Handbolti

Díana og Elín Rósa töpuðu í Meistara­deildinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Díana Dögg Magnúsdóttir hefur unnið sér inn stórt hlutverk hjá Blomberg-Lippe.
Díana Dögg Magnúsdóttir hefur unnið sér inn stórt hlutverk hjá Blomberg-Lippe. hsg-blomberg-lippe.de

Díana Dögg Magnúsdóttir og Elín Rósa Magnúsdóttir voru báðar í liði Blomberg-Lippe sem tapaði fyrir rúmenska liðinu Gloria Bistrita í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í dag.

Leikurinn fór fram í Þýskalandi á heimavelli Blomberg-Lippe og endaði 28-23.

Díana Dögg skoraði fjögur mörk í leiknum og var með áttatíu prósent skotnýtingu. Elín Rósa gaf eina stoðsendingu.

Rúmenska liðið er því með tvö stig í riðlinum en Blomberg-Lippe án stiga. Alls eru átta lið í riðlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×