Það er jóker í spilinu Sigurgeir Þorkelsson skrifar 16. ágúst 2026 14:56 Mun forseti Bandaríkjanna halda sig til hlés í aðdraganda þjóðaratkvæðis hérlendis eða mun hann láta gamminn geisa? Samsett Skoðanakannanir síðustu vikna virðast benda til þess að sífellt fleiri kjósendur séu búnir að gera upp hug sinn fyrir komandi þjóðaratkvæðagreiðslu eftir því sem hlutfall óákveðinna fer lækkandi. Þá virðist einnig sem hægt og rólega saxist á það forskot sem já-hliðin naut þegar mælingar hófust fyrst eftir að tilkynnt var um þjóðaratkvæðið.
Ólafur Þ. Harðarson, prófessor emeritus í stjórnmálafræði, og Vilborg Ása Guðjónsdóttir alþjóðastjórnmálafræðingur voru til viðtals á Sprengisandi í morgun. „Það er ólíklegt að þetta breytist mikið nema eitthvað óvænt komi upp,“ segir Ólafur, en ákveðið eins manns stjórnmálaafl kemur honum til hugar sem jóker í spilinu, sjálfur Bandaríkjaforseti, Donald Trump. „Trump er náttúrulega mikið ólíkindatól,“ bendir dr. Ólafur á. „Hann er búinn að vinna tvennar kosningar frá því að hann hóf sitt síðara kjörtímabil,“ segir Ólafur kankvís. „Hann tryggði frjálslyndum í Kanada sigur gegn öllum fyrri spám og hann tryggði krötunum í Ástralíu sigur þvert gegn öllum spám. Það væri því núna nokkuð kaldhæðið ef hann gerði eitthvað sem tryggði sigur já-manna á Íslandi,“ segir Ólafur. Vilborg Ása tekur undir með honum: „Ég hef hugsað þetta því það komu fréttir í vor af því að honum litist ekkert á að Ísland ætlaði að ganga inn. Síðan hefur ekkert heyrst. Segjum sem svo að hann myndi, þegar nær dregur, tjá sig eitthvað, þá er ekki nema líklegt að það myndi gagnast jáinu. Við Íslendingar látum nú ekki segja okkur hvað við eigum að gera.“ Fá bæði fyrirspurnir frá erlendum fjölmiðlum Hún segir áhuga erlendra fjölmiðla sem setja sig í samband við hana mestan á þessum anga málsins og Ólafur tekur undir með henni. Vilborg segir furðu gæta hve lítill hluti umræðunnar hérlendis hafi, hingað til, snúið að ásælni Bandaríkjaforseta í yfirráð yfir Grænlandi þar sem það hafi markað vatnaskil. Bandamenn þeirra hafi í kjölfarið þurft að endurmeta aðstæður, helst allra Kanadamenn og Danir. „Eins og staðan er í dag eru Bandaríkin einfaldlega ekki traustur bandamaður,“ segir Vilborg. „Þetta er eitthvað sem öll Evrópuríki eru að takast á við.“ Vilborg kallar eftir aukinni umræðu hérlendis um þessa breyttu stöðu þegar kemur að öryggismálum. „Þar verður að gera bragarbót á og þessir síðustu mánuðir eru auðvitað gríðarlega mikilvægt innlegg inn í það. Það er mikilvægt að við séum meðvituð um hvaða möguleikar standi okkur til boða, í hvaða stöðu við erum og hvaða breytingar við þurfum mögulega að gera á okkar utanríkismálum,“ segir hún í samhengi við komandi þjóðaratkvæðagreiðslu.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Donald Trump Evrópusambandið Mest lesið Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Innlent Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Innlent „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Innlent Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Innlent „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Innlent Tortímir gervigreindin mannkyninu? Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Þyrlan lenti við Hörpu Innlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Fleiri fréttir Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu „Það er ótrúlega dýrt og lýjandi að hafa rétt fyrir sér“ Fluttur til aðhlynningar eftir umferðarslys Tortímir gervigreindin mannkyninu? „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Sjá meira