Hvernig á kynlíf að vera? Eva Pandora Baldursdóttir skrifar 2. september 2026 08:33 Við byrjum ekki með autt blað þegar kemur að kynlífi. Áður en við byrjum sjálf að stunda kynlíf höfum við þegar fengið ótal skilaboð um hvernig það eigi að vera. Frá fjölskyldu, vinum, trúarbrögðum, kynfræðslu, samfélagsmiðlum, klámi og menningunni í kringum okkur lærum við hvað telst eðlilegt og æskilegt, hver á að hafa frumkvæði, hver á að vilja meira og hvaða líkamar eru eftirsóknarverðir. Og við tökum þessar hugmyndir með okkur inn í svefnherbergið á fullorðinsaldri. Við þekkjum mörg einhverjar af þessum hugmyndum: Karlmenn eiga alltaf að vilja kynlíf. Konur vilja frekar nánd. Maðurinn á að hafa frumkvæði. Samfarir eru aðalatriðið. Báðir aðilar eiga að fá fullnægingu og helst á sama tíma. Löngun á að kvikna sjálfkrafa. Ástfangið par stundar reglulega kynlíf. En málið er að þetta er ekki náttúrulögmál. Þetta eru hugmyndir sem við höfum lært. Hvað gerist þá þegar raunverulegt kynlíf passar ekki við þessar hugmyndir? Þá hlýtur eitthvað að vera að okkur, ekki satt? Hvernig er kynlífið sem mig á að langa í? Þegar fólk upplifir minni kynlöngun, erfiðleika með fullnægingu eða aðra kynferðislega erfiðleika er auðvelt að beina athyglinni strax að einstaklingnum. Af hverju langar mig svona sjaldan í kynlíf? Af hverju fæ ég ekki fullnægingu? Er eitthvað að mér? En kynferðisleg viðbrögð verða ekki til óháð aðstæðum. Rannsóknir sýna til dæmis að konur sem upplifa kynferðislega erfiðleika tengja þá meðal annars við skort á umhyggju frá maka, lítinn eða engan forleik eða önnur vandamál í sambandinu. Í slíku samhengi er skortur á löngun eða fullnægingu ekki endilega merki um að eitthvað sé að einstaklingnum. Hann getur verið eðlilegt viðbragð við kynlífi sem veitir litla ánægju eða mætir ekki þörfum viðkomandi. Þess vegna er ekki alltaf nóg að spyrja hvers vegna okkur langar ekki í kynlíf. Það getur verið jafn mikilvægt að spyrja: Hvernig er kynlífið sem mig á að langa í? Finn ég fyrir öryggi? Er pláss fyrir mínar langanir? Má ég segja nei án þess að það verði vandamál? Get ég sagt hvað mér finnst gott og hvað ekki? Er kynlífið ánægjulegt fyrir mig? Eða er ég stundum að taka þátt vegna þess að mér finnst að ég eigi að vilja það? Stundum liggur vandinn nefnilega ekki í skorti á löngun heldur í því sem lönguninni er ætlað að beinast að. Okkur langar nefnilega alveg í kynlíf sem er gott og skemmtilegt. Engan langar til að stunda leiðinlegt kynlíf. Hvaða reglur tókst þú með þér inn í svefnherbergið? Menningin hefur líka áhrif á hvernig við túlkum eigin langanir. Ef eitthvað veitir okkur ánægju en við höfum lært að það sé rangt, skrýtið eða óviðeigandi getur ánægjan blandast skömm, ruglingi og óöryggi. Spurðu bara hvaða samkynhneigðu manneskju sem er, sem ólst upp á miðri seinustu öld. Það getur því verið gagnlegt að spyrja sig: Hvaðan koma hugmyndir mínar um hvernig kynlíf á að vera? Hvað lærði ég um löngun, líkama, fullnægingar og kynhlutverk? Hvað lærði ég um að segja nei og hvað lærði ég um að biðja um það sem mig langar í? Og kannski mikilvægast: Eru þetta í alvörunni mínar eigin skoðanir eða eitthvað sem ég lærði einhvers staðar á lífsleiðinni að væri ætlast til af mér? Við getum ekki tekið menninguna úr kynlífinu. En við getum skoðað reglurnar sem við höfum tekið með okkur inn í svefnherbergið og ákveðið sjálf hverjar þeirra eiga raunverulega heima þar. Höfundur er sambands- og kynlífsráðgjafi MSc. Heimildir: „The Privileging of Pleasure: Sex Therapy in Global Cultural Context“ eftir Kathryn S. K. Hall og Cynthia A. Graham í bókinni Principles and Practice of Sex Therapy (6. útg., 2020). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kynlíf Eva Pandora Baldursdóttir Mest lesið Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson Skoðun Skoðun Skoðun Virðing er ekki veikleiki Theodór Francis Birgisson skrifar Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar Skoðun Skiptir máli að skipta máli í vinnunni? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Er EES samningurinn orðinn klafi á Íslendinga? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Kona með spegil Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Haust til hægri Baldvin Björgvinsson skrifar Skoðun Starfsfólkið stóð vaktina en stjórnvöld stóðu ekki við sitt Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Það sem ekki sést í Excel-skjali skrifar Skoðun Hver sat við borðið? Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Núll sem heldur Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar Skoðun Stóra samhengið sem gleymdist Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Áfall á bíllausa daginn Camilla Rut Arnarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum vörð um okkar mikilvægustu atvinnugrein Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Óvissa og ágreiningur SÁÁ bitnar á notendum þjónustunnar Erla Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Sjá meira
Skoðun Boðuð skattahækkun á húsnæðisuppbyggingu kemur á versta tíma Jón Sigurðsson,Pétur H. Halldórsson skrifar
Skoðun Can Iceland afford to allow its airbridge to the world to grind to a halt? Carl Baudenbacher skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Hver ber ábyrgð þegar læknar hverfa frá starfsemi sjúkrahúss? Jón Páll Hallgrímsson skrifar
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaður eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar