Innlent

Tíma­bundin breyting á opnunar­tíma Sund­hallarinnar

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Endurbætur á búningsklefum Sundhallarinnar í Reykjavík sem hófust fyrr í sumar reyndust umfangsmeiri en gert var ráð fyrir og standa enn yfir.
Endurbætur á búningsklefum Sundhallarinnar í Reykjavík sem hófust fyrr í sumar reyndust umfangsmeiri en gert var ráð fyrir og standa enn yfir. Reykjavíkurborg

Opnunartími Sundhallarinnar í Reykjavík verður tímabundið með breyttu sniði frá og með morgundeginum. Vegna framkvæmda þarf að miða við nýjan hámarksfjölda í lauginni. 

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg þess efnis segir að á meðan á framkvæmdum standi hafi karlar notað gamla búningsklefann á neðri hæð og konur báða útiklefana. Þessir klefar rúmi samtals um sextíu gesti og því þurfi að miða við þann hámarksfjölda í lauginni á meðan ráðstafanir eru í gildi.

Þegar skólasund hefst að nýju 25. ágúst þurfi því tímabundið að breyta opnunartíma Sundhallarinnar á virkum dögum þar til viðgerðum á kvennaklefa ljúki.

Opnunartíminn verði sem hér segir: 


Mánudagar: 06:30–10:00 og 14:00–22:00

Þriðjudagar: 06:30–08:30 og 14:00–22:00

Miðvikudagar: 06:30–22:00 (óbreyttur opnunartími)

Fimmtudagar: 06:30–08:30 og 15:00–22:00

Föstudagar: 06:30–10:00 og 15:00–22:00


Lögð sé áhersla á að ljúka framkvæmdum við búningsklefa eins fljótt og kostur er og koma starfsemi Sundhallarinnar aftur í hefðbundið horf. Vonast sé til þess að hægt verði að opna kvennaklefann að nýju á haustmánuðum.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þessar tímabundnu ráðstafanir kunna að valda. Jafnframt er bent á að árskort og aðrar áskriftir gildi í öllum Sundlaugum Reykjavíkur.


Tengdar fréttir

Fresta opnun Sundhallar Reykjavíkur

Reykjavíkurborg frestar fyrirhugaðri enduropnun Sundhallar Reykjavíkur um nokkra daga. Viðhaldsvinna hefur staðið yfir síðustu vikur sem átti að ljúka um helgina og átti að opna laugina á mánudag. Í tilkynningu segir að vegna „ófyrirséðra atriða“ í búningsklefum verði ekki hægt að opna á mánudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×