Hvað eiga hollenskt flutningafyrirtæki, ítalskur kaupsýslumaður og belgísk flugfreyja sameiginlegt? Dóra Sif Tynes skrifar 12. ágúst 2026 10:48 Í umræðu um komandi þjóðaratkvæðagreiðslu hafa menn oft á tíðum vísað til forgangsáhrifa ESB réttar og velt vöngum yfir hvort í þeim felist óásættanlegt framsal fullveldis. Það kann því að vera gagnlegt að skoða nánar hvað felst í þessari réttarreglu. Upphafið má rekja til máls hollenska flutningafyrirtækisins Van Gend & Loos. Við innflutning á efnablöndu frá Þýskalandi til Hollands höfðu hollensk yfirvöld lagt á hærri toll en mælt var fyrir um í sameiginlegum tollareglum Evrópubandalagsins. Fyrirtækið fór með málið fyrir dóm í Hollandi og bar því við að tollurinn væri ólögmætur þar sem hann bryti í bága við ákvæði sáttmála Evrópubandalagsins. Hollenski dómstóllinn óskaði eftir túlkun hins nýstofnaða dómstóls Evrópubandalagsins í Lúxemborg sem sló því föstu að svo væri. Dómstóllinn vísaði til þess að sáttmálinn kæmi á fót nýju réttarkerfi sem varðaði ekki bara aðildarríkin sjálf heldur einnig þegna þess. Ef regla Evrópuréttar væri nægilega skýr og óskilyrt gætu einstaklingar og lögaðilar þannig byggt rétt á henni fyrir dómi. Hefur þetta verið nefnt meginreglan um bein réttaráhrif. Stuttu síðar var komið að ítalska kaupsýslumanninum Flaminio Costa. Costa hafði verið hluthafi í rafmagnsfyrirtæki sem var þjóðnýtt af ítalska ríkinu. Hann neitaði að greiða rafmagnsreikning frá fyrirtækinu og bar því við að lög um þjóðnýtingu þess brytu í bága við Rómarsáttmála. Héraðsdómur í Mílanó vísaði málinu til Evrópudómstólsins sem kvað á um að Evrópurétturinn fæli í sér forgangsáhrif þannig aðildarríkjunum væri óheimilt að setja lög sem stönguðust á við skuldbindingar þeirra samkvæmt Rómarsáttmála. Dómstóllinn ítrekaði að sáttmálinn kæmi á fót nýju réttarkerfi sem væri sérstaks eðlis og að tilvist Evrópubandalagsins væri ógnað ef aðildarríkin gætu allt að einu sett lög sem stönguðust á við skuldbindingar samkvæmt Rómarsáttmála. Aðildarríkin hefðu að þessu leyti takmarkað fullveldi sitt með því að undirgangast sameiginlegar reglur. Hins vegar væri það hins ítalska dómstóls að meta hvort lögin brytu í bága við sáttmálann. Costa hafði því ekki árangur sem erfiði. Í Simmenthal málinu reyndi svo á hvort ítalska ríkið gæti innheimt sérstök skoðunargjöld vegna innflutnings á nautakjöti frá Frakklandi. Í þessu máli komst Evrópudómstóllinn að þeirri niðurstöðu að það fælist í reglunni um forgangsáhrif að allir innlendir dómstólar væru til þess bærir að meta hvort innlend löggjöf stangaðist á við sameiginlegar reglur Rómarsáttmála þannig að víkja bæri henni til hliðar við úrlausn máls. Víkur þá sögunni að Gabrielle Defrenne. Hún var belgísk flugfreyja sem lét á það reyna fyrir belgískum dómstól hvort Sabena flugfélaginu hefði verið heimilt að greiða henni lægri laun en samtarfsmenn hennar af karlkyni nytu með vísan til þess að Rómarsáttmáli kvæði á um jöfn laun karla og kvenna. Dómstóll Evrópubandalagsins komst að þeirri niðurstöðu að jöfn laun karla og kvenna væri ein af meginreglum sáttmálans. Væri því unnt að byggja rétt á þeirri reglu gagnvart bæði ríkinu og atvinnurekendum almennt. Með þessu útvíkkaði dómstóllinn regluna um bein réttaráhrif sáttmálans, á þann hátt að hægt væri að byggja á ákvæðum hans fyrir dómstólum ef þau væru nægjanlega skýr og óskilyrt óháð því hvort gagnaðilinn væri opinber aðili eða einkaaðili. Reglurnar um bein réttaráhrif og forgangsáhrif ESB réttar eru þannig tvær hliðar af sama peningi. Evrópudómstóllinn hefur slegið því föstu að sáttmálar ESB feli í sér nýtt réttarkerfi sem varði ekki bara aðildarríkin sjálf líkt og þegar um hefðbundna þjóðréttarsamninga er að ræða heldur feli borgurunum sjálfstæð réttindi. Til þess að tryggja þessi réttindi felist það í forgangsáhrifum ESB réttar að aðildarríkin hafi takmarkað vald sitt til að setja innlendar reglur sem stangist á við skuldbindingar samkvæmt sameiginlegum reglum. Vert er að hafa í huga að þessi dómaframkvæmd mótast vegna þess að einstaklingar og lögaðilar hafa látið á það reyna fyrir dómi hvort þeir geti byggt rétt á ESB reglum og hvort þær njóti forgangs umfram aðrar innlendur reglur sem þær stangist á við. Við úrlausn þeirra mála hafa bæði innlendir dómstólar aðildarríkjanna og Evrópudómstóllinn tekið til skoðunar raunverulegar aðstæður málsaðila. Reglurnar urðu þannig ekki til í tómarúmi. Það er hins vegar rétt að í forgangsáhrifum ESB réttar felst ákveðin takmörkun á fullveldi aðildarríkjanna eins og hér hefur verið rakið. Við mat á því hvort þessi takmörkun sé ásættanleg verður hins vegar einnig að horfa til þess hver tilgangur reglunnar er, það er að tryggja sjálfstæð réttindi einstaklinga og lögaðila að ESB rétti. Höfundur er lögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Dóra Sif Tynes Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar