Viðskipti innlent

Mat­reiðslu­meistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Paolo Brian Guingon og Bjarni Gunnar Kristinsson ganga til liðs við Matarstund.
Paolo Brian Guingon og Bjarni Gunnar Kristinsson ganga til liðs við Matarstund. Matarstund

Bjarni Gunnar Kristinsson, fyrrverandi yfirmatreiðslumaður á Hilton Nordica, og Paolo Brian Guingon, yfirkokkur á VOX og í veisluþjónustu Hilton Nordica hafa gengið til liðs við Matarstund, en fyrirtækið annast matarþjónustu fyrir leik- og grunnskóla í Hafnarfirði. 

Þetta kemur fram í tilkynningu þess efnis en þar segir að þeir muni gegna lykilhlutverki í áframhaldandi þróun matseðla og gæðamála hjá Matarstund.

Bjarni Gunnar sé einn reynslumesti matreiðslumaður landsins og hafi meira en tveggja áratuga reynslu í matargerð, rekstri og stjórnun eldhúsa. Áður en hann tók við starfi sínu á Hilton Nordica hafi hann meðal annars komið að opnun og uppbyggingu Reykjavik Edition-hótelsins og stýrði einnig eldhúsinu þar. 

Einnig hafi hann verið lykilmaður í íslenska kokkalandsliðinu á árunum 2000 til 2014 og var fyrirliði þess þegar það vann til gull- og silfurverðlauna á Ólympíuleikum matreiðslumeistara í Þýskalandi árið 2009.

„Að sjá um mat fyrir börn og starfsfólk í leik- og grunnskólum er verkefni sem höfðar sterkt til mín. Það skiptir miklu máli hvað við gefum börnunum okkar að borða og því fylgir mikil ábyrgð. Ég tel að reynsla mín og kunnátta nýtist vel til að veita börnum í Hafnarfirði fjölbreyttan, bragðgóðan og næringarríkan mat,“ er haft eftir Bjarna Gunnari í tilkynningunni.

Paolo Brian Guingon hafi yfir 15 ára reynslu úr alþjóðlegum hótel- og veitingarekstri í Filippseyjum, Ástralíu, Kína og á Íslandi. Hann og Bjarni Gunnar, ásamt öðrum matreiðslusérfræðingum Matarstundar, muni vinna að þróun matseðla og gæðamála, með áherslu á bragð, framsetningu og matarupplifun.

„Það segir mikið um vegferð Matarstundar að fá tvo jafn reynslumikla matreiðslumenn til liðs við okkur. Bjarni kemur með mikla reynslu, sterka leiðtogahæfileika og djúpan skilning á því hvernig sameina má gæði, næringu og gott bragð. Brian bætir við umfangsmikilli alþjóðlegri reynslu og þekkingu á rekstri stórra eldhúsa. Þeir styrkja þann öfluga hóp matreiðslufólks sem fyrir er hjá Matarstund,“ er haft eftir Pétri Viðarssyni, framkvæmdastjóra Matarstundar.

Matarstund annist daglega matarþjónustu fyrir leik- og grunnskóla Hafnarfjarðar og þjónusti daglega þúsundir barna og starfsfólks í bænum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×