„Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Smári Jökull Jónsson skrifar 28. ágúst 2026 12:01 Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Hákon VIII sem tekinn er við sem konungur Noregs. Vísir/Forseti Íslands/Kongehuset Haraldur V Noregskonungur lést í morgun, áttatíu og níu ára að aldri. Halla Tómasdóttir forseti Íslands segir að með honum sé farinn afskaplega góður maður og segir að Hákon VIII, sem tekinn er við krúnunni, muni gera það af ábyrgð.
Greint var frá andláti konungs á heimasíðu norsku konungshallarinnar í morgun. Heilsu Haraldar hafði hrakað hratt síðustu daga en hann var 89 ára gamall og hafði verið konungur frá því í byrjun árs 1991. Haraldur skilur eftir sig drottninguna Sonju og tvö börn, Hákon sem nú er orðinn konungur og Mörtu Lovísu. Þjóðarsorg hefur verið lýst yfir í Noregi sem mun vara þar til Haraldur hefur verið borinn til grafar. Halla Tómasdóttir forseti Íslands segir að með Haraldi fari afskaplega góður maður. „Ég vil byrja á því að votta norsku þjóðinni og konungsfjölskyldunni mína dýpstu samúð. Að mínu mati var Haraldur einstaklega hlýr maður með góða kímnigáfu. Hann naut greinilega mikillar virðingar og væntumþykju, bæði í Noregi en líka langt út fyrir landamæri Noregs,“ segir Halla í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Halla segir að Haraldi hafi þótt einstaklega vænt um sameiginlega sögu Íslands og Noregs. „Það var gaman þegar ég var í heimsókn í okkar opinberu heimsókn í Noregi að finna hvað áhugi hans var mikill á íslenskri tungu, íslenskum bókmenntum, íslenskri náttúru en aðallega talaði hann sífellt um skyldleika og vináttu okkar Íslendinga og Norðmanna og það var einlægt,“ segir Halla en hún fór í opinbera heimsókn til Noregs á síðasta ári. Halla nefnir sérstaklega kímnigáfu Haraldar. „Við áttum vissulega krefjandi samtöl, bæði á síðasta ári og aftur þegar við hittumst í vor í Svíþjóð í afmæli Svíakonungs, um stóru málin sem samfélög okkar og heimurinn allur standa frammi fyrir, að það var stutt í léttleikann og brosið.“ „Við hlógum heilmikið saman þrátt fyrir að vissulega hafi hann og hans fjölskylda átt erfiða tíma að undanförnu.“ Skemmtileg tenging nýs konungs og eiginmanns Höllu Tilkynnt hefur verið að Hákon taki upp nafnið Hákon VIII og ætlar hann að halda kjörorðum föður síns sem voru Alt for Norge. Forsetinn segir að Hákon muni taka við hlutverkinu af ábyrgð. „Hann er hlýr eins og faðir hans var, hann er yfirvegaður og kannski eilítið nútímalegri leiðtogi. Ég fann sterkan áhuga og ástríðu hjá honum fyrir mörgum af þeim málum sem ég hef unnið að. Fyrir ábyrgð í umhverfismálum, fyrir ábyrgð fyrir velsæld ungsfólks og vináttu Norðurlanda. Þannig að okkar góða vináttusamtal mun vafalaust halda áfram,“ segir Halla og minnist síðan á skemmtilega tengingu Hákonar og Björns Skúlasonar eiginmanns hennar. „Svo má kannski segja að mér finnist pínulítið eins og ég þekki hann því Hákon er fæddur sama dag og ár og eiginmaður minn sem er ótrúleg tilviljun. En gerði það að verkum að mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn.“ „Ég held að Sonja drottning hafi fundið fyrir því líka þegar hún hitti eiginmann minn, það var eitthvað fallegt og persónulegt í því líka.“ „Hann mun fara fallega með þá arfleið“ Aðspurð hvort búast megi við mikilli breytingu með nýjum konungi segir Halla að Hákon VIII muni setja mark sitt á embættið með góðum hætti. „Ég held það sé þannig eins og þegar Friðrik stígur í fótspor móður sinnar í Danmörku, að þá mótar hann að einhverju leyti hlutina eftir eigin persónu og áherslum en ber vissulega mikla virðingu fyrir þeirri arfleið sem hann tekur við. Hákon mun líklega gera slíkt hið sama.“ „Faðir hans nýtur og hefur notið þannig velvilja og vinsælda innan Noregs og utan að Hákon mun fara fallega með þá arfleið,“ segir Halla Tómasdóttir forseti Íslands.
Noregur Kóngafólk Haraldur V Noregskonungur Hákon VIII Noregskonungur Forseti Íslands Halla Tómasdóttir Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Fleiri fréttir „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira