Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar 3. september 2026 17:32 Í síauknum mæli má sjá konur í íslömskum klæðnaði á Íslandi. Það sem stingur þó í augun er að slíkt á nánast einvörðungu við um konur af erlendum uppruna. Því er vert að spyrja; af hverju eru fáar sem engar íslenskar konur sem kjósa að hylja sig? Það læðist að manni sá grunur að hér sé um að ræða ómeðvitaðan en kerfisbundinn, menningar-rasisma (e.strucutral-cultural-racism). Fjölmenningarsamfélag krefst inngildingar. Inngilding byggir á því að heimalningar séu tilbúnir að læra af þeim sem nýlega eru komnir til landsins. Þvermóðska feðraveldisins tekur á sig margar myndir en ein þeirra er að skerða frelsi kvenna til að klæða sig með aukinni hófstillingu og prúðmennsku sem finna má í íslömskum siðavenjum. Fyrirsjáanleg samyrkja rasista og karlrembna hefur jafnvel gengið svo langt að segja að sumir menningarheimar séu betri en aðrir er varðar kvenréttindi og reyna að byrgja öðrum sýn á þann samfélagslegan ágóða sem fylgir fjölbreytileikanum. En hvernig er best að takast á við þennan vanda? Nú þegar framhaldsskólastarf er að hefjast rifjast upp fyrir gömlum MS-ingi þeir góðu dagar þegar 85-vikan var haldin hátíðleg, en þá var tímabilinu 1985 gert hátt undir höfði, fólk klætt í samræmi við þá tíma sem endaði svo í heljarinnar balli við lok hátíðarinnar. Framhaldsskólar geta spilað lykilhlutverk í því að takast á við flókið verkefni inngildingar. Því, líkt og þegar 85-vikan er haldin hátíðleg, væri allt eins hægt að halda inngildingarviku. Þemað væri að kynna sér siðvenjur frábrugðinna menningarheima af íslömskum siðum þar sem konur lúta öðrum stöðlum og láta hægt fyrir sér fara. Herlegheitin gætu svo endað á risavöxnu búrkuballi þar sem dansað væri fram eftir nóttu í aðskildum rýmum og konurnar að sjálfsögðu í búrkum. Slíkt myndi vekja upp hugsanir hjá frjóum hugum menntskælinga um það: Hvort klæðaburður kvenna í vestrænum ríkjum sé í raun fýsilegri en þeirra í Mið-Austurlöndum? Hvort við á Íslandi séum að skerða frelsi kvenna til að klæða sig með meiri prúðmennsku, fágun og siðprýði til að sporna við freistnivanda karlmanna í nærumhverfinu? Hvað konur geti lært af siðavenjum og háttívisi klæðaburðar kvenna í t.d. Afganistan? Nú þegar augljóst bakslag í baráttunni fyrir raunverulegu umburðarlyndi er mikilvægt að vera opin fyrir nýjungum sem sporna við þróuninni. Fasísk orðræða á meginlandinu um búrkubönn er ein tegund slíkrar afskiptasemi. Því legg ég til að framhaldsskólar á Íslandi kveði í kútinn hugmyndir um búrkubann með því að halda búrkuböll. Höfundur er hlaðvarpsstjórnandi og skuldari hjá Fjölmiðlanefnd. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórarinn Hjartarson Mest lesið Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Skoðun Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar