Innan ESB „mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi“ Óli Rúnar Ástþórsson skrifar 4. ágúst 2026 16:03 Þetta er haft eftir Dr. Indriða Benediktssyni í fróðlegu viðtali sem birtist í Heimildinni 1. ágúst s.l. og tekið er af Auði Jónsdóttur og Eiríki Bergmann. Indriði hefur nýlega látið af störfum, en hann starfaði í 30 ár hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, við vísinda- og heilbrigðis-samstarf þess. Hann er eini Íslendingurinn sem hefur verið embættismaður hjá Evrópusambandinu. „Núna er gríðarlega gott tækifæri sem mun aldrei koma aftur," er haft eftir honum í viðtalinu. Hvet ég alla sem tök hafa, að kynna sér þetta fróðlega viðtal við fyrrverandi embættismann sem deilir skoðunum sínum um mögulega vegferð okkar í átt að eða frá Evrópusambandinu, eftir að hafa starfað innan þess í áratugi. Í viðtalinu lýsir Indriði þeirri skoðun sinni að Ísland komi ekki til með að þurfa að breyta neinu í sinni fiskveiðistjórn nema vilja það. „Ef Ísland gengur í Evrópusambandið þá mun Ísland stjórna fiskveiðum í Norður-Atlantshafi.“ Það þarf bara að semja um veiðar úr svokölluðum flökkustofnum fiska sem synda milli landanna og það gerum við nú þegar, en með aðild gæti Ísland verið leiðandi í því að semja um þetta fyrir ESB gagnvart öðrum löndum.“ Og svo: „En ef Ísland fer ekki í Evrópusambandið fyrr en eftir að Bretland kemur aftur þangað og Noregur hefur gengið í það, þá höfum við engan séns. Við skulum ekki gleyma að þetta eru þau tvö lönd sem við áttum í mestu milliríkjadeilum við á seinni hluta síðustu aldar, þorskastríð og smugudeilu. Núna er gríðarlega gott tækifæri sem mun aldrei koma aftur.” Í dag ríkir mikill áhugi á Norðurslóðum og hann segir að nú þegar ákveðið stórveldi minni á sig, spili sá áhugi með Íslandi. „Meðal annars út af þessum vinkli hefur Evrópusambandið áhuga á að fá Ísland inn, nokkuð sem hægt væri að nýta í samningaviðræðum. Þannig væri til dæmis hugsanlegt að Stofnun norðurslóða gæti orðið Evrópustofnun, fjármögnuð að miklu leyti frá Evrópu. Það gæti verið eitt af áhersluatriðum á lista Íslendinga yfir það sem þeir vilja ná fram. Og líklega auðsótt.” Í viðtalinu heldur Indriði því fram að EES samstarfið verði ekki langlíft og möguleikinn fyrir okkur og Licehtenstein til að halda samstarfinu áfram gagnvart ESB, ákveði Norðmenn að ganga sambandinu á hönd, væru nánast ómögulegir. Þá telur hann að kostnaður við EES samstarfið eigi eftir að hækka umtalsvert á næstu árum. Þá telur hann jafnframt „að aðild að Evrópusambandinu vera kosti fyrir alla en galla eingöngu fyrir fámenna sérhagsmunahópa.“ „Í umræðunni hér hef ég orðið var við misskilning á þá leið að við séum að fara í samningaviðræður við andstæðing um einhver deiluefni, andstæðing sem ágirnist hitt og þetta. En þetta eru öllu frekar samningaviðræður við samherja. Hvort sem maður kallar það aðildarviðræður eða aðlögun er bara orðhengilsháttur sem skiptir engu. Það má allt eins kalla það aðlögun ESB að Íslandi.“ Um margt annað áhugavert er fjallað í viðtalinu, t.d. varðveislu íslenskunnar og að með aðild Írlands hafi verið blásið lífi í gelískuna. Fróðlegt viðtal sem ég hvet alla til að lesa. Höfundur er hagfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson Skoðun Hóparnir þrír sem segja JÁ Rúnar Vilhjálmsson Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson Skoðun Skoðun Skoðun Útgerðarauðvaldið vill í ESB - ég segi nei Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Gervigreind, gagnaver og tækifæri Íslands Eymundur Sigurðsson skrifar Skoðun Sveitirnar þagna Walter Fannar Kristjánsson skrifar Skoðun Áður en lengra er haldið Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Erum við of fljót að kenna samfélagsmiðlum um? Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Börn læra ekki fyrir framtíð sem þau skynja ekki Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Danir, ESB og staða Íslands Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Hvað kostar „þetta reddast“? Guðríður Lára Þrastardóttir skrifar Skoðun Frá öllum til allra með nútímalegum sjúkratryggingum Sigurður H. Helgason skrifar Skoðun Tækifærið er núna Agnar H. Johnson skrifar Skoðun Einelti og samskiptahættir kvenna á Íslandi Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Skoðun 600 þúsund manna Ísland – ætlum við að byggja það sjálf? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Hlaupið er búið - en láttu það ekki stoppa þig Sigrún Elva Einarsdóttir skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir skrifar Skoðun Trump á ekki að vera ástæðan Friðjón R. Friðjónsson skrifar Skoðun Hvernig lækka vextir með upptöku evru? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Eldra fólk ætti alls ekki að kjósa nei Björn B Björnsson skrifar Skoðun Fleiri valkostir og sterkari staða ef við segjum já Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Samkeppniseftirlitið eitt og sér Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Opnum dyr fyrir innviðafjárfestingu um allt land Logi Einarsson skrifar Skoðun Hinn ólánsami Ólafur Ragnar Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar Skoðun Skipulag sem má ekki borga sig! Íris Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ísland, Evrópa og áhrifasvæði stórvelda Þorsteinn Kristinsson skrifar Skoðun Hvaða þýðingu hefur óvissa um aðildarsamning að ESB? Jón Jónsson skrifar Skoðun Ástkæra, ylhýra, orðljóta málið… mitt Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Referendum: Gratitude and Outlook from the Swiss Substitute Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Eru 532 milljarðar minni tala en 245 milljarðar? Egill Almar Ágústsson skrifar Skoðun Lágir vextir og lágt vöruverð? Reynir Zoëga skrifar Skoðun Óviss um ESB? Segðu nei Jón Ívar Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Milljarða ávinningur af evru – fyrir heimilin, fyrirtækin, ríkið, sveitarfélögin og þjóðina alla Baldur Pétursson skrifar