„Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Agnar Már Másson og Áróra L Davíðsdóttir skrifa 10. ágúst 2026 19:52 Helga Haraldsdóttir er formaður Hinsegin daga. Vísir/Sigurjón Metþátttaka var í Gleðigöngunni sem var gengin um götur miðborgar Reykjavíkur á laugardaginn. Formaður Hinsegin daga segir ánægjulegt að sjá aukinn fjölda taka þátt í baráttunni en að samfélagið þurfi að standa saman gegn aðkasti í garð hinsegin fólks.
Hinsegin dagar náðu hámarki um helgina þegar Gleðigangan var gengin um götur miðbæjar Reykjavíkur. Fjöldi fólks lagði leið sína niður í bæ til þess að fagna fjölbreytileikanum. Agnar Már Másson fréttamaður Sýnar ræddi við Helgu Haraldsdóttur formann Hinsegin daga um metþátttöku Gleðigöngunnar í ár. „Þetta var alveg metþátttaka. Við vorum hérna fimmtíu hópar sem fórum hérna niður Skólavörðustíginn og enduðum síðan í Hljómskálagarðinum í þvílíkum fögnuði,“ segir Helga. Hún sé ánægð með aukinn fjölda hópa sem taka þátt í Gleðigöngunni og aukinn stuðning við málstaðinn. „Við stöndum öll saman í þessu,“ segir Helga en þau búast við að gangan verði enn stærri að ári. Það bárust fréttir um helgina að hinsegin fólk væri að lýsa því að það hefði orðið fyrir aðkasti í kringum hátíðina. Þetta eru væntanlega sögur sem þið lítið alvarlegum augum? „Jú, að sjálfsögðu. Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu og því miður þá gerist þetta með auknum sýnileika líka,“ segir Helga. Hún bendir fólki sem verði fyrir slíku aðkasti á að hafa samband við ráðgjafaþjónustu sem Samtökin '78 halda úti en í alvarlegum tilvikum skuli að sjálfsögðu hafa beint samband við Neyðarlínuna.
Gleðigangan Hinsegin Reykjavík Mest lesið Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Erlent Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Erlent Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Innlent Fleiri fréttir Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Sjá meira