Bjarni ræðir brottförina frá Val: „Erfitt að ná alvöru stöðugleika“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. ágúst 2026 09:00 Bjarni Mark og Tryggvi Hrafn standa yfir boltanum í leik með Val. Bjarni er farinn og Tryggvi er á förum frá félaginu. vísir / guðmundur Bjarni Mark Antonsson Duffield er fluttur aftur til Svíþjóðar í faðm fjölskyldunnar og kveðst spenntur fyrir því að spila sinn fyrsta leik fyrir lið Trelleborg um helgina. Hann hugsar hlýlega til Valsmanna en var orðinn þreyttur á umrótinu sem fylgdi því að spila fyrir félagið.
Bjarni skildi óvænt við Valsliðið eftir Evrópuleik við Nordsjælland í Danmörku fyrr í mánuðinum. Hann ferðaðist ekki aftur til Íslands heldur fór hann til suðurhluta Svíþjóðar og samdi við Trelleborg. „Staðsetningin hentaði mjög vel, nálægt Malmö, Kaupmannahöfn og systur minni [Tinnu Mark Antonsdóttur, sem býr í Kristianstad]. Svo veit ég að þetta er flott lið, með góða aðstöðu og mikinn metnað. Þeir voru mjög áhugasamir um að semja við mig, þannig að þetta bara small einhvern veginn allt saman. Maður hefur búið áður í Svíþjóð og Noregi, læra tungumálið og, eins og þú sérð, þá er aðeins betra veður hérna. Það hjálpar,“ sagði Bjarni í viðtali sem var sýnt í Sportpakka Sýnar í gærkvöld. Trelleborg er í þriðju efstu deild Svíþjóðar en er í toppbaráttu um að komast upp í næstefstu deild. Bjarni mun spila sinn fyrsta leik um helgina og hjálpa liðinu í þeirri baráttu. „Fyndið að þegar ég skrifa undir þá voru þeir með sjö stiga forystu á toppnum. Maður hélt að maður væri að detta bara í smá þægilegheit. En á meðan ég var að koma mér út þá töpuðu þeir tveimur leikjum og annað sætið vann tvo leiki, þannig að núna er þetta bara eitt stig. Það er eins gott að koma inn af krafti og hjálpa þeim að klára þetta.“ Bjarni hefur æft með liði Trelleborg í vikunni og verður í leikmannahópnum þegar liðið mætir Utsiktens á morgun.trelleborg Þannig lýkur tíma hans hjá Val en á þeim tæplega þremur tímabilum sem Bjarni spilaði á Hlíðarenda var hann undir stjórn fjögurra þjálfara, þriggja stjórnarformanna og látinn leysa stöðu miðvarðar, bakvarðar og miðjumanns í bland. „Já það hefur mjög mikið gengið á, sem er kannski eðlilegt í íþróttafélögum en ég held að þetta hafi verið óvenju mikið. Mér fannst þetta oft, fyrir mig persónulega, svolítið mikið af stöðubreytingum. Sérstaklega síðustu tvö ár, sem er bara erfitt og það var oft erfitt að ná alvöru stöðugleika. Bjarni er fjölhæfur leikmaður en festist aldrei í ákveðnu hlutverki hjá Val, enda aldrei undir stjórn sama þjálfara í heilt tímabil. vísir / guðmundur Það hefur auðvitað mikið verið rætt og ritað um okkur, yfirleitt neikvætt, þannig að hópurinn varð alltaf þéttari og þéttari þegar leið á. Ég ber rosalega sterkar tilfinningar til leikmannahópsins, það var erfitt að fara. Ég viðurkenni það, það komu smá tár þegar ég var að kveðja ákveðna einstaklinga. Eins og ég segi, þetta er búið að vera mikið, en öll árin mín fórum við áfram í Evrópu, við fórum í undanúrslit og úrslit í bikar, við lentum í þriðja og öðru sæti. Ég held að það sé margt verra en það,“ sagði Bjarni Mark að lokum. Fjallað var um félagaskipti Bjarna Mark í Sportpakka Sýnar í gærkvöld. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan.
Besta deild karla Valur Sænski boltinn Mest lesið HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Enski boltinn Tré felld vegna Þjóðarhallar Sport Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Íslenski boltinn Liverpool - Chelsea | Stórleikur í deildarbikarnum Enski boltinn Fleiri fréttir Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Omar Sowe kominn í KR-treyjuna „Úff, hvað er ég búinn að koma mér út í hérna?“ „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira