Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar 5. september 2026 23:56 Sá ágreiningur sem nú hefur komið upp innan SÁÁ er að mínu mati orðinn bæði óheppilegur og óþarflega persónulegur. Þegar rætt er um jafn mikilvæga starfsemi og þjónustu við fólk sem glímir við fíknivanda verður umræðan að byggjast á yfirvegun, fagmennsku og gagnkvæmri virðingu. SÁÁ hefur sinnt meðferð og stuðningi við fólk með fíknivanda frá árinu 1977. Á þeim tíma hefur orðið til mikil þekking, reynsla og sérhæfing sem hefur nýst þúsundum einstaklinga og fjölskyldum þeirra. Heilbrigðisþjónustan er því ekki einhver afmarkaður þáttur sem síðar hefur bæst við starfsemi SÁÁ. Hún hefur frá upphafi verið samofin sögu, tilgangi og sjálfsmynd samtakanna. Þess vegna tel ég að stíga verði mjög varlega til jarðar þegar rætt er um að aðskilja heilbrigðisstarfsemina frá samtökunum. Slík breyting er ekki einungis stjórnsýslulegt eða skipulagslegt úrlausnarefni. Hún snertir sjálfan tilgang SÁÁ og þá hugmyndafræði sem starfsemin hefur byggst á í nær hálfa öld. Við slíka umræðu verður jafnframt að horfa til samþykkta SÁÁ og þess tilgangs sem samtökunum var ætlað að þjóna. Breytingar á skipulagi mega ekki verða til þess að fjarlægja samtökin frá þeim grunngildum og því hlutverki sem þau voru byggð upp í kringum. SÁÁ eru meira en rekstraraðili heilbrigðisþjónustu. Þar hefur í gegnum tíðina farið saman faglegt meðferðarstarf, reynsla fólks sem sjálft hefur tekist á við fíkn, stuðningur við aðstandendur, fræðsla, forvarnir og öflug samfélagsleg þátttaka. Þessi tenging hefur að mínu mati verið einn af helstu styrkleikum samtakanna. Það þýðir þó ekki að starfsemin eigi að standa í stað. Þekking á fíkn og meðferð hennar hefur þróast mikið og mun halda áfram að þróast. Nýjar rannsóknir, nýjar meðferðaraðferðir og breyttar kröfur til heilbrigðisþjónustu kalla eðlilega á stöðuga endurskoðun. SÁÁ verður að þróast í takt við þá þekkingu. En þróun og fagmennska þurfa ekki að fela í sér höfnun á því sem áður var gert. Sjálfur hef ég starfað sem áfengis- og vímuefnaráðgjafi í áratug og fylgst með þróun þessara mála úr návígi. Mér finnst stundum gæta þeirrar tilhneigingar í umræðunni að tala eins og fagmennska sé tiltölulega nýtt fyrirbæri og að það starf sem unnið var áður hafi að einhverju leyti verið ófaglegur undanfari nútímalegrar heilbrigðisþjónustu. Það tel ég bæði ósanngjarnt og rangt. Þeir sem komu á undan unnu samkvæmt bestu þekkingu síns tíma. Þeir söfnuðu reynslu, þróuðu aðferðir og byggðu upp þjónustu fyrir fólk sem áður hafði oft úr fáum úrræðum að velja. Á þeim grunni hefur síðan verið byggt áfram. Raunveruleg fagmennska felst einmitt í því að nýta reynslu fortíðarinnar en vera jafnframt tilbúin að endurskoða starfshætti þegar ný þekking gefur tilefni til. Í þeirri umræðu sem nú stendur yfir þarf jafnframt að gera skýran greinarmun á faglegu sjálfstæði heilbrigðisstarfsfólks annars vegar og stjórnunar- og rekstrarábyrgð hins vegar. Fagfólk verður að hafa það svigrúm sem lög, fagleg viðmið og ábyrgð þess krefjast þegar kemur að meðferð einstakra skjólstæðinga og faglegum ákvörðunum. En faglegt sjálfstæði getur ekki þýtt að heilbrigðisstarfsemi sé undanþegin eðlilegri stjórnun, eftirliti og ábyrgð þeirra sem bera ábyrgð á rekstri samtakanna. Stjórnendur verða að geta fylgst með framkvæmd samninga, rekstri, mannafla, fjármunum, innleiðingu verkefna, gæðum og árangri án þess að það sé sjálfkrafa túlkað sem afskipti af faglegri meðferð. Þarna verður að vera skýr lína og báðir aðilar verða að virða hana. Þess vegna tel ég ekki að framtíð SÁÁ þurfi að byggjast á vali milli tveggja kosta: annars vegar faglega sjálfstæðrar heilbrigðisþjónustu og hins vegar sterkra og ábyrgra samtaka. Við eigum að geta haft hvort tveggja. Hægt er að tryggja faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsfólks, gera skýrar kröfur um gæði og fagmennsku og um leið tryggja eðlilega stjórnarhætti, rekstrarlegt eftirlit og skýra ábyrgð innan SÁÁ. Það væri að mínu mati mun farsælli leið en að rjúfa þau tengsl sem hafa verið milli samtakanna og meðferðarstarfsins frá upphafi. Umræðan má heldur ekki festast í einstaklingum, starfsheitum eða valdabaráttu. Spurningin sem ætti að vera leiðarljós allra aðila er miklu einfaldari: Hvað þjónar skjólstæðingunum best? Ef þjónustuna má bæta eigum við að bæta hana. Ef ný þekking kallar á breytingar eigum við að taka þeim fagnandi. Ef starfshættir hafa ekki reynst nægilega vel eigum við að hafa kjark til að endurskoða þá. En við eigum jafnframt að bera virðingu fyrir þeirri þekkingu, reynslu og menningu sem hefur verið byggð upp innan SÁÁ í nær hálfa öld. Ég vona því að þeir sem nú takast á um þessi mál geti fundið sameiginlegan grundvöll. Ekki með því að gefa eftir fagleg sjónarmið eða ábyrgð, heldur með því að viðurkenna að markmiðið hlýtur að vera sameiginlegt. Að byggja upp öflugri SÁÁ. Að efla faglega heilbrigðisþjónustu. Að varðveita þá reynslu sem hefur skapast. Og umfram allt að tryggja að fólk sem leitar til SÁÁ fái bestu þjónustu sem völ er á. Því þegar öllu er á botninn hvolft má enginn ágreiningur um skipulag, stjórnun eða fagleg mörk verða mikilvægari en fólkið sem leitar sér hjálpar. Skjólstæðingurinn verður alltaf að vera númer eitt. Höfundur er fyrrverandi áfengis- og vímuefnaráðgjafi og stjórnarmaður í aðalstjórn SÁÁ Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Mest lesið Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar