Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar 31. ágúst 2026 16:02 Það hlýtur að vera sérstakt rannsóknarefni hvers vegna flestir alþjóðlegir fjölmiðlar og fréttaveitur greindu meginástæður þjóðaratkvæðagreiðslunnar um síðustu helgi á allt annan veg en Íslendingar sjálfir. Þegar maður er sjálfur í miðju atburðarrásinnar og fylgist grannt með umræðunni hér heima er óneitanlega sérkennileg tilfinning að lesa fréttaskýringar útlendra stórmiðla sem eru áberandi mikið á skjön við veruleikann. Flestir stóru miðlanna slógu Trump upp sem aðalpersónunni í þessu leikriti. Hann var hugsanlega í smáhlutverki, jafnvel bara eins og hvíslari. En það er fráleitt að Íslendingar hafi gengið að kjörborðinu á laugardag vegna þess að Bandaríkjaforseti ásælist Grænland. Alþjóðlegir fjölmiðlar sögðu það vera eina af þungaviktarástæðum þess að ákveðið var að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið. Í sumum tilvikum var gengið enn lengra að staðhæft að Grænlandsáform Trumps hafa breytt afstöðu Íslendinga til Evrópusambandsins og knúið þá til að endurmeta stöðu sína í heiminum. AP sagði að Trump hefði „breytt stemningunni“ á Íslandi þegar hann hóf að tala um yfirráð Bandaríkjanna yfir Grænlandi. Guardian sagði þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa verið haldna í skugga ítrekaðra hótana hans um að taka yfir Grænland. Fleiri stórmiðlar settu kosningarnar í svipað samhengi. Lesendur þessara frétta og fréttaskýringa gátu auðveldlega fengið þá mynd að ein meginspurning kosninganna á Íslandi hefði verið: Geta Íslendingar enn treyst Bandaríkjunum eða þurfa þeir að leita skjóls innan Evrópusambandsins? Má vera að það hafi verið tæpt á þessari spurningu í umræðunni á einhverjum tímapunkti en kosningabaráttan snerist einfaldlega um allt annað. Eins og við öll vitum mætavel. Fiskurinn en ekki Trump Þungi umræðunnar var fyrst og fremst um fullveldi og framsal valds til stofnana Evrópusambandsins. Síðan komu áleitnu spurningarnar sem tengjast því: Getur Ísland haldið fullum yfirráðum yfir fiskveiðiauðlindinni? Er hægt að semja um varanlegar undanþágur frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu ESB? Hvað um landbúnaðinn og orkuauðlindirnar? Trump og Grænland voru til staðar í fjarlægum bakgrunni umræðunnar. En kosningabaráttan snerist ekki um það dag eftir dag. Sumir erlendir fjölmiðlar áttuðu sig á þessu. Euronews birti þremur vikum fyrir kosningar fréttaskýringu undir fyrirsögninni „Fish over Trump“. Þar var niðurstaðan sú að þótt Trump, Grænland og öryggi norðurslóða væru áberandi í alþjóðlegum fyrirsögnum væri íslenska kosningabaráttan háð á öðrum vígvöllum. Tekist væri á um efnahagsmál, fullveldi, landbúnað en sérílagi sjávarútveg. RTÉ, írska ríkisútvarpið, sendi fréttamann til Íslands og komst að svipaðri niðurstöðu: þótt þjóðaratkvæðagreiðslan hefði erlendis verið sett í samhengi við hótanir Trumps gagnvart Grænlandi væru innanlandsmálin miklu sterkari drifkraftur. Og Reuters sagði eftir kosningarnar að íslenska umræðan hefði fyrst og fremst snúist um vexti, fiskveiðiréttindi og framfærslukostnað fremur en öryggismál. Hvaðan kom Trump-sagan? Þjóðaratkvæðagreiðslan var í stjórnarsáttmálanum þegar ríkisstjórnin var mynduð árið 2024, áður en Donald Trump tók aftur við forsetaembætti og áður en Grænlandsmálið komst í hámæli. En ríkisstjórnin ákvað síðar að flýta atkvæðagreiðslunni og vísaði meðal annars til breyttrar stöðu alþjóðamála. Þar með höfðu erlendir fréttamenn fundið fjöður sem varð að hænu. Frásögnin stökkbreyttist að minnsta kosti einhvers staðar á leiðinni. Eitt er að segja að Grænlandsmálið hafi verið meðal þeirra alþjóðlegu breytinga sem höfðu áhrif á tímasetningu atkvæðagreiðslunnar. Allt annað er að segja að það hafi orðið til þess að Íslendingar þurftu að endurmeta afstöðu sína til bæði Bandaríkjanna og ESB. Það endurmat hafi síðan orðið að meginatriði í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Hvar birtust kannanirnar sem sýndu að ótti við Trump hafi verið mikilvægt kosningamál? Hvar fór fram þessi mikla íslenska umræða um að ESB-aðild væri nauðsynleg vörn gegn ótryggari Bandaríkjunum? Ég varð þeirra ekki var. „Talsmaður Íslands“ Annað vekur athygli þegar erlenda umfjöllunin er skoðuð: ótrúlega margir fjölmiðlar leituðu til sama íslenska stjórnmálafræðingsins. Eiríkur Bergmann varð nánast „talsmaður Íslands“ fyrir erlenda fjölmiðla. AFP, Euronews, Euractiv, RTÉ og fleiri leituðu til hans. Það væri ósanngjarnt að kenna honum um Trump-frásögnina. Hann reyndi raunar stundum að leiðrétta hana. Við RTÉ sagði hann að geopólitíska umrótinu fylgdu áhrif en það væri ekki drifkraftur umræðunnar, sem væri fyrst og fremst knúin áfram af innanlandsmálum. Við Euronews gekk hann enn lengra: Ákvörðunin um þjóðaratkvæðagreiðsluna hefði verið tekin áður en Trump hóf annað kjörtímabil sitt. Öryggis- og varnarmál hefðu ekki verið hluti þeirrar ákvörðunar. Spyrja má hins vegar, þegar sami maðurinn er orðinn helsti sérfræðingur alþjóðlegra fjölmiðla um íslensk stjórnmál, hvort hann hefði ekki hefði mátt leggja enn meiri áherslu á að leiðrétta þá mynd sem greinilega var orðin allsráðandi erlendis. Eða átti utanríkisráðuneytið að bregðast við? Enginn leiðrétti myndina Utanríkisráðuneytið sinnir upplýsingamiðlun um Ísland og hefur eðli máls samkvæmt samskipti við erlenda fjölmiðla. Því vekur athygli að ekki virðist hafa verið gerð sérstök tilraun til að draga úr þeirri áherslu sem erlendir miðlar lögðu á Trump og Grænland. Ef til vill taldi ráðuneytið enga ástæðu til að leiðrétta túlkun erlendra fjölmiðla. Eða var einfaldlega litið á þetta sem rangfærslu sem kallaði ekki á sérstök viðbrögð? Um það skal ekkert fullyrt. En eftir stendur spurningin: Hvers vegna var svo áberandi munur á því sem erlendir fjölmiðlar sögðu að kosningarnar snerust um og því sem Íslendingar sjálfir voru að ræða? Í þjóðaratkvæðagreiðslunni á Íslandi var Donald Trump stór persóna í fréttum heimsins. En hann var bara lítill kall í litlu hlutverki í kosningabaráttunni hér heima. Höfundur er fyrrverandi frétta- og dagskrárgerðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gunnar Salvarsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Skoðun Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar