Nágranninn bjargaði Sævari sem missti næstum af almyrkvanum Smári Jökull Jónsson skrifar 16. ágúst 2026 13:10 Sævar Helgi Bragason er maðurinn sem sagði þjóðinni allt um sólmyrkvann. Skjáskot/Vísir Stjörnu-Sævar segir að vikuna í aðdraganda almyrkvans síðastliðinn miðvikudag hafa verið þá allra rugluðustu sem hann hafi upplifað. Sjálfur missti hann næstum því af herlegheitunum.
Sævar Helgi Bragason, eða Stjörnu-Sævar, var afar áberandi í umræðunni í aðdraganda almyrkvans á sólu síðastliðinn miðvikudag. Enda Sævar einn mesti áhugamaður um fyrirbrigðið hér á landi og fátt á því sviði sem hann ekki veit. Sævar ritaði í morgun pistil á Facebook þar sem hann fer yfir almyrkvann sjálfan og aðdragandann en hann segir vikuna fyrir þann 12. ágúst hafa verið þá allra rugluðustu sem hann hafi upplifað. „Elsku öll, ég hata rigningu af öllu hjarta eftir síðasta miðvikudag en þetta steypiregn af ótrúlega fallegum kveðjum og skilaboðum þykir mér brjálæðistlega vænt um. Takk!,“ segir Sævar Helgi í upphafi pistils síns. Þar segist hann hafa hlakkað til þessa dags síðan 20. mars árið 2015 og segist hafa verið búinn að skrifa annan pistil þegar veðurspá fyrir almyrkvann lá fyrir til að reyna að koma í orð vonbrigðum sínum þar sem dagurinn virtist vera að breytast í martröð. „Mér leið eins og ég hefði misst einhvern nákominn. Hverju reiddust veðurguðirnir eiginlega?“ skrifar Sævar Helgi. Nágranninn kom til bjargar Þrátt fyrir rigningu og ský á himni segir hann upplifunina hafa verið stórkostlega. „Í fyrsta sinn myndi ég upplifa almyrkva á sólu í rigningu. Þó ég vissi að það væri líka magnað og talað um það opinberlega þá var það á endanum stórkostlegra en ég átti von á. Ég laug að minnsta kosti engu um þessa skyndilegustu, stystu, fallegustu, einstökustu og ógleymanlegustu nótt ævinnar. Ótrúlega mögnuð og skrítin tíra í alltof stutta stund.“ Jafnframt skrifar Sævar Helgi að utanaðkomandi áreiti hafi komið í veg fyrir að hann gæti notið dagsins. „Samt naut ég ekki dagsins neitt vegna endalausra símtala, tölvupósta og skilaboða sem svarað var fram á síðustu stundu og missti svo næstum af myrkvanum vegna ágengi erlendra fjölmiðla. Ég hafði ekki tíma til að setja upp myndavélar og fanga augnablikið sjálfur. Sem betur fer hafði ég sent nágranna minn með Seestar S30 sjónauka á Látrabjarg þar sem hann fangaði dýrðina fyrir okkur,“ skrifar hann enn fremur.
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Geimurinn Reykjavík Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent „Fólk er bara slegið“ Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent „Viljið þið gjöra svo vel að fyrirgefa mér af öllu hjarta“ Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Selenskí kíkti á klakann Erlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Fleiri fréttir Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar Sjá meira