Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar 26. ágúst 2026 11:30 Ég bjó í Danmörku í yfir 7 ár og er enn með annan fótinn þar, fylgist vel með fréttum og sérílagi af ESB samskiptum Dana. Í því ljósi er sérstakt að sjá ýktar og rangar fullyrðingar margra um ESB. Mætti t.d. vitna í grein Kristínar Völu Ragnarsdóttur prófessors emerita í Vísi þann 17. ágúst s.l. Kostnaður við ESB og afturhaldsmenn Þegar miðað er við hlutfall kostnaðar Dana síðasta ár (m.v. verga landsframleiðslu á mann) gæti framlag Íslands legið á bilunu 10 til 20 ma.kr. en ekki 50, 90 eða 500 ma.kr. eins og fullyrt er í Mogganum. Segja má að fullyrðinar „Nei“kvæðra um kostnað við ESB séu hreint glórulausar. Þá er sérstakt að sjá afstöðu afturhaldsmanna til ESB og þá innhverfu og þröngsýnu innilokunartstefnu sem þeir boða. Manna sem fullyrtu við gerð EES samningsins árið 1993 að Ísland myndi “gefa auðlindir lands og sjávar”,”afsala sér fullveldinu” eða “ESB myndi krefjast auðlinda okkar” og “yfirtaka orkulindir landsins”. Það virðist sem systurnar Óhamingja, Óstjórn og Ofstjórn tröllríði hugum þeirra. Innganga Dana og Evrópuherinn Í annan stað mætti rifja upp þegar Danir samþykktu að ganga í Evrópubandalagið (forvera ESB). Í undanfari kosninganna 2. októrber 1972 börðust „með“ og „á móti“ fylkingarnar hatramlega . Í kosningum var met þátttaka, 90,1 % kusu og jákvæðir unnu með 63,4 % á móti 36,9 %. Samið var um mörg mál sem enn eru í gildi og munu gilda um ófyrirsjáanlega framtíð. Þann 2. júní 1992, þegar breyta átti Evrópubandalaginu í ESB, þá höfnuðu Danir Maastricht sáttmálanum í almennum kosningum, (með 50,71 % á móti 49,28 %) sem í kjölfarið var breytt með Edinborgarsamkomulaginu. Breytingar fólu meðal annars í sér: Danir höfnuðu samstarfi ESB um dóms- og innanríkismál. Danmörk er ekki bundin af lögum um málefni landamæraeftirlits, innflytjendastefnu, einka- og refsiréttar eða lögreglusamstarfs og hefur Danmörk ekki atkvæðisrétt um þessi mál í ráðinu. Undanþága í öryggis- og varnarmálum gerði Danmörku kleift að taka ekki þátt í að leggja drög að, framkvæma eða fjármagna hermál. Danmörk gat því ekki fjármagnað eða tekið þátt í hernaðaraðgerðum ESB. Þessu var breytt nokkrum mánuðum eftir innrás Rússa í Úkraínu og styðja Danir Úkraínu fjárhagslega. Danmörk þarf ekki að taka upp evru og er óbundið af sérstökum reglum ESB um efnahagsstefnu. Danir hafa haldið núverandi valdheimildum sínum á sviði peningamálastefnu samkvæmt dönskum landslögum og reglum. Danmörk tekur ekki þátt í bankaráði Seðlabanka Evrópu, þó danska krónan sé bundin evrunni (ERM II) Danir samþykktu síðan breyttan samning þann 18. maí 1993 (framangreint er tekið af vef Danska þingsins). Þannig er ljóst að samið er við einstök lönd um mikilvæg málefni löngu eftir að þau eru gengin í ESB, ekki bara í upphafi. Og Evrópuherinn sem ekki hefur verið ákveðið að stofna. Danir myndu örugglega taka afstöðu á móti sameiginlegum her ef kosið yrði um það í almennum kosningum, með sambærilegum hætti og þeir felldu upphaflega Maastricht sáttmálann. Staða Íslands Gangi vel að semja við ESB og ef samningur verður samþykktur, þá má gera ráð fyrir að sjávar- og eldisafurðir verði fullunnar í meira mæli hérlendis, hærra verð fengist og tollar myndu falla niður. Fullvinnsla hérlendis í neytendaumbúðir myndi skapa ný störf, verðmætari vara yrði flutt út og með niðurfellingu tolla gætum við verið að tala um nokkra tugi milljarða í auknar tekjur fyrir Ísland. Og við munum nokkuð víst taka þátt í mótum fiskveiðistefnu ESB (með setu í nefndum og ráðum) enda með yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af stjórnun fiskveiða. Höfundur er verkfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar