„Við þurfum að læra í þessum heimi“ Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. ágúst 2026 21:04 Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, vill sjá lið sitt læra að lifa í toppbaráttu þar sem hver leikur skiptir gríðarlega miklu máli. Vísir/Guðmundur Þórlaugarson „Mér líður bara mjög vel. Þetta var skemmtilegur leikur og tilfinningin var að við hefðum átt að geta gert betur,“sagði Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, eftir 3-3 jafntefli við Breiðablik í 19. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. Hann vill sjá lið sitt læra að lifa í toppbaráttu þar sem hver leikur skiptir gríðarlega miklu máli. „
Við fengum fleiri góðar stöður, þeir fengu auðvitað hættuleg færi líka, en tilfinningin var að við hefðum getað gert betur í öllum þessum fjölmörgu stöðum sem við fengum á síðasta þriðjung,“bætti Óskar Hrafn við. KR lenti 1–3 undir á Meistaravöllum en kom til baka í síðari hálfleik. Liðið skoraði tvö mörk á rétt rúmum 64 sekúndum og hótaði að hirða stigin þrjú en það gekk ekki að þessu sinni. „Ef ég reyni að greina það sem við náðum ekki að gera þá náðum við ekki að hafa stjórn á spennustiginu. Við þurfum að læra í þessum heimi. Við þurfum að læra að lifa í heiminum þar sem við erum í toppbaráttu þar sem hver leikur er að einhverju leyti úrslitaleikur. Við reynum að sjá í gegnum trén, það er frammistaðan sem skiptir mestu máli en þetta eru mikilvægir leikir og menn finna alveg að þeir eru þar sem þeir eru. Mér fannst við ekki ná að stjórna því nógu vel í dag. Við erum heldur ekki með mjög marga sem hafa verið í þessari stöðu áður, það fer bara í pokann og er mikilvægur lærdómur.“ Voru þetta tvö töpuð stig eða eitt unnið? „Ég horfi á Þórsstigin tvö töpuð, ég horfi á FH-stigin tvö töpuð en ekki þetta. Breiðablik er mjög gott lið. Við spilum þannig leik að það hentar Blikaliðinu vel, erum fljótir, með mikil gæði og sterkir í öðrum boltanum. Ég lít ekki á þetta sem tvö töpuð stig en mér fannst við eiga að gera betur í þessum fjölmörgu stöðum sem við fáum.“ Þorleifur Úlfarsson og Kristófer Ingi Kristinsson byrjuðu sinn fyrsta leik saman í dag. Kom það KR á óvart? „Auðvitað kemur það á óvart þegar lið byrjar með tvo sentara inn á í fyrsta skipti á tímabilinu. Við þegar leikskýrslan kom að það þetta gæti verið líklegt. Þeir ætluðu að herja á hæðarmismuninn og mér fannst við leysa það að mestu leyti vel. Við sofum aðeins á verðinum, sérstaklega í fyrri hálfleik þar sem við erum á eftir mönnum og sleppum mönnum. Við hlaupum ekki nógu hratt til baka. Heilt yfir voru menn að leggja mikið á sig og ég get ekki kvartað yfir neinu. Þetta var hörkuleikur tveggja góðra liða.“ Að endingu var Óskar Hrafn spurður út í mikilvægi þjálfarans þegar lið er óreynt í toppbaráttu. „Það er hluti af því að fara fyrir hópi að miðla allri þeirri reynslu sem maður hefur. Við erum með Hilmar Árna (Halldórsson, aðstoðarþjálfara) sem hefur líka verið í toppbaráttu. Við þurfum að læra hratt en við þurfum líka að passa okkur á því að láta ekki mikilvægi leikjanna og ef við trúum að það sé mikið undir í hverjum leik þurfum við samt að sjá í gegnum það og ekki gleyma því að það sem gerir KR-liðið gott er þegar það sleppir handbremsunni, þegar það brosir og hefur gaman.“ „Mér fannst á köflum í dag að gleðin væri tekin og taugaveiklunin tók yfir. Í seinni hálfleik veit ég ekki hversu margir boltar, frá tveimur góðum fótboltaliðum, fóru upp í loft í fyrstu eða annarri snertingu. Það er eitthvað sem við þurfum að laga. Auðvitað liggur ábyrgðin að stærstum hluta hjá mér, það er alveg ljóst.“
Besta deild karla KR Breiðablik Mest lesið Rotaðist eftir höfuðhögg og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Skoraði fimmtán mörk fyrir Guðjón Val Handbolti Ofursunnudagur á Sýn Sport Sport Falko farinn frá ÍR Körfubolti Ágúst Orri fagnaði stórsigri í öðrum leik sínum með Excelsior Fótbolti Stefán og Alfons gátu ekki klárað leikinn vegna óeirða Fótbolti ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Íslenski boltinn Arnar Freyr og félagar í Flensburg áfram með fullt hús Handbolti Rúst hjá Rosenborg Fótbolti Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Fleiri fréttir ,,Eftir þessar síðustu 20 mínútur held ég að ég þurfi bara að leggjast niður.” Fred framlengir við Fram til 2028 Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Uppgjörið og viðtal: Keflavík - Valur 1-2 | Valsmenn héldu út Uppgjörið: ÍBV-Fram 2-3 | Fram sneri taflinu við í Eyjum Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Sjá meira