Nei við ESB er ekki nei við Evrópu Monika Margrét Stefánsdóttir skrifar 28. ágúst 2026 07:01 Í síðustu grein minni, “Er ég að bregðast börnunum mínum með því að segja NEI?” skrifaði ég um persónulegar ástæður þess að ég segi nei við aðild Íslands að Evrópusambandinu. En nei eitt og sér er auðvitað ekki röksemd svo hver eru rökin mín? Fyrst finnst mér mikilvægt að taka eitt fram: Nei við ESB er ekki nei við Evrópu. Ísland tekur nú þegar mikinn þátt í evrópsku samstarfi í gegnum EES. Við erum hluti af innri markaðnum og frjálsu flæði vöru, þjónustu, fólks og fjármagns og það samstarf vil ég áfram. Ég vil að Íslendingar geti stundað nám, starfað, ferðast og átt viðskipti yfir landamæri. Ég vil að íslensk fyrirtæki hafi aðgang að erlendum mörkuðum og að við tökum virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi. Spurningin fyrir mér er því ekki hvort við eigum að vinna með Evrópu því auðvitað eigum við að gera það. Spurningin er hversu langt við viljum ganga í sameiginlegri ákvarðanatöku og á hvaða sviðum. Við þekkjum hafið okkar í kringum Ísland Sjávarútvegur vegur þungt í minni afstöðu. Við Íslendingar búum yfir gríðarlegri reynslu og þekkingu á nýtingu fiskveiðiauðlindarinnar. Við höfum lært af mistökum, tekið erfiðar ákvarðanir og byggt upp mikla sérþekkingu á hafinu og fiskistofnunum í kringum landið. Kerfið okkar er ekki hafið yfir gagnrýni, langt því frá, en ég hef mikla trú á getu okkar til að stjórna fiskveiðum okkar sjálf. Fyrri kynslóðir Íslendinga börðust fyrir yfirráðum okkar yfir fiskimiðunum þegar fiskveiðilögsagan var færð út á síðustu öld. Rétturinn til að ráða yfir auðlindunum í hafinu er því ekki eitthvað sem mér finnst sjálfsagt að færa inn í sameiginlega stefnumótun. Ég hef hlustað á það sem utanríkisráðherra og forsætisráðherra hafa sagt um sjávarútvegsmálin og möguleika Íslands á að semja um sérstakt fyrirkomulag. Ég geri ekki lítið úr þeim sjónarmiðum og efast ekki um að íslensk stjórnvöld færu inn í aðildarviðræður með skýr markmið um að verja íslenska hagsmuni. En þar liggur einmitt hluti af mínum efasemdum. Hvers vegna ættu aðildarríki Evrópusambandsins að samþykkja varanlegt sérstakt fyrirkomulag fyrir Ísland á jafn mikilvægum málaflokki og sjávarútvegi, ef það felur í sér annað fyrirkomulag en almennt gildir innan sambandsins? Ég er ekki að segja að það sé ómögulegt, ég vil einfaldlega ekki ganga út frá því að það sé sjálfgefið. Það er grundvallarmunur á því hvað við viljum semja um og hvað aðildarríki Evrópusambandsins eru tilbúin að samþykkja. Ég skil vel svarið: Við fáum ekki að vita hvað hægt er að semja um nema við förum í samningaviðræður, og það er alveg rétt. En fyrir mér snýr spurningin öfugt: Ef ég tel núverandi stöðu Íslands í sjávarútvegsmálum þjóna okkur vel, hvers vegna ætti óvissan um hvort við getum samið okkur að ásættanlegri niðurstöðu að vera rök fyrir því að ég segi já? Þeir sem vilja aðildarviðræður vilja sjá hvað fæst út úr þeim skiljanlega en ég tel að þegar kemur að jafn mikilvægri auðlind og fiskimiðunum okkar þurfi sterk rök fyrir því að breyta þeirri stöðu sem við höfum í dag. Enn sem komið er hef ég ekki fengið þau. Við erum enn eyja Sama hugsun á að mörgu leyti við um landbúnað. Landbúnaðarkerfið okkar er ekki gallalaust. En við höfum byggt hér upp innlenda matvælaframleiðslu sem skiptir okkur miklu máli. Matvælaöryggi þýðir ekki að við eigum að framleiða allt sem við borðum sjálf en það þýðir hins vegar að við eigum að varðveita raunhæfa getu til innlendrar framleiðslu. Ísland verður áfram eyja úti í Atlantshafi, hvort sem við göngum í Evrópusambandið eða ekki. Heimsfaraldur, stríð, náttúruhamfarir og truflanir á alþjóðlegum aðfangakeðjum hafa minnt okkur á hversu hratt aðstæður geta breyst og því meigum við aldrei sofna á verðinum þegar kemur að matvælaöryggi. Einnig þurfum við líka að auðvelda nýrri kynslóð að taka við búum og skapa raunhæfar leiðir fyrir ungt fólk sem vill hefja störf í landbúnaði. Því spyr ég: Hvers vegna ætti ég að ganga út frá því að lausnir á þessum séríslensku áskorunum verði betur fundnar í Brussel en hér heima? Ég sé enga ástæðu til þess og það þýðir ekki að við eigum ekki að læra af öðrum þjóðum því auðvitað eigum við að gera það. En samstarf og aðild eru ekki sami hluturinn. En hvað með krónuna? Ég hef ekki tekið endanlega afstöðu til þess hvort íslenska krónan, í þeirri mynd sem við þekkjum hana í dag, sé besti kosturinn fyrir Ísland til framtíðar. En mér finnst mikilvægt að aðskilja tvær spurningar sem oft eru settar saman: Viljum við ganga í Evrópusambandið? Hvernig viljum við haga gjaldmiðils- og peningamálum okkar til framtíðar? Ég get verið þeirrar skoðunar að Ísland eigi ekki að ganga í Evrópusambandið og á sama tíma verið opin fyrir því að endurskoða framtíð krónunnar. Ísland er lítið og auðlindadrifið hagkerfi þar sem breytingar í sjávarútvegi, orku og ferðaþjónustu geta haft mikil áhrif. Þess vegna hef ég efasemdir um hversu vel sameiginleg peningastefna evrusvæðisins myndi henta okkur þegar íslenskar aðstæður fara ekki saman við aðstæður stærri hagkerfa Evrópu. Það þýðir ekki að ég vilji verja krónuna hvað sem það kostar. Ef núverandi fyrirkomulag þjónar okkur ekki nægilega vel eigum við að skoða aðrar leiðir, þar á meðal mögulega gengistengingu við stærri gjaldmiðil. Krónan má vera til umræðu án þess að ESB-aðild sé sjálfkrafa svarið. Já-liðar hafa líka gild rök Það væri ekki trúverðugt af mér að tala um mikilvægi þess að hlusta á allar hliðar og láta síðan eins og engin góð rök séu til fyrir ESB-aðild því auðvitað eru þau til. Þótt Ísland taki upp mikið af regluverki ESB í gegnum EES höfum við ekki sömu formlegu aðkomu að lokaákvörðunum innan stofnana ESB og aðildarríkin. Ég skil því vel þau rök að betra sé að sitja við borðið þar sem reglurnar eru samþykktar, það eru gild rök en fyrir mér vegur sú aukna aðkoma ekki upp á móti því að fleiri málaflokkar yrðu um leið hluti af sameiginlegri stefnumótun sambandsins, þar á meðal málaflokkar sem EES nær ekki yfir í dag. Við getum vegið sömu staðreyndir og komist að sitthvorri niðurstöðunni. Það er ekki vanþekking. Það er lýðræðisleg umræða. Og þar liggur kannski kjarninn í minni afstöðu. Ég tel ekki að allt sé betra bara af því að við ráðum því sjálf, ég tel ekki að Ísland hafi alltaf tekið réttar ákvarðanir og ég tel alls ekki að við eigum að loka augunum fyrir því sem aðrar þjóðir gera betur en við. Við eigum að læra, breyta og bæta. En þegar kemur að því að færa meira ákvörðunarvald frá Íslandi og inn í sameiginlegt kerfi þarf ég að vera sannfærð um að ávinningurinn sé meiri en það sem við gefum eftir. Enn sem komið er er ég það ekki og segi því NEI á laugardaginn. Höfundur er oddviti Framsóknar og óháðra í Dalvíkurbyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun