Innlent

Seinka skýrslu­töku malt­nesku læknanna

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Málið er tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands.
Málið er tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands. Vísir/Vilhelm

Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu heldur áfram í dag og stóð til að taka skýrslu af læknum á Möltu sem eiga að hafa séð um meðferð brotaþola ytra.

Tekin var skýrsla af fyrsta lækninum sem talaði ensku með aðstoð túlks. Þegar um tuttugu mínútur voru búnar og bæði sækjandi og verjendur voru búnir að spyrja spurninga stakk sækjandi upp á því að skýrslan yrði endurtekin.

Erfiðlega gekk fyrir túlkinn að þýða mál læknisins og sér í lagi þegar litið var til læknisfræðilegra hugtaka sem læknirinn notaði.

Tekið var undir tillögu sækjanda og ákveðið að endurtaka skýrslutökuna seinna. Þá var skýrslutöku hinna læknanna frestað um óákveðinn tíma þar til nýr túlkur fæst.

Skýrslutaka heldur samt sem áður áfram í dag, meðal annars yfir íslenskum læknum.


Tengdar fréttir

Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“

Tíu vitni komu fyrir dómara í aðalmeðferð í Reykholtsmálinu, þar á meðal yfirmaður og vinkonur brotaþola sem fór strax að gruna að eitthvað óeðlilegt hefði átt sér stað. Starfsmenn Símans og Landsbankans eru einnig vitni í málinu en systir Ingunnar Rutar Sigurðardóttur, sem er ákærð í málinu, skoraðist undan því að svara.

„Andlitið á honum var skakkt“

Dóttir brotaþola og barnsmóðir hans báru vitni í Reykholtsmálinu í dag. Barnsmóðirin lýsir því hvernig andlit hans var skakkt og fölt.

Fór úr landi af ótta um öryggi dóttur sinnar

„Áverkarnir verða alltaf,“ segir brotaþoli í Reykholtsmálinu svokallaða. Hann lýsti ofbeldi sem hann á að hafa orðið fyrir í apríl 2024. Töluvert ósamræmi var á milli frásagnar hans og öðru sem lagt hefur verið fyrir dóminn. Hann furðaði sig á spurningum verjanda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×