Ófrjósemi: Gervigreindin notuð til að finna sáðfrumur í geldsæði Hólmfríður Gísladóttir skrifar 12. ágúst 2026 10:40 Að sögn Williams er kona nú þunguð eftir að STAR-kerfið fann tvær sáðfrumur í sæði manns. Getty Vísindamenn við Columbia University í Bandaríkjunum hafa fundið leið til að beita gervigreindinni til að finna sáðfrumur í sæðisvökva karlmanna sem glíma við ófrjósemi.
Samkvæmt Vísindavefnum losna um það bil 2,5 til 5 millilítrar af sæði, með 50 til 150 milljónir sáðfruma, við sáðlát. Hjá körlum sem þjást af geldsæði (e. azoospermia) er hins vegar engar eða afar fáar sáðfrumur að finna í sæðinu. Talið er að þetta eigi við um tíu prósent karla sem þjást af ófrjósemi. Hingað til hefur eina úrræðið fyrir þá verið leit að sáðfrumum í sýnum með aðstoð smásjár, þar sem menn hafa þurft að reiða sig á mannsaugað til að finna staka frumur. Það tekur um það bil átta klukkustundir að skoða eitt sýni og jafnvel þótt í því sé að finna nokkrar sáðfrumur er alls óvíst að þær finnist, þar sem sýnin eru full af ýmis konar frumuleifum. Nú gefur ný tækni hins vegar nýja von en vísindamenn hafa þróað aðferð þar sem sæðið er látið renna um „göng“ sem hafa minna þvermál en mannshár, á meðan myndavél með háaðdráttarlinsu tekur um það bil 300 myndir á sekúndu. Myndirnar fara beint í tölvu þar sem gervigreind fer yfir þær og freistar þess að bera kennsl á sáðfrumu. Ef sáðfruma finnst, opnast loki í göngunum og sáðfruman er fönguð. „Þú getur fundið margar stjörnur með því að horfa upp í næturhimininn með beru auga,“ segir frjósemissérfræðingurinn Zev Williams. „En með sjónauka sérðu miklu fleiri. Þetta er það sem við erum að gera. Þetta gerir okkur kleift að gera það sem manneskja getur ekki gert.“ Samkvæmt umfjöllun New York Times hefur nýja tæknin þegar komið að góðum notum; fólk sem hafði glímt við ófrjósemi í nítján ár eignaðist stúlku í fyrra með aðstoð hins svokallaða STAR-kerfis og þá fann gervigreindin 44 sáðfrumur á klukkustund í sæði sem hafði áður verið skoðað í smásjá í tvo daga, án árangurs.
Bandaríkin Vísindi Tækni Gervigreind Frjósemi Mest lesið Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Óvænt frumvarp innviðaráðherra beint á dagskrá Innlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Fleiri fréttir Bað Trump um „vetrarpakka“ Segir stóra ákvörðun framundan Xi vill að Trump sleppi takinu á Taívan Þetta er í samkomulaginu um Grænland Halda andstæðingum fjarri Grænlandi með samkomulagi Svona var ræða Trumps: Spurning um „gereyðingu“ og nýtt nafn á gervigreind Í leyfi á meðan kosningasvik eru til rannsóknar Bein útsending: Ræða Trumps á allsherjarþinginu Bretar ætla að aðstoða Sáda gegn Hútum Beita buddunni til að vega á móti óvinsældum Trumps Rétta yfir konu spænska forsætisráðherrans Grunur um alvarlegt kosningasvindl í Svíþjóð Stefna að tveimur nýjum herstöðvum á Grænlandi Sniðganga Hvíta húsið Bað Selenskí um að stöðva árásir á rússneskar olíuvinnslur Höfða mál gegn Trump vegna bannsins Pútín sló öll met Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Maður á níræðisaldri lést í átökum um sólbekk Noregur og Kanada auka samstarf í varnarmálum Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Mótmæli í Texas vegna ICE-liða Kallar kosningarnar „hörmung“ en heitir því að fara ekki fet Senda Trump pillu vegna Ameríkukorts „Myndi ekki skrifa undir samkomulag ef það væri ekki gott“ Framtíð kanslarans í húfi Ætlar sér að skipa „gervigreindarkeisara“ Sérstakt veiðileyfi gefið út eftir að hákarl banaði sundmanni á sjötugsaldri Utanríkisráðherra Úkraínu lýsir yfir gríðarlegu þakklæti Vissi að viðræðum miðaði fram „þrátt fyrir skrítin kort“ Sjá meira