hatt verða viðbrögðin auðveldlega einsleit, þótt ástæður hennar og þarfir barnanna séu ólíkar. Góðar ofbeldisforvarnir krefjast þess að við greinum þarna á milli og veljum stuðning og viðbrögð í samræmi við það. Við þrepaskiptum stuðningnum, ekki börnunum Þrepaskiptur stuðningur byggir á þeirri hugsun að öll börn þurfi góð grunnskilyrði, sum þurfi markvissari aðstoð og fámennari hópur umfangsmeiri og einstaklingsmiðaðan stuðning. Á fyrsta þrepi felast forvarnir í umhverfinu sjálfu, í góðum tengslum, skýrum og sanngjörnum væntingum, fyrirsjáanleika, aðgengilegum fullorðnum og starfsfólki sem þekkir fyrstu merki um vaxandi álag. Sum börn þurfa meiri aðlögun, nánara samstarf við foreldra eða skýra stuðningsáætlun. Önnur þurfa umfangsmikinn og oft þverfaglegan stuðning. Þrepin sjálf skilgreina ekki hversu erfitt barnið er. Við þrepaskiptum ekki börnunum sjálfum, heldur stuðningnum sem kerfið þarf að veita til að mæta þörfum þeirra. Geta barns er heldur ekki alltaf sú sama. Svefn, streita, óöryggi, félagslegar aðstæður, skynáreiti og uppsafnað álag geta haft mikil áhrif á hversu vel það ræður við að stjórna eigin viðbrögðum. Að mæta barni þar sem það er þýðir að við fullorðna fólkið berum ábyrgð á að byggja brú frá þeirri getu sem barnið hefur núna, að því sem við viljum að það geti síðar. Við getum ekki staðið á árbakkanum hinum megin og kallað á barnið að stökkva. Ef bilið á milli er of breitt getum við ekki ætlast til þess að barnið komist yfir það hjálparlaust. Hlutverk okkar er að brúa bilið, skref fyrir skref, þar til leiðin er orðin nógu örugg til að barnið geti farið hana sjálft. Stundum þarf að skipta verkefni niður, auka fyrirsjáanleika eða draga tímabundið úr álagi. Stundum þarf fyrst og fremst fullorðinn sem heldur ró sinni þegar barnið getur það ekki. Þegar barn er komið í mikið uppnám geta langar útskýringar, aukinn þrýstingur og endurtekin fyrirmæli ýtt undir frekari stigmögnun hegðunar. Við tökum ábyrgðina ekki af börnunum, við léttum bara undir þar til barnið hefur aftur burði til að bera hana. Viðbrögð fullorðinna geta bæði kælt aðstæður og hitað þær upp. Þess vegna þurfa skólar og önnur kerfi í kringum börn ekki aðeins að vinna að sjálfstillingu barnanna, heldur einnig að efla getu starfsfólks til samstillingar. Samstilling kemur á undan sjálfstillingu. Kerfið þarf að styðja þann sem styður barnið Það er ekki raunhæft að ætlast til þess að starfsfólk láni börnum ró sína ef það stendur sjálft án stuðnings. Samstilling krefst þekkingar, sameiginlegs tungumáls, skýrra verkferla, samráðs og aðgangs að faglegu baklandi. Ábyrgðin á samstillingu getur því ekki hvílt á einstaka starfsmönnum innan skóla sem brenna fyrir málefninu, stofnunin þarf að skapa starfsfólki skilyrði til að beita henni í starfi. Rétt eins og ofbeldi barna verður aldrei til í tómarúmi verður sjálfstilling barna það ekki heldur, hún vex í þeim jarðvegi sem umhverfi og tengsl skapa. Markmiðið er því ekki aðeins að verða betri í að bregðast við alvarlegum atvikum, heldur að þurfa sjaldnar að lenda í þeim. Í grunninn er þetta ekki flókið, börn þurfa hlýju, örugg tengsl, skýra umgjörð og fullorðna sem sjá þau og bregðast við. Við þurfum að sjá merkin fyrr, skilja hvað liggur að baki og veita stuðning áður en álagið verður að hættu. Þannig hjálpum við barninu að ná jafnvægi þegar eigin bjargráð duga ekki, byggjum um leið upp færni þess og eflum stuðningskerfið í kringum það. Oft er það í hinu hversdagslega sem mikilvægustu ofbeldisforvarnirnar eiga sér stað og oft felast áhrifaríkustu forvarnirnar í því sem gerist áður en nokkrum dettur í hug að kalla það forvarnir. Kannski kallar þú þetta ekki ofbeldisforvarnir en kannski sinnir þú þeim samt á hverjum degi. Og kannski ertu bara frábær í þeim. Höfundur er sérfræðingur í ofbeldisforvörnum og réttindum barna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Ofbeldi gegn börnum Mest lesið Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Freyja Þórisdóttir skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Sjá meira
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson Skoðun