Sumarhátíðir, rándýrir vextir og óopnað umslag Pétur Marteinsson skrifar 5. ágúst 2026 07:03 Við Íslendingar vorum rétt í þessu að ljúka við eina af okkar ástælustu hefðum. Tugþúsundir landsmanna tjölduðu um helgina, sungu brekkusöngva og stunduðu almenna heilsueflingu á tjaldsvæðum landsins. Það er eitthvað dásamlegt við þessa sumardaga. Þrátt fyrir að við þekkjum varla meira en 1% landsmanna persónulega og 99% séu okkur ókunnugt fólk, þá náum við samt að skemmta okkur, sýna samstöðu og gleðjast saman. Handan við hornið er síðan ein fallegasta hátíð ársins: Hinsegin dagar. Þar komum við saman til að fagna fjölbreytileikanum, frelsinu og mannréttindum – þeim gildum sem tryggja að öll fáum við að blómstra á eigin forsendum. Næst er það lýðræðishátíðin í lok mánaðarins. Þann 29. ágúst næstkomandi göngum við til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram samningaviðræðum við Evrópusambandið. Og alveg eins og við fögnum fjölbreytileikanum í gleðigöngunni, eigum við líka að mæta komandi kosningum af hlýju og virðingu fyrir því að við berum ólíkar skoðanir á Evrópumálunum. Að virða nei-ið – og vera um leið heiðarleg um valkostina Pólitískri umræðu fylgja oft miklar tilfinningar. Sum eru einfaldlega hrædd við breytingar og mörg bera raunverulega umhyggju fyrir hagsmunum sjávarútvegsins, landbúnaði, sjálfstæði okkar og þeirri sérstöðu sem gerir Ísland að Íslandi. Það eru sjónarmið sem ber að mæta af fullri virðingu. Að sama skapi þarf líka að bera virðingu fyrir þeim sem eru spenntir að sjá hvaða samning við getum fengið og hvort hagsmunum almennings sé betur borgið með nánara samstarfi. En staðreyndin er sú að við þurfum að ræða við Evrópu og fá samninginn upp á borðið til þess að geta tekið þessa umræðu á grundvelli staðreynda en ekki ágiskana. Innganga í Evrópusambandið er engin töfralausn ESB leysir ekki öll okkar vandamál eða áskoranir með einhverju töfrabragði. Við munum áfram þurfa að standa okkur í samkeppni þjóða, mæta á vaktina á hverjum degi, reka öflug fyrirtæki og byggja upp réttlátt velferðarsamfélag. Íslendingar hafa gert ótrúlega vel til þessa og við munum halda áfram að vera öflug þjóð – hvort sem við verðum innan eða utan Evrópusambandsins. Spurningin í ágúst snýst einfaldlega um hvort við viljum sjá hvað stendur í samningnum áður en við tökum lokaákvörðun. Að halda viðræðum áfram er hvorki ákvörðun um inngöngu né yfirlýsing um að allt verði fullkomið. Það er einfaldlega sú ákvörðun að safna staðreyndum. Hvað varðar þetta Reykjavík? Ég var kosinn í borgarstjórn til þess að gæta hagsmuna Reykvíkinga og það verkefni tek ég mjög alvarlega. Þótt ég hafi mínar persónulegu skoðanir á ESB-málum og þótt margs konar sjónarmið heyrist í umræðunni ber mér sem kjörnum fulltrúa að horfa sérstaklega til hagsmuna Reykjavíkurborgar og lífsgæða íbúanna í komandi kosningum. Borgum Evrópu stendur margt til boða í gegnum ESB sem getur haft veruleg áhrif á lífsgæði íbúa. Reynsla borga eins og Dublin, Tallinn og Ljúblíana sýnir hvaða tækifæri geta fylgt inngöngu. Sveitarfélög innan ESB hafa beinan aðgang að Evrópska fjárfestingarbankanum (EIB), sem veitir langtímalán á ótrúlega lágum vöxtum til innviðaframkvæmda – hvort sem varðar skóla, spítala eða almenningssamgöngur. Samhliða hafa borgirnar völ á styrkjum úr byggða- og innviðasjóðum (eins og CEF og ERDF) til að rafvæða samgöngur, byggja upp hjólreiðastíga og fjármagna stafræna nýsköpun gegnum samstarfsnet á borð við URBACT. Fjöldi borga í Evrópu hefur notið góðs af Evrópusamstarfi. Tækifærum hefur fjölgað og lífsgæði hafa aukist. Kjarni jafnaðarstefnunnar snýst einmitt um það: Að almannahagsmunir, jöfnuður og velferð fólksins standi framar sérhagsmunum. Þegar öllu er á botninn hvolft snýst stjórnun sveitarfélaga um velferð og lífsgæði fólksins sem þar býr: skólana, íþrótta- og tómstundafélögin, velferðina, vegina og almenningssamgöngurnar. En Reykjavík - eins og önnur sveitarfélög og heimili - býr við gríðarlegan efnahagslegan aukakostnað: séríslenska krónuálagið og hátt, ófyrirsjáanlegt vaxtastig. Sveigjanleg króna getur haft sína kosti í áföllum en henni fylgja líka milljarðareikningar á hverju ári í formi hærri vaxta. Fjármagnskostnaður A- og B-hluta borgarinnar vegur gríðalega þungt. Ef við náum fram því stöðuga vaxta- og gjaldmiðlaumhverfi evrunnar sem nágrannalönd okkar búa við, myndi jafnvel lítil lækkun á fjármagnskostnaði skila sér í mörgum milljörðum sem í dag fara í vexti frekar en þjónustu. Það eru upphæðir sem skipta sköpum fyrir lífsgæði og jöfnuð í Reykjavík. Árlegur vaxtasparnaður borgarinnar gæti fjármagnað nokkra nýja leikskóla á hverju ári. Við gætum lyft grettistaki í uppbyggingu á aðstöðu íþróttafélaganna í hverfunum, endurnýjað gervigrasvelli, gert upp stúkur og bætt sundlaugarnar okkar svo öll börn eigi jafnan aðgang að öflugu frístundastarfi. Við gætum lagað götur, lagt fleiri hjólastíga, gert almenningssamgöngur skilvirkari og fjárfest í grænum svæðum án þess að taka lán á íþyngjandi kjörum. Hagkvæmari lán og lægri vextir á opinberar skuldir væri einfaldlega mesta hagræðing sem borgin gæti ráðist í. Þegar það er fært yfir á landsvísu sparar ríkissjóður tugi milljarða á ári og önnur sveitarfélög sömuleiðis. Þetta snýst ekki um akademíska hagfræðikúrsa, heldur hvort skattféð okkar fari í háa vexti eða í að byggja upp betra samfélag. Athugum málið af yfirvegun Til þess að tryggja að íbúar í Reykjavík hafi svör byggð á staðreyndum lagði Samfylkingin nýverið fram tillögu í borgarráði um skipan sérfræðingahóps til að rýna hlutlægt hvað möguleg aðild og evran myndu þýða fyrir rekstur borgarinnar. Því miður felldi meirihlutinn þessa tillögu en staðreyndirnar tala sínu máli: Lægri vextir á opinberar skuldir skila sér í gríðarlegum hagbótum, hagræðingu og betri þjónustu fyrir almenning. Nýtum ágústmánuð í uppbyggilega og hlýlega umræðu. Fögnum fjölbreytileikanum og mannréttindum á Hinsegin dögum, njótum sumarsins og göngum svo af yfirvegun og bjartsýni til kosninga þann 29. ágúst. Ég mun að sjálfsögðu segja JÁ, til að sjá samninginn. Fáum niðurstöðuna upp á borðið – og ákveðum svo í sameiningu, sem frjáls og fullvalda þjóð, hvað við viljum gera við framtíðina okkar. Höfundur er borgarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Pétur Marteinsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Halldór 26.09.2026 Halldór Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar