Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Freyja Þórisdóttir skrifar 5. september 2026 15:06 Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus segist hafa þurft að hafa hemil á sér svo piparkökur færu ekki í sölu fyrr en þær gerðu. Myndin af honum er úr safni frá því síðustu jól en sú af piparkökunum er glæný. Aðsend/Vísir/Vilhelm Einhverjir ráku eflaust upp stór augu á dögunum þegar við þeim blöstu staflar af jólapiparkökukössum en þeir fóru að birtast í Bónus-verslunum þann 1. september. Framkvæmdastjórinn segir söluna hafna fyrr en tíðkast hefur en það sé tilkomið vegna mikillar eftirspurnar. „
Já, þetta er aðeins fyrr en í fyrra,“ segir Björgvin Víkingsson framkvæmdastjóri Bónus en hann segir piparkökur hafa klárast á lager skömmu fyrir jól í fyrra og því hafi það verið í eins konar varnúðarskyni að panta meira og byrja að selja þær fyrr í ár. „Þannig að við bættum í magn og pöntuðum meira og byrjuðum aðeins fyrr,“ segir hann en bætir við að þau geri sér alveg grein fyrir því að sumum gæti þótt sláandi að sjá piparkökur til sölu svona stuttu eftir sumarlok. Það sé þó þannig að þær rjúki út strax í september. „Það var mjög góð sala í september í fyrra og ég get staðfest það að það er það sama í ár, þetta rýkur út.“ Björgvin segir útlit fyrir að það verði aftur uppselt fyrir jól með þessu áframhaldi en það sé gríðarlegt magn sem seljist og mikill undirbúningur að baki. „Við búumst eiginlega við því miðað við söluna núna að, þrátt fyrir að við pöntuðum töluvert meira magn, að þetta gæti klárast aftur fyrir jól,“ segir hann. Miða við 1. september En líkt og fyrr segir hafi það verið eftirspurn sem varð til þess að sölunni var flýtt enn meir en síðustu ár. „Við djókuðum með það hvort við gætum komið þeim upp í hillur í ágúst en það var nú bara meira upp á grínið. Ég held við séum nú ekki að fara að gera þetta fyrr á næsta ári heldur en 1. september,“ segir Björgvin og bætir við: „Ég held að við eigum ekki að láta slag standa þar.“ Piparkökur birtust í öllum Bónus-verslunum landsins á dögunum, eflaust sumum til mikillar gleði.Aðsend Auðvitað verði þau vör við viðbrögð en það sé einmitt algengt að fólk annaðhvort trúi ekki eigin augum og þyki fullsnemmt að salan sé hafin í september eða það hoppi hæð sína af gleði enda fjölmargir sem bíða eftir jólahátíðinni frá því að hún klárast á hverju ári og þar til hún gengur í garð á ný. „Ætli þetta sé ekki svona skrítið samband, annaðhvort elskarðu eða hatar að piparkökurnar séu komnar, en salan sýnir að fólk elskar að piparkökurnar séu komnar. Ég get alveg sagt það,“ segir hann. Langmesta stuðið um jólin Það sé ekki hægt að fullyrða annað en að stjórn Bónus sé skipuð jólaunnendum. „Verðum við ekki öll að vera það? Þetta er langstærsta tímabilið og langmesta stuðið í verslunum,“ segir Björgvin en hann segir fólk mögulega ekki átta sig á því hversu snemma þurfi að panta piparkökurnar svo þær séu fáanlegar tímanlega. Það vill svo skemmtilega til að síðast þegar ljósmyndari Vísis mælti sér mót við Björgvin var jólahátíðin að ná hámarki.Vísir/Vilhelm „Ég held að fólk fatti ekki heldur hversu snemma það þarf að panta þessar piparkökur, við erum að tala um fyrir mörgum, mörgum mánuðum síðan.“ Erum við að fara að sjá páskaegg í hillum að morgni til þann 1. janúar? „Við stefnum ekki á páskaegg 1. janúar,“ sagði Björgvin en bætti loks við að það væri gaman að segja frá því að verðið á piparkökunum væri það sama og síðustu tvö ár, sem þætti ansi gott í keppninni um að halda lágu verði. „Þannig að þær duttu í búðir fyrr en í fyrra en jafn ódýrar.“
Jól Verslun Verðlag Mest lesið Bakarar í basli eftir bandarísk mistök Viðskipti innlent Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Neytendur Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Neytendur Stóð varla í lappirnar og fattaði að þau gætu ekki staðið í þessu lengur Viðskipti innlent Yfir sjö þúsund tóku þátt í Regluverðinum Viðskipti innlent Hagnaðist um 58 milljónir og greiddi 67 í arð Viðskipti innlent Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent „Lán á bara að vera lán“ Viðskipti innlent Sveru dósirnar snúa aftur Neytendur ChatGPT virkar á ný Viðskipti erlent Fleiri fréttir Jólin gengin í garð í verslunum Bónus Dauðbrá þegar hún beit óvænt í glerbrot Sveru dósirnar snúa aftur Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Bensínlítrinn hefur hækkað á ný „Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn“ Vara við skordýrum í chia-fræjum Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Sjá meira
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent
Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Viðskipti innlent