Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 28. júlí 2026 12:01 Skipverjar birtu myndband á samfélagsmiðlum í gær. Vísir/Samsett Áfram siglir áhöfn hvalavina og aðgerðarsinna um borð í Bandero um utan tólf mílna lögsögunni og reynir að hafa uppi á hvalveiðiskipum Hvals hf. Skipverjar saka Kristján Loftsson um að setja þrýsting á Landhelgisgæsluna að hún beiti sér af óþörfu.
Að sögn Magnúsar Pálmars Jónssonar aðgerðastjóra hefur Landhelgisgæslan nú kallað tvisvar til skipsins og köllum þeirra var svarað í fyrra skiptið. Bandero var fyrst siglt inn fyrir efnahagslögsögu Íslands í lok júní og er ferðalagið hluti af svokallaðri Aðgerð 86 sem snýr að því að binda endi á hvalveiðar á Íslandi. Fyrst um sinn var varðskipinu Þór siglt að Bandero þar sem fylgst var með ferðum Bandero. Bandero hefur undanfarna daga siglt um utan tólf mílna lögsögu Íslands. Í myndbandi sem skipverjar birtu á samfélagsmiðlum er það sagt vera af ótta við að Landhelgisgæslan taki þá fasta. Þar segja þeir einnig að Kristján Loftsson forstjóri Hvals hf. setji þrýsting á Landhelgisgæsluna til að beita sér að óþörfu. „Þegar Bandero elti uppi síðustu tvö hvalveiðiskip Íslands, Hval 8 og Hval 9, kom til afskipta Landhelgisgæslu Íslands,“ segir einn áhafnarmeðlimurinn. Afskiptin hafa þó verið bundin við eftirlit og engin bein afskipti hafa verið höfð af ferðum skipsins. Paul Watson-samtökin hafa undanfarna daga fylgst með ferðum Hvals 8 og Hvals 9 og bjóða hverjum þeim sem geta upplýst um staðsetningu hvalveiðiskipana í rauntíma 250 þúsund krónur fyrir. Magnús Pálmar Jónsson aðgerðarstjóri segir Landhelgisgæsluna hafa reynt að hafa samband við áhöfnina í gær. „Eins og kom fram hjá ykkur fór eftirlitsflugvél á staðinn og gerði tilraun til að hafa samband við þá,“ segir Magnús. Ekkert svar barst? „Það barst ekki í það skiptið.“
Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Hvalveiðar Landhelgisgæslan Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Innlent Pútín sló öll met Erlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Innlent Fleiri fréttir Bílastæði við Stúdentagarða verða einkastæði Verði að bregðast við „bullandi launarýrnun“ Flugvirkjar eigi að sýna vilja sinn í verki Lárus Welding á endastöð hjá MDE Segja Icelandair hafa hafnað boði um frestun verkfalls Bifreið fjarlægð með krana eftir að eldur kviknaði Litlu nær um peningana í Fljótagöng Hefði þegið samtal við Jóhannes Tekjur af fiski utan kvóta rúmlega fjórfaldast á fimm árum „Norðurlöndin eru ekki að eltast við skráningarskyldu hlaðvarpa“ Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Tveir á vinnupalli sem hrundi Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Útgjaldaaukningin mest hjá Ragnari Skoða hvort útlendingar þurfi að bíða eftir fullri aðstoð Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Sjá meira