„Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk Ægi með spýtu eftir allt saman Eiður Þór Árnason skrifar 24. ágúst 2026 17:37 Haukur Ægir sést hér lengst til hægri. Vísir/Vilhelm Ríkissaksóknari hefur fellt úr gildi þá ákvörðun embættis héraðssaksóknara að ákæra ekki svokallaðan skutlara, sem hlaut dóm fyrir að áreita stúlku kynferðislega áður en aðstandandi stúlkunnar veittist að honum, fyrir að berja aðstandandann í höfuðið með spýtu í átökum þeirra.
Hefur embætti héraðssaksóknara verið gert að gefa út ákæru í málinu. Þetta staðfestir Karl Ingi Vilbergsson, saksóknari hjá embættinu, við fréttastofu en Nútíminn greindi fyrst frá. Mál skutlarans hefur vakið talsverða athygli en Haukur Ægir Hauksson, sem var einn sakborninga í Sólheimajökulsmálinu svokallaða, var ákærður fyrir að hafa reynt að myrða hann í kjölfar kynferðisbrotsins. Hann var í apríl í fyrra dæmdur til eins árs fangelsisvistar fyrir líkamsárás gagnvart skutlaranum en sýknaður af ákæru fyrir tilraun til manndráps. Skutlarinn var í janúar í fyrra dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa aðfaranótt laugardagsins 11. mars 2023, í bifreið sem hann ók, á leið frá Hafnarstræti að ótilgreindum stað í Reykjavík, káfað á brjóstum og kynfærum stúlkunnar innanklæða og reynt að kyssa hana tungukossum. Í dómi héraðsdóms var sérstaklega tekið fram að við ákvörðun refsingar yrði litið til þess að í framhaldi af atvikum málsins hafi verið ráðist alvarlega á manninn og hann hefði ekki enn jafnað sig fyllilega af þeirri árás. Í nóvember dæmdi Landsréttur manninn í eins árs fangelsi og taldi, í ljósi skilorðsrofs hans á fyrri dómi og alvarleika brotsins, ekki efni til að binda refsinguna skilorði. Haukur Ægir steig fram og kvaðst vera ranglega sakaður um tilraun til manndráps. Fullyrti hann í hlaðvarpinu Brotkasti að skutlarinn hefði átt upptök að átökum þeirra með því að lemja hann og vinkonu hans með kylfu. Vinkona hans er móðir stúlkunnar sem skutlarinn áreitti. Fréttin er í vinnslu.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Fleiri fréttir Ástand vega í lok sumars, nýtt einkunnakerfi og himinlifandi pysjur Fegin að heyra í skólabjöllunni eftir heilt sumar af „námskeiðakvíða“ „Skutlarinn“ ákærður fyrir að berja Hauk með spýtu eftir allt saman Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju Sjá meira