Angan lótusblómsins Meyvant Þórólfsson skrifar 26. ágúst 2026 19:30 Við getum ekki stigið tvisvar út í sama fljótið því nýtt vatn rennur stöðugt þar um, sagði gríski heimspekingurinn Herakleitos. Að sama skapi tökum við sjálf stöðugum breytingum líkt og heimurinn allur. Kyrrstaða er með öðrum orðum ekki til og ekkert er varanlegt. Ekkert er því fast í hendi, hvorki fagurgali Mörtu Kos um mögulegar undanþágur né barnslegar væntingar um lægri vexti, ódýrari pítsur eða lægra vöruverð. Sérlausnir verða aldrei varanlegar Þess vegna er frasinn „já til að sjá“ strangt til tekið kjánalegur. Þeir sem vilja segja „já“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu til að sjá hvað verði í boði hafa annaðhvort ekki skilið framangreint lögmál eða kosið að hunsa það. Það eina jákvæða við „já til að sjá“ er að með því hefur skapast vinna fyrir leikarastéttina; hún nýtur sín þar greinilega. Að kíkja í pakka ESB er álíka villandi og að góna á yfirborðsfegurð lótusblómsins; angan þess og áhrif eru þekkt fyrir að glepja mönnum sýn, svo þeir glata ábyrgð og skyldum. Allt gleymist þegar sæluvíma lótuslandsins nær völdum, jafnt fortíðin, heimahagarnir og framtíð eigin afkomenda. En fæstir gefa því gaum að lótusplantan teygir sig langa leið gegnum vatnið niður í ræturnar, sem hvíla í lítt geðslegri drulluleðju. Yfirborðsangan lótuslandsins suður í Brussel er að sama skapi ljúf, en sama verður ekki sagt um lítt geðslega drulluna sem rætur þess hvíla í. Í kynningartexta, sem lögfræðingar Lagastofnunar HÍ tóku saman fyrir landskjörstjórn, segir að væntanlegar viðræður muni m.a. snúast um „fresti, sérlausnir og undanþágur Íslands frá regluverki Evrópusambandsins“ verði af þeim. Annaðhvort hafa lögfræðingarnir villst þar af leið eða komist yfir óvænta véfrétt spádísarinnar í Delfí, af því áreiðanlegar heimildir fyrir slíku er hvergi að finna. Eins og dæmin sanna getur ekkert af því, sem ESB vill „sýna“, orðið varanlegt. Nýlegt dæmi var skammvinn ívilnun, sem sambandið hafði lofað Írum varðandi fiskveiðar á eigin landgrunni, en dró síðan til baka. Evrópudómstóllinn ræður för Allt tal um sérlausnir og undanþágur verður aldrei annað en ábyrgðarlaust hjal. Framangreindar hugmyndir verða því að skoðast sem viðhorf sérfræðinganna sjálfra eða þeirra aðila, sem fólu þeim að reyna að upplýsa þjóðina „á hlutlausan hátt“ um mögulegar aðildarviðræður. Ótrúlega margir hanga á því eins og hundar á roði að afdráttarlaus staðfesting geti fengist um yfirráð yfir eigin auðlindum, komi til aðildarviðræðna. Jafnvel þótt slík „staðfesting“ fengist nú yrði hún vitanlega ekki varanleg. Allt er tímabundið og breytilegt, samningarnir jafnt eins og fólkið sem nú á í hlut. Sú tíð kemur að Marta Kos og Þorgerður Katrín munu heyra sögunni til eins og við öll. En Ísland mun sitja fast í leðju svartholsins suður í Brussel um langan aldur, ef tekst að draga það þangað inn á annað borð. Mest er um vert að Evrópudómstóllinn getur hæglega fellt öll forréttindi úr gildi, þvert á trú manna að um þau hafi verið samið varanlega. Um þetta eru staðfest dæmi, þar sem lög sambandsins standa ofar lögum aðildarríka frammi fyrir dómstólnum, sbr. ENEL-málið á Ítalíu og Van Gend en Loos í Hollandi. Grunnreglur ESB á borð við Lissabon-sáttmálann eru í stöðugri þróun, sem miðar að því að lög og samningar aðildarríkja skuli ævinlega víkja, ef á reynir fyrir dómstólum. Af hverju? Átök og umræður um tildrög og afleiðingar þjóðaratkvæðagreiðslunnar næsta laugardag hafa verið vægast sagt skrautleg. Rætt er um yfirráð yfir auðlindum, tengsl við EES-samninginn, viðskiptasamninga, evru vs krónu með verðtryggingu og breytta heimsmynd. En af hverju hafa leiðtogar valkyrjustjórnarinnar forðast að tala um eftirfarandi stórmál, ef til aðildarviðræðna kemur? 1. Útlendingamál, til dæmis ruglingslega túlkun íslenskra stjórnvalda á fólksflutningasáttmála SÞ frá 2018? Og gildistöku nýs sáttmála Evrópusambandsins um málefni innflytjenda og hælisleitenda frá 12. júní á þessu ári, sem m.a. kveður á um svokallað samstöðukerfi, er skyldar aðildarríki til að taka á móti tilteknum fjölda flóttamanna frá Suður-Evrópu? Þar er að mörgu að hyggja í þeim efnum ef til viðræðna kemur, t.d. kostnaður sem því fylgir íslenska ríkið. 2. Stefnu ESB um að tengja öll aðildarríki á einn orkumarkað, umræðu um lagningu sæstrengja og áhrif á orkuverð hér í framtíðinni, sem mun væntanlega hækka umtalsvert þessu samfara. 3. Hver eða hverjir af Íslands hálfu munu ráða för við samningaborðið ef af verður? Mun utanríkisráðherra hafa þar frjálsar hendur? Mun hún velja sjálf þá fulltrúa sem henni hugnast að hafa þar með sér? 4. Það fylgir því að „kíkja í pakkann“ að fá að vita hvað allt þetta kostar. Af hverju segja stjórnvöld ekkert um það? 5. Urmull af reglum hefur læðst inn í íslensk lög gegnum EES-samninginn frá ESB, m.a. um umhverfismál, losunarheimildir, vinnumarkaðsmál og stafræna þjónustu. Reglur um lánshæfis- og greiðslumat frá 2013 komu t.d. frá ESB. Sömuleiðis reglur um þátttöku íslenskra ungmenna á vinnumarkaði og reglur um rekjanleika matvæla. Dæmi um það síðastnefnda: Ef plastmerki brotnar af nauti á leið til slátrunar hér landi verður nautinu ekki slátrað, heldur fargað. Er þetta reglugerðafargan fylgjandi EES aðeins forsmekkur þess sem vænta má með mögulegri aðild Íslands að ESB? 6. Loks: Hefur því verið fullsvarað hvort íslensk stjórnsýsla mun ráða við hugsanlega aðlögun að ESB hvað varðar mannafla, kostnað (beinan og óbeinan), rekstur stofnana og pólitíska stöðu í síbreytilegum heimi? 7. Nefna má fjömargt annað, sem stjórnvöld hafa ekki lagt sig fram um að svara varðandi væntanleg samningsmarkmið. Höfundur er háskólakennari á eftirlaunum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar