Við getum valið að hætta að rífast – um krónuna Dagbjört Hákonardóttir skrifar 28. ágúst 2026 09:01 „Dagbjört, að ég ætla auðvitað að segja já“ sagði mér 99 ára gamall maður í símtali í vikunni. Hann lét fylgja máli að félagar hans væru sumir óttaslegnir um að Ísland yrði selt á silfurfati til erlendra afla sem ásældust allt það sem okkur þykir vænst um. Fiskimiðin, vatnsföllin, vindinn og víðernið. Nýr félagi minn sagðist ekki hafa áhyggjur af því, enda treysti hann stjórnvöldum ágætlega og slíkt væri ekki á borðinu. „Við þurfum að losna undan þessu Dagbjört. En þeir sem öllu ráða og enga samkeppni vilja sjá, vilja hafa þetta óbreytt.“ Vinur minn var ekki að tala um Alþingi, þar sem það hefur fært valdið út fyrir sal þingsins í hendur þjóðarinnar. Þessi barátta hefur verið skrautleg. Óvænt stjarna hennar er EES-samningurinn annars vegar og íslenska krónan hins vegar. Hinn fyrrnefndi er frábær, hin síðarnefnda ekki. Segja má að íslenska krónan henti sumum íslenskum fyrirtækjaeigendum og öðrum atvinnurekendum að ýmsu leyti mjög vel – en ekki að því leyti sem þessir hópar halda fram opinberlega. Sveigjanleikinn þeirra á ekkert í sundrun baráttunnar. Meiri bið býr ekki til frið – nema þá fyrir atvinnurekendur Það er skrýtið að hugsa til þess að öflin sem tala fyrir nei nota það gjarnan sem rök að vilja leysa almenning undan því að tala um möguleika okkar innan ESB og tækifæri sem gætu skapast með því að bindast eða nota evru – þetta sé svo átakanleg umræða. Á meðan bíður annað samtal. Það er samtalið um hvort íslensk verkalýðs- og kjarabarátta geti einn daginn fengið andrými til að einbeita sér með sama hætti og félagar þeirra á Norðurlöndum að öðru en að endurheimta kaupmátt. Skilaboðin eru skýr: Það er bannað að tala Ísland upp og tækifærin þarna úti, en gerum almenning endilega afhuga kjarabaráttu með því tala um óskiljanlegar leiðir til að kljást við stjórnlausan gjaldmiðil í stétta- og kjarabaráttu. Vöfflujárnið sem kólnar aldrei Hugsið okkur bara hvernig það væri ef við gætum gefið okkur tíma til að ræða önnur kjaramál meira en við gerum um verðbólgu og vexti. Um öflugan óhagnaðardrifinn leigumarkað og húsnæðisöryggi venjulegs launafólks. Um vinnutíma og heilbrigðar aðstæður á vinnustöðum. Um símenntun á tímum þar sem gervigreind og sjálfvirknivæðing ryðja sér til rúms og stórfækka sérfræðistörfum. Um launajafnrétti, neytendavernd og raunverulega samkeppni. Um að uppræta launaþjófnað, vinnumansal og félagsleg undirboð. Þessi mál ber vissulega á góma, en hér verðum við að viðurkenna að þau fá ekki þá athygli sem þau verðskulda. Skyldi það kannski vera að það henti ákveðnum hópum vel að megnið af afli verkalýðshreyfingarinnar fari í að semja um krónutöluhækkanir sem verðbólga, vextir og verðtrygging byrja að hrifsa til sín áður en vöfflugrillið er kólnað í Borgartúni? Sjáið hvað við gátum aldrei gert sjálf Stjórnarandstaðan keppist við að lýsa vanmætti stjórnvalda gegn verðbólgu en færri lausnir eru nefndar sem leiðir að þeim áfangastað sem aldrei hefur raungerst í lýðveldissögunni – langvarandi stöðugleika íslensku krónunnar. Ég hlakka til að sjá lagafrumvarpið frá fulltrúum stjórnarandstöðunnar um lögfestingu friðar við Persaflóa eða hvernig stórefla má stöðu krónunnar á alþjóðamörkuðum, sem sæma ætti þessum stórkostlega gjaldmiðli. Við bíðum líka spennt eftir því að sjá hvort Sjálfstæðisflokkurinn hafi fundið fleiri eignir ríkissjóðs til að selja hæstbjóðendum líkt og flokkurinn lagði ofuráherslu á fyrir síðustu fjárlög. Og hvaða þjónustu á að skera niður? Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur boðað hallalaus fjárlög, og við ætlum að standa við þau. Okkar óstöðugleiki eru þeirra völd Félagi minn var vongóður um að já fáist í atkvæðagreiðslunni á morgun, laugardag. Ég vona það líka, en ég veit hins vegar að rétta svarið mun koma upp úr kjörkössunum því þjóðin ræður för í þessu máli. Við erum hins vegar meðvituð um að það er erfitt að synda gegn þeim sem öllu ráða. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur afhenti þjóðinni valdið í þessu máli. Eitt er þó ljóst, að þótt við gengjum í ESB myndi það ekki öllu ráða hér á landi, en sú breyting yrði reyndar á málum að við myndum ráða einhverju í málaflokkum sem við höfum alfarið framselt til Brussel nú þegar. Ég er eiginlega ekki viss um að valdastéttin viti það, því ESB hefur almennt fært okkur sanngjarnar reglur sem fólk og fyrirtæki fer eftir með glöðu geði að mestu. En til er fámennur hópur fólks sem veit að ítök þeirra sjálfra myndu minnka samhliða meiri stöðugleika. Íslensk verkalýðsbarátta gæti hert róðurinn í fleiri málaflokkum og þjóðin fengi úr fleiru að velja. Það er ekki síst þess vegna sem ég og félagi minn tæplega tíræði, ætlum að segja já í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun, 29. ágúst 2026. Við viljum nefnilega líka fá að ráða, heima sem og í Evrópusambandinu. Og ef ég verð 99 ára, vona ég að ég fái að borga fyrir hárblásturinn í einhverju öðru en krónum. Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dagbjört Hákonardóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Sjá meira
„
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun