„Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Freyja Þórisdóttir skrifar 22. ágúst 2026 23:40 Það andar verulega köldu milli þeirra Mark Carney forsætisráðherra Kanada og Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Óljóst er hvernig viðskiptasamband ríkjanna tveggja geti spilast út nú þegar viðræður hafa að mestu leyti runnið út í sandinn. AP Forsætisráðherra Kanada hefur sagt að bylgju bandarískra tolla á landið sé ætlað að „skaða og sundra okkur“, eftir að viðskiptaviðræður fóru út um þúfur á dögunum. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ítrekað tilkynnt nýja íþyngjandi tolla og nú hefur forsætisráðherrann sagst ætla að jafna bandaríska tolla „dollara fyrir dollara“ frá og með 8. september. „
Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið,“ er haft eftir Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, í umfjöllun breska ríkisútvarpsins (BBC) um málið en hann flutti ræðu um málið í morgun, laugardaginn 22. ágúst, þar sem hann sagði einnig að landið væri nú í „viðskiptastríði“ eftir að hafa þurft að þola nýja íþyngjandi tolla frá Bandaríkjunum. Ekki múkk frá Trump Greint var frá því í morgun að hann hafi sagst myndi jafna bandaríska tolla „dollara fyrir dollara“ frá 8. september, þar á meðal álögur á stál, mjólkurvörur, heimilistæki og raftæki. Hrun viðskiptaviðræðnanna kollvarpi djúpt samþættu viðskiptasambandi tveggja bandamanna, ríkisstjórna Kanada og Bandaríkjanna, án þess að nein skýr lausn sé í sjónmáli. Þá hafi Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, enn ekki tjáð sig. Ráðamenn hafi verið bjartsýnir á samkomulag fyrr í vikunni, en viðræður farið út um þúfur eftir að báðir aðilar hafi sakað hvorn annan um að gera breytingar á síðustu stundu. Brugðist við með tregðu Nú þegar viðræður hafi siglt í strand hefur Kanada orðið fyrir nýjum fimmtíu prósenta bandarískum tollum á ýmsar kanadískar vörur, til viðbótar við þá tolla sem voru fyrir, meðal annars á kanadískt stál, ál, bifreiðar og timbur. Nýju tollarnir eru takmarkaðir að umfangi og ná yfir stóran hluta af kanadískum innflutningi, þar á meðal vín, mjólkurvörur, sement, fatnað og íshokkíbúnað. Haft er eftir Carny að verið væri að bregðast við „með tregðu“ til að vernda hagsmuni Kanada. Upplýsingar um gagnaðgerðirnar verði birtar á næstu dögum.
Bandaríkin Kanada Skattar, tollar og gjöld Donald Trump Tengdar fréttir Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun um að leggja fimmtíu prósenta toll á ýmsar innfluttar vörur frá Kanada. Hann sakar Kanada um „ósanngjarna“ verðlagningu bandarískra vara þar í landi. 20. júlí 2026 22:56 Hótar tollum vegna skógareldanna Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að leggja nýja tolla á Kanada vegna skógareldana sem þar geisa í hundraðatali. Hann sakar Kanadamenn um gáleysi og að halda ekki skógunum sínum og sinu við. 18. júlí 2026 09:09 Mest lesið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Erlent Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Erlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Fleiri fréttir „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Sjá meira
Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur undirritað tilskipun um að leggja fimmtíu prósenta toll á ýmsar innfluttar vörur frá Kanada. Hann sakar Kanada um „ósanngjarna“ verðlagningu bandarískra vara þar í landi. 20. júlí 2026 22:56
Hótar tollum vegna skógareldanna Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hótað að leggja nýja tolla á Kanada vegna skógareldana sem þar geisa í hundraðatali. Hann sakar Kanadamenn um gáleysi og að halda ekki skógunum sínum og sinu við. 18. júlí 2026 09:09