Skoðun

Ís­land, já takk

Jón Pétur Zimsen skrifar

Við búum í einu ríkasta landi heims. Samt er hópur fólks að reyna að véla okkur inn í Evrópusambandið í litlum skrefum.

Skv. ESB sjálfu er um 95% af öllu regluverkinu óumsemjanlegt og restin háð tímamörkum, skv. ESB.

Rýmið í pakkanum sem borinn er á borð fyrir kjósendur nú í lok ágúst er því lítið og ekkert varanlegt.

Við munum alltaf greiða miklu meira inn í ESB en fá út úr því og peningar okkar munu því fara í samgöngur, landbúnað og menningarmál fátækari ríkja ESB, í stað t.d. vega innanlands..

Þetta hefur verið bent á ítrekað. Nú síðast sagði embættismaður framkvæmdastjórnar ESB um aðildarumsókn Svartfjallalands og mögulega Íslands í Politico Europe (í lauslegri þýðingu):

„Auður Íslands myndi gera landið að nettógreiðanda í fjárlög Evrópusambandsins og í raun fjármagna aðild Svartfjallalands.“

ESB-sinnar tala landið okkar sífellt niður og horfast ekki í augu við þau gæði sem Íslendingar hafa skapað sér í gegnum tíðina.

Það að við séum í fremstu röð í flestum jákvæðum málaflokkum gerðist ekki af sjálfu sér. Það er almenningur í landinu sem hefur stritað fyrir því að koma okkur á þann góða stað að á Íslandi má finna:

  1. Bestu lífskjör í heimi, skv. Sameinuðu þjóðunum.
  2. Mesta jafnrétti í heimi.
  3. Mesta öryggi í heimi.
  4. Mesta jöfnuð í heimi.
  5. Einna minnstu fátækt í heiminum, skv. öllum mælingum.
  6. Einn mesta kaupmátt í heimi (hvað við fáum fyrir peningana okkar).
  7. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.

Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins




Skoðun

Skoðun

Sniðgöngum öll

Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Hólmfríður Jónsdóttir,Daníel Þór Bjarnason,Oddný Björg Rafnsdóttir,Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,Þorbjörg Ída Ívarsdóttir skrifar

Sjá meira


×