Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. ágúst 2026 07:38 Talsmenn Cryos International segjast hafa setti Dogus á „svartan lista“ árið 2016, eftir að í ljós kom að stofan hafði ekki pantað sæði frá þeim eins og skjólstæðingur hafði óskað eftir. Getty Rannsókn hefur leitt í ljós að um 30 börn voru getin með röngu sæði eða eggi á frjósemisstofum í Norður-Kýpur, sem hafa notið vinsælda meðal Breta. Foreldrarnir höfðu valið gjafa hjá stærsta kynfrumubanka heims en kynfrumurnar sem notaðar voru við getnað virðast hafa komið úr allt annarri og óþekktri átt.
Um helmingur barnanna kom undir eftir meðferð á Dogus frjósemisstofunni, þar sem þrír einstaklingar komu að mörgum málanna; læknarnir Firdevs Uguz Tip og Sevket Alpturk og Julie Hodson, sem var milliliður stofunnar og skjólstæðinga hennar. Samkvæmt BBC, sem hefur fjallað ítarlega um málið, fóru að renna tvær grímur á foreldra þegar þeir eignuðust börn sem líktust hvorki þeim sjálfum né gjafanum sem hafði orðið fyrir valinu. Svo virðist sem flestir hafi valið norðurevrópska gjafa en erfðarannsóknir hafa leitt í ljós að mörg barnanna voru getin með kynfrumum gjafa frá Tyrklandi eða nágrannaríkjum Tyrklands. Flest barnanna voru getin á árunum 2012 til 2024. Meðal þeirra sem nýttu sér þjónustu Dogus var móðir sem nefnd er Rachel í umfjöllun BBC. Hún hafði valið danskan gjafa hjá Cryos International og brá nokkuð í brún þegar barnið sem hún eignaðist líktist hvorki henni né gjafanum. Erfðarannsókn leiddi í ljós að kynfrumugjafinn er líklegast frá Tyrklandi eða Suður-Evrópu almennt. Uppgötvunin hefur ekki haft mikil áhrif á son Rachel en hún harmar að hann muni ekki fá tækifæri til að leita föður sinn uppi ef hann vill það. Danski gjafinn hafði meðal annars orðið fyrir valinu því að hann heimilaði að börn getin með sæði hans myndu hafa samband þegar þau væru orðin 18 ára. Dogus hafði í áraraðir auglýst tengsl sín við Cryos International en kynfrumubankinn kannast ekki við að hafa afgreitt sæði til stofunnar. Firdevs hefur neitað sök í málinu en hvorki Alpturk né Hodson hafa svarað fyrirspurnum BBC.
Tyrkland Kýpur Frjósemi Börn og uppeldi Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Sjá meira