Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir og Dögg Guðmundsdóttir skrifa 21. ágúst 2026 14:00 Kreatín Langflest okkar sem stundum reglulega hreyfingu reynum líka að borða næringarríkan og hollan mat til að styðja við vöðvauppbyggingu og endurheimt eftir æfingar. Langflestir taka líka bætiefni, en áætlað er að Evrópubúar hafi eytt um 22-26 milljörðum evra í fæðubótarefni árið 2025. Þar eru vítamín og steinefni stærsti hluti markaðarins. Vörur tengdar íþróttanæringu, eins og próteinvörur, kreatín og amínósýrur eru meðal þeirra vöruflokka sem vaxa hvað hraðast. Það er þó almennt ekki mælt með að taka bætiefni ef mataræði er fjölbreytt og næringarríkt og veitir næga orku. Eina undantekningin á þessum ráðleggingum er D-vítamín, sem er það fæðubótarefni sem öllum á Íslandi er ráðlagt að taka daglega. Um fæðubótarefni og önnur matvæli gilda reglur um hvaða fullyrðingar má nota í merkingum og auglýsingum, næringar- og heilsufullyrðingar. Aðeins má fullyrða um áhrif næringarefna ef rannsóknir rökstyðja vel og styðja við fullyrðinguna sem er sett fram og hún verið samþykkt af Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA). Þessar reglur eru til að vernda neytendur, svo hægt sé að meta hvort varan styðji raunverulega við heilsu á einhvern hátt og sé peningana virði. Á samfélagsmiðlum sjáum við mörg hver auglýsingar um kreatín og hvað það ætti að gera fyrir okkur en einungis tvær heilsufullyrðingar hafa verið samþykktar af EFSA fyrir notkun á kreatíni, sjá hér að neðan á ensku og lauslega þýtt. Leyfileg heilsufullyrðing á ensku Lausleg þýðing á leyfilegri heilsufullyrðingu á íslensku Skilyrði fyrir notkun heilsufullyrðingar Creatine increases physical performance in successive bursts of short-term, high intensity exercise Kreatín eykur líkamlega frammistöðu við endurteknar lotur af skammvinnri, ákafri áreynslu Má einungis nota fullyrðinguna ef varan er ætluð fullorðnum einstaklingum sem æfa við skammvinna ákafa áreynslu og ef hún tryggir 3 grömm af kreatíni á dag Daily creatine consumption can enhance the effect of resistance training on muscle strength in adults over the age of 55 Dagleg neysla kreatíns getur aukið áhrif styrktarþjálfunar á vöðvastyrk hjá fullorðnum eldri en 55 ára Má aðeins nota fyrir vörur sem beinast að fullorðnum eldri en 55 ára sem stunda reglulega styrktarþjálfun. Neytandi þarf að fá upplýsingar um að áhrifin fáist með 3 g kreatíns á dag samhliða styrktarþjálfun, að minnsta kosti 3 sinnum í viku í nokkrar vikur, með stigvaxandi álagi og ákefð sem nemur um 65–75% af hámarks þyngd sem viðkomandi getur tekið. Það er vel mögulegt að margir taki kreatín byggt á öðrum upplýsingum en það sem kemur fram í töflunni að ofan. En eins og staðan er núna höfum við ekki rannsóknir í höndunum sem styðja við ýmsar aðrar fullyrðingar sem settar eru fram á samfélagsmiðlum. Það er ágætt að benda á að EFSA taldi ekki nægileg gögn styðja heilsufullyrðinguna um að kreatín bæti vitræna starfsemi og ESB hafnaði fullyrðingunni formlega 26. maí 2026 með reglugerð. Prótein Annað bætiefni sem er oft mikið notað eða sett aukalega í matvæli er prótein. Eins má sjá mikla áherslu á prótein á samfélagsmiðlum auk þess að margar matvörur eru merktar sem “próteinríkar“. Í ráðleggingum um mataræði er mælt með að við fáum 10-20% orkunnar frá próteinum. Þetta samsvarar um það bil 1 grammi per kíló líkamsþyngdar, sem þýðir að einstaklingur sem vegur 70 kíló þarf í kringum 70 grömm af próteinum daglega, að meðaltali. Smá munur milli daga skiptir ekki miklu máli. Rannsóknir benda til að hjá flestu íþróttafólki sé um 1,5 g prótein/kg/dag nægjanlegt til að hámarka ávinning styrktarþjálfunar. Einstaklingar sem eru eldri en 65 ára ættu að fá um 15-20% orkunnar frá próteinum eða í kringum 1,2 g/kg/dag til að koma í veg fyrir tap á vöðvamassa með hækkandi aldri. Margir kunna að halda að nú þurfi að rífa fram reiknivélina, en í raun er þetta ekki svo flókið þegar kemur að prótein neyslunni. Einstaklingar sem borða þrjár góðar máltíðir á dag og millimál þess á milli, þar sem í máltíðum er að finna próteingjafa, eru líklega að uppfylla sína próteinþörf. Síðasta könnun á mataræði fullorðinna á Íslandi sýndi að meðaltalsneysla á próteini var 18% af orkuinntöku, sem er mjög ríflega neysla á próteinum, enda erum við sem þjóð almennt dugleg að borða matvæli sem eru próteinrík eins og kjöt, fisk, egg og mjólkurvörur Ef við erum að fá meira orku en við þurfum þá breytir líkaminn líka próteinum í fitu sem fer í fituforða líkamans. Einnig er mikilvægt að vita að líkaminn á erfiðara með að nota prótein sem orkugjafa en fyrir vöðvauppbyggingu. Fyrir hreyfingu þurfum við að fá næga orku og uppáhalds eldsneytið fyrir vöðvana eru kolvetni og fita. Annað sem gerist ef við fáum of mikið prótein er að mikil próteinneysla tekur pláss frá öðrum mikilvægum næringarefnum sem líkaminn gæti misst af. Hér er um að ræða til dæmis næringarefni sem eru í heilkornavörum, ávöxtum, grænmeti og mjúkri fitu. Við megum ekki gleyma því að til að þess að styðja við góða heilsu þurfum við að borða fjölbreytta og næringarríka fæðu – Hægt er að skoða Fæðuhringinn og Diskinn til að meta hvort við séum að borða fjölbreytt og um það bil í réttum hlutföllum. Samantekt Bætiefni eins og kreatín og prótein geta verið góð viðbót við fjölbreytt og næringarríkt fæði hjá fullorðnu afreksíþróttafólki, sérstaklega ef þau missa stundum úr máltíðir vegna æfingaálags (á sérstaklega við um próteinduft). Bætiefni geta einnig reynst vel þegar erfiðlega gengur að nærast sökum sjúkdóma og/eða ef útiloka þarf margar fæðutegundir. Ekki er æskilegt að gefa börnum og unglingum aukalega prótein eða mjög próteinríkar vörur, til að trufla ekki það mikilvæga jafnvægi sem þarf að vera til staðar milli mismunandi næringarefna sem líkaminn þarfnast. Að borða venjulegan mat reglulega yfir daginn er alltaf besti kosturinn og á því er grunnurinn byggður. Jóhanna er dósent við Miðstöð í lýðheilsuvísindum hjá Háskóla Íslands og verkefnisstjóri næringar hjá embætti landlæknis. Dögg er klínískur næringarfræðingur hjá Landspítalanum og eigandi Nútríment Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 12.09.2026 Halldór Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Má þjóðin aðeins fá að anda? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun EES er ekki eina leiðin og kannski ekki sú skynsamlegasta lengur Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Hver fær að skilgreina hvað þjóðin sagði? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Fjórfrelsið og EES fyrir Ísland Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar Skoðun Öldungaráð Reykjavíkurborgar tekið úr sambandi Viðar Eggertsson skrifar Skoðun Stöðugleiki á leigumarkaði Benedikt S. Benediktsson skrifar Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar Skoðun 5,2% gjaldahækkanir – skýr skilaboðin inn á vinnumarkaðinn Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvað gætum við gert fyrir 112 milljarða? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hamingjuóskir til allra sem sögðu nei Einar Helgason skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Háskólamenntun á útsölu! Tombóluprís – allt á að seljast. Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar
Skoðun Já heilbrigðisráðherra - sóknarfærin eru mörg þegar kemur að lýðheilsu barna Halla Þorvaldsdóttir skrifar
Skoðun Að PISA upp í vindinn – getur gervigreind þýtt námsefni fyrir börn? Steinþór Steingrímsson skrifar
Skoðun Hálfsársuppgjör staðfestir áhyggjur af fjármálum Seltjarnarness Kristinn Ólafsson skrifar