Innlent

Þor­gerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lög­reglu

Smári Jökull Jónsson skrifar
Hádegisfréttir Bylgjunnar hefjast klukkan 12.
Hádegisfréttir Bylgjunnar hefjast klukkan 12.

Utanríkisráðherra kallaði fulltrúa rússneska sendiráðsins á sinn fund í dag þar sem samstaða Íslands með Þýskalandi var áréttuð í kjölfar drónaatviks í Leipzig í byrjun ágúst. Ráðherra segir að alvarlegar athugasemdir hafi verið gerðar við framferði Rússa.

Samkvæmt nýju frumvarpi verður upptaka eigna án sakfellingar og fjarskiptaeftirlit í brýnum erindum áður en dómsúrskurður fæst meðal heimilda sem lögregla fær. Í hádegisfréttum verður rætt við yfirlögregluþjón hjá ríkislögreglustjóra segir íslenska löggjöf hafa setið eftir löggjöf nágrannarríkja.

Fulltrúar allra þingflokka mæta í Pallborð Vísis klukkan 14:00 og hita upp fyrir þingveturinn sem hefst formlega í næstu viku. Fréttastjóri Sýnar, Sunna Sæmundsdóttir, ætlar að segja frá Pallborðinu í beinni en ólíklegt er að þingveturinn muni hefjast á léttum nótum.

Ljósanótt var sett í Reykjanesbæ í morgun en þar verður sérstakt viðbragð vegna unglingadrykkju í kjölfar þess að lögregla þurfti að hafa afskipti af töluvert mörgum ungmennum á Menningarnótt.

Tvö íslensk kvennalið fóru áfram í Evrópukeppnum í knattspyrnu í gær og þá var landsliðsmarkvörðurinn Cecelía Rán Rúnarsdóttir hetja Inter í Meistaradeild Evrópu. Einnig verður rætt við Ágúst Jóhannsson þjálfara Íslandsmeistara Vals í handbolta en Olís-deildin hefst í kvöld.

Þetta og margt fleira í hádegisfréttum Bylgjunnar á slaginu tólf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×