Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar 21. ágúst 2026 10:48 Ég fæ þessa spurningu undantekningalaust þegar ég kem í vinnuferðir heim til Íslands eftir að hafa flutt til Suður-Ítalíu fyrir tæpu ári síðan. Fólk heilsar mér brosandi og segir hvað sé gaman að sjá mig og svo kemur spurningin, oft með ákveðinni eftirvæntingu: „Er ekki alltaf brjálað að gera?“ Ég skil þessa spurningu vel. Við Íslendingar eru vinnusöm þjóð og stolt af því að vera dugleg, afkastamikil og með mörg járn í eldinum. „Brjálað að gera“ hefur orðið að hálfgerðu stöðutákni. Ég þekki það á eigin skinni, því ég var sjálf stórnotandi. Brjálað að gera... eða bara OF mikið? Ég hef starfað í íslensku atvinnulífi í áratugi, bæði sem stjórnandi mannauðsmála og sem sjálfstætt starfandi ráðgjafi. Ég hef alltaf elskað vinnuna mína og haft ástríðu fyrir að gera vel. Vetrarfríin komu yfirleitt aftan að mér af því ég var svo upptekin að ég gleymdi að skipuleggja þau. Sumarfríin voru stundum meira eins og verkefni sem þurfti að troða inn í dagskrána. Og dymbilvikan? Pökkuð. En mér fannst þetta æðislegt. Ég var að gera gagn fyrir íslenskt atvinnulíf. Ég var metnaðarfull. Ég var dugleg. Ég var verðmæt. Ég var ómissandi. Eða þannig leið mér alla vega. Ráðgjafinn sem féll í gildruna Einn daginn sat ég með stjórnanda sem hafði svo brjálað að gera að hann vissi ekki hvað sneri upp né niður. Hann hafði ekki tíma fyrir fjölskylduna, vinirnir sátu á hakanum, hugsanirnar voru út um allt og örmögnun var handan við hornið. Ég vinn við að styðja fólk við að hætta að hafa brjálað að gera, finna leiðir til að vinna á skynsamari hátt og velja meðvitað að verja tímanum í það sem skiptir raunverulega máli. Nema þennan dag, þar sem við stjórnandinn sátum að greina leiðir út úr vandanum, þá upplifði ég frekar óþægilega staðreynd. Ég sjálf var ekki að fara eftir eigin ráðum, heldur var pikkföst í „brjálað-að-gera-gildrunni“ og örmögnun var líklega ekki langt undan. Mér brá. Eftir vinnu bókaði ég því stefnumót með sjálfri mér. Bara ég, engiferte, hugurinn minn, blað og penni. Ég ákvað að hætta að pæla í hvernig ég myndi ná að komast yfir allt sem ég þurfti að gera. Í staðinn valdi ég að horfa inn á við. Hvað var ég í raun og veru að gera við tímann minn? Hvar var ég að gera mest gagn og skapa mesta virðið? Hvað var ég að gera af gömlum vana eða metnaði? Hvað var skemmtilegt og nærandi? Og hvað var alger óþarfi sem ég gat hætt að gera? Ég fann strax ótrúlega margar glufur og dýrmæti tíminn minn, þessi takmarkaða auðlind, var stöðugt að leka út um þær. Ég tók meðvitaða ákvörðun á staðnum. Ég tímdi ekki að eyða tímanum svona lengur. Krafturinn í hægari takti Stuttu síðar tókum við fjölskyldan ákvörðun um að flytja til Puglia á Suður-Ítalíu, meðal annars til að einfalda lífið okkar og læra betur að njóta þess. Þar suðurfrá er allt annar taktur í samfélaginu. Lífið er rólegra en hlutirnir ganga samt áfram. Ekki alltaf á sama hraða og við erum vön á Íslandi, en mér finnst það dásamlegt. Það er magnað að uppgötva hvað það er ótrúlega mikill kraftur falinn í hægari takti. Þegar við vorum búin að koma okkur fyrir í Puglia og rólegheitin voru orðin daglegt norm, þá fann ég hvað taugakerfið mitt var orðið laskað eftir allt brjálæðið. Ég þurfti hvíld. Endurstillingu. Rými fyrir lífið Smám saman fór ég að vinda ofan af mér. Breyta hugarfarinu. Fækka verkefnum. Breyta vinnulaginu. „Work smarter, not harder“. Stytta vinnudagana. Meira að segja fækka vinnudögum, sem mér hefði áður þótt algerlega óhugsandi. Helgarfrí komu aftur inn í myndina. Nema hvað, með tímanum gerðist dálítið sem ég hafði gleymt að væri mögulegt. Það myndaðist nýtt rými. Rými fyrir hvíld, hugmyndir og fólk. Rými til að gera ekki neitt, rými fyrir mig og fjölskylduna, rými fyrir lífið. Þá skildi ég að metnaður og velgengni hafa ekkert með það að gera hvort það sé brjálað að gera. Þvert á móti, ef það er alltaf brjálað að gera þá er hugurinn stöðugt á fullu og það verður minna rými fyrir sköpun, nýjar hugmyndir, hvíld, tengsl, upplifanir og hamingjuna í hversdagsleikanum. Við fjölskyldan völdum fyrir okkur að setja lífsgæði ofar annríki. Við völdum meiri ró og einfaldara líf. Ég er aldeilis ekki að halda því fram að fólk þurfi að flytja til Ítalíu til að skapa það líf sem það langar í. Það var bara gamall draumur sem við létum rætast í leiðinni. Markmiðið mitt með þessum skrifum er að vekja fólk til umhugsunar um að það er hægt að auka lífsgæðin og velja á meðvitaðri hátt hvernig við verjum tímanum okkar, óháð búsetu eða starfi. Það er hægt að skapa meira rými og tíma með því að staldra við og gera smávægilegar breytingar hér og hvar. Það þarf ekki að umbylta lífinu til að auka lífsgæðin Kannski þarf bara að æfa sig í að setja mörk og segja „nei“. Eða búa til „stop-do“ lista í staðinn fyrir „to-do“ lista. Kannski þarf að hætta að svara tölvupóstum utan vinnutíma. Eða fækka fundum og stytta þá. Kannski þarf að fara heim úr vinnunni á réttum tíma. Mögulega þarf að taka fríið sem búið er að fresta allt of lengi. Kannski þarf að skilja eftir nokkrar eyður í dagatalinu af og til. Og mögulega þarf að æfa sig í að gera stundum ekki neitt eftir vinnu eða um helgar og bara njóta þess að vera til. Það er dýrmætt að spyrja okkur sjálf hvort við séum raunverulega að verja tímanum okkar í það líf sem við viljum lifa og hvaða litlu breytingar við getum gert til að auka lífsgæði okkar. Hvað ef „brjálað að gera“ væri ekki merki um velgengni? Það tók mig langan tíma að læra að eiga frítíma án samviskubits. Og ég þurfti líka að læra að ég þarf ekki að hafa brjálað að gera til að vera verðmæt eða hafa jákvæð áhrif. Ég hugsa oft um af hverju við erum svona stolt af því að hafa alltaf brjálað að gera. Hvað ef það væri ekki merki um velgengni? Hvað ef það væri merki um að við þyrftum að staldra aðeins við? Nú er ég komin heim til Íslands eftir langt hlé. Það er yndislegt að hitta fjölskylduna, vini, kunningja og viðskiptavini. Það leið ekki á löngu þar til ég fékk spurninguna: „Er ekki alltaf brjálað að gera?“ En núna brosti ég bara og svaraði einlæglega: „Nei. Það er bara nákvæmlega jafn mikið að gera hjá mér og ég vil hafa það.“ Þetta er minn gagnlegasti lærdómur. Það þarf ekki að vera brjálað að gera til að lífið sé gott. Höfundur er kona sem nýtur lífsins, stjórnendaráðgjafi og fyrirlesari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller Skoðun Líf með tilgang og gleði, þrátt fyrir heilabilun Elísa Arnars Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Réttindabarátta og réttindagæsla í 50 ár Halldór Gunnarsson skrifar Skoðun Hvenær mun Alþingi setja þegna sína í forgrunn? Sunna Arnardóttir skrifar Skoðun Hugmynd skapar atvinnu Elinóra Inga Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af hverju verður allt að eins þyngra í skammdeginu? Guðjón Ágústsson skrifar Skoðun Gæði hjúkrunarheimila eru mælikvarði á velmegun Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Trump og Pútín gegn Úkraínu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Hver á skömmina? Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir skrifar Sjá meira
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir skrifar
Skoðun Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson skrifar
Skoðun Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz skrifar
ÍSGEM: Erum við virkilega að fá minni næringu úr matnum okkar? Eydís Ylfa Erlendsdóttir ,Guðrún Nanna Egilsdóttir Skoðun
Hversu stór þarf vandinn að vera til að fá hjálp? Thelma Hilmarsdóttir,Saga Ólafsdóttir Arnholtz Skoðun
Er sunnanverðum Vestfjörðum ætlað að lifa — eða bara að vera til á kortinu? Sverrir Fannberg Júlíusson Skoðun
Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir Skoðun
Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun